Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1988, Page 50

Læknablaðið - 15.04.1988, Page 50
160 LÆKNABLAÐIÐ Tafla I. Dreifing svara við spurningunni »Hver þessara slaðhœfinga lýsir drykkjusýki (alkóhólisma) best?« Hlutfall (Fjöldi: Spurning 2.593) 1. Sjúkdóraur, sem gerir ekki boð á undan sér, og fólk ræður engu um hvort það fær eða ekki .............................. 9% 2. Sjúkdómur, sem fólk ræður litlu um hvort það fær eða ekki.......................... 12% 3. Sjúkdómur, sem fólk ræður miklu um hvort það fær eða ekki ................... 31% 4. Það er ekki raunverulegur sjúkdómur heldur sjálfskaparvíti.................... 28% 5. Veit ekki.................................. 20% Alls 100% Upplýsingar vantar ........................ 16% Markmiðið með þessari grein er að fjalla um einn þátt, sem gæti varpað ljósi á það, hvers vegna meðferð hefur orðið jafn mikilvæg svörun við áfengisvandamálum og raunin er í íslensku þjóðfélagi. Hér verður kannað að hve miklu leyti almenningur hefur viðurkennt réttmæti slagorðsins: »Drykkjusýki er sjúkdómur«. Þetta verður rannsakað með því að athuga afstöðu mismunandi hópa til drykkjusýki í þeim tilgangi að komast að raun um hvort átak SÁÁ hafi breytt afstöðu almennings í þessum efnum. EFNIVIÐUR Gögnin, sem hér eru notuð, eru sótt í könnun frá árinu 1984. Þessi könnun er þriðji hluti langtímarannsóknar á drykkjuvenjum og áfengismisnotkun fullorðinna íslendinga. Könnunin náði til 4320 einstaklinga. Svör fengust frá 1.237 körlum og 1.356 konum á aldrinum 20-59 ára, og var svarhlutfall 60%. Um val úrtaks og framkvæmd rannsóknarinnar er fjallað í annarri grein (4). Sökum þess, að aðal viðfangsefni þessarar langtímarannsóknar er að kanna breytingar á drykkjuvenjum og misnotkun áfengis hefur sami spurningalistinn verið notaður þrisvar á árunum 1974-1984. Það var því erfiðleikum bundið að bæta við nýjum spurningum um viðhorf til drykkjusýki, þar sem nýjar spurningar myndu lengja listann, sem var alllangur fyrir. Rannsóknaraðilum kom saman um að bæta aðeins við einni spurningu um þetta efni. Er það spurning, sem hefur verið notuð í bandarískri könnun (1). Spurt var hver fjögurra staðhæfinga lýsti drykkjusýki best. Svörin við spurningunni verða greind med tilliti til kynferðis, aldurs, menntunar, áfengisneyslu eða bindindis, áfengisvandamála að eigin mati, áfengisvandamála að mati fjölskyldu og reynslu af meðferð. NIÐURSTÖÐUR Orðalag spurningarinnar, þar sem spurt er hver fjögurra staðhæfinga lýsi drykkjusýki (alkóhólisma) best og dreifing svara við henni er sýnd á töflu I. Töluverður fjöldi þeirra, sem spurðir voru svöruðu ekki spurningunni og jafnvel enn stærri hluti aðspurðra kvaðst ekki vita svarið. Færri en einn af hverjum tíu eru sammála þeirri staðhæfingu að drykkjusýki sé sjúkdómur, sem geri ekki boð á undan sér og að fólk ráði engu um hvort það fái hann eða ekki. Stór hluti aðspurðra er sammála um, að drykkjusýki sé sjúkdómur, sem fólk ráði þó nokkru um, hvort það fái eða ekki. En 28% þeirra, sem svara hafna alfarið þeirri skoðun að drykkjusýki sé sjúkdómur. Á myndum 1-7 er fyrsti svarmöguleikinn sýndur lengst til vinstri og merktur »Sjúkdómur + + + «, annar möguleikinn kemur þar á eftir og er táknaður »+ +«, síðan kemur svarið: »veit ekki«. Þar næst kemur þriðji svarmöguleikinn, sem er merktur » + « og að lokum fjórði möguleikinn »Sjálfskaparvíti«, sem hafnar þvi alfarið að drykkjusýki sé sjúkdómur. Því hlynntari, sem svarendur eru því að líta á drykkjusýki sem sjúkdóm, því lengra til vinstri eru þeir á myndunum. Viðhorf eftir kynferði. Mynd 1 sýnir svör eftir kynferði. Það er marktækur munur á viðhorfum karla og kvenna. Mun fleiri karlar en konur álíta, að drykkjusýki sé ekki sjúkdómur, en konur eru oftar sammála þeirri fullyrðingu, að drykkjusýki sé sjúkdómur. Þennan mun má skýra með því að yfirleitt hneigjast konur frekar til að styðja hin mjúku gildi. Viðhorf eftir aldri. Svarendum hefur verið skipt í fjóra mismunandi aldurshópa. Á mynd 2 má sjá viðhorf til drykkjusýki eftir aldri. Ekki er mikill munur á svörum hjá hinum ýmsu aldurshópum. Þeir elstu eru eina undantekningin.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.