Læknablaðið - 15.09.1988, Qupperneq 9
LÆKNABLAÐIÐ
257
Table I. Age and sex distribution (and number of contacts) of the population of Hólmavík-district (June 30th 1986)
compared with the general population of Iceland (December lst 1985).
Population percentage
Population of Hólmavik distribution
No of males No of females
Age (no of contacts) (no of contacts) Total Hólmavik Iceland
0-4 ............................... 43 (405) 43 (361) 86 8.7 8.4
5-14 .............................. 94 (220) 95 (323) 189 19.1 17.4
15-24 ............................. 96 (150) 75 (320) 171 17.3 17.4
25-34 ............................. 89 (214) 72 (470) 161 16.3 16.6
35-44.............................. 54 (166) 49 (300) 103 10.4 12.9
45-54 ............................. 46 (178) 36 (233) 82 8.3 8.7
55-64 ............................. 47 (277) 40(351) 87 8.8 8.3
65-74 ............................. 32 (171) 18 (240) 50 5.1 5.9
75<................................ 34(286) 24(309) 58 5.9 4.5
Total 535 (2067) 452(2907) 987 99.9 100.1
Skipting landsmanna eftir kyni sýnir að 50,3%
voru karlar og 49,7% konur (1. des. 1985), en í
Hólmavikurlæknishéraði voru 54,1 % karlar og
45,9% konur (l.des. 1985) (2). i þessari grein eru
því skoðuð samskipti við tæplega 1000 manna
hóp, sem hefur svipaða aldursskiptingu og
landsmenn allir. Ætla má ennfremur, að vegna
mikillar fjarlægðar frá öðrum læknishéruðum og
þéttbýli, endurspegli þetta úrtak
heildarsamskiptafjölda 1000 íbúa við
heilbrigðisþjónustuna.
NIÐURSTÖÐUR
Aðkomur. Á þeim tólf mánuðum, sem þetta
úrtak náði til, voru 4974 samskipti skráð við
heilsugæslustöða á Hólmavík, en 5217 erindi
voruborin upp.Að baki þessum 4974 samskiptum
voru 877 einstaklingar af 983 íbúum héraðsins,
Number
sem samsvarar því að 89,2% íbúanna hafi átt
skráð samskipti við heilsugæslustöðina. Af
konum komu 96,2% (434 af 451), en 83,3% karla
(443 af 532). Samskipti voru að meðaltali 432
(340-503) á mánuði, sem samsvarar því að 44% af
íbúunum hafi átt samskipti mánaðarlega. Að
meðaltali voru þetta 287 (242-315) einstaklingar
eða 29% af íbúum héraðsins. Annar hver
einstaklingur kom því að jafnaði tvisvar í sama
mánuði.
Af 4974 skráðum samskiptum, voru 2067 við
karla og 2907 við konur. Að jafnaði voru 5,1
samskipti/íbúa, eða 3,9 samskipti/karl og 6,4
samskipti/konu. Konur höfðu því 1,6 samskipti
fyrir hver ein samskipti karla. í töflu I kemur
m.a. fram fjöldi samskipta eftir kyni og aldri. Á
mynd 2 er fjöldi samskipta á einstakling eftir kyni
0-4