Læknablaðið - 15.11.1989, Side 20
344
LÆKNABLAÐIÐ
Geödeildir Aörar deildir
Mynd 1. Súluritið sýnir hvaöa meöferð gaf bestan á-
rangur aö mati sjúklinga og aöstandenda.
Fjöldi sjúklinga
og aöstandenda
| Sjúklingar || Aöstandendur
Mynd 2. Skoöun sjúklinga og aöstandenda þeirra á
meöferð.
Tafla I. Mat sjúklinga á gagnsemi innlagnar.
Telur þú þig hafa haft gagn
af innlögninni? Geödeildir Aörar deildir
MikiÖ........................... 11 23
Eitthvert....................... 22 13
Ekkert........................... 4 -
Samtals......................... 37 40
Þrír sjúklingar á geödeildum og fjórir á öörum deildum svöruöu ekki.
(rannsóknir, greiningu, meðferð,
eftirmeðferð og horfur)?
NIÐURSTÖÐUR
Á mynd 1 eru lyf og aðgerðir lækna talin
sér. Með samtalsmeðferð er átt við meðferð
lækna eða annars fagfólks. Með hjúkrun er
átt við bæði almenna hjúkrun og geðhjúkrun.
Með annarri meðferð er átt við sjúkraþjálfun
eða iðjuþjálfun. Myndin sýnir að aðeins
16 sjúklingar (43,2%) á geðdeildum en
næstum helmingi fleiri eða 28 sjúklingar
(77,7%) á öðrum deildum töldu að lyf og
aðgerðir lækna gæfu bestan árangur (p<0,02).
Svipaða afstöðu höfðu aðstandendur sjúklinga
á geðdeildum, en nokkuð færri, eða 23
aðstandendur sjúklinga á öðrum deildum.
Fleiri sjúklingar á geðdeildum, eða 7 á móti
4, töldu hjúkrun gefa bestan árangur. Fleiri
aðstandendur sjúklinga á öðrum deildum,
eða 12 á móti 8 töldu almenna hjúkrun gefa
bestan árangur. Tveir sjúklingar á geðdeildum
fengu raflostsmeðferð og töldu hana gefa
bestan árangur. Aðstandendur þeirra voru
sama sinnis.
Þrjátíu og tveir sjúklingar (86.5%) á
geðdeildum og 35 (97,2%) á öðrum deildum
töldu að ekki næðist betri árangur með
annarri meðferð en þeir fengu (p>0,10).
Aðstandendur voru sammála eða 31
aðstandandi sjúklinga á geðdeildum og 36
aðstandendur sjúklinga á öðrum deildum.
Aðrir vildu önnur lyf eða aðgerðir, eða höfðu
enga skoðun á meðferð.
Flestir sjúklinganna fengu lyfjameðferð, 33
á geðdeildum og 34 á öðrum deildum. Af
þeim töldu jafn margir eða 10 sjúklingar á
geðdeildum og á öðrum deildum að lyfin
hefðu neikvæð áhrif.
Mynd 2 sýnir að 28 sjúklingar (75,7%) á
geðdeildum og 35 sjúklingar (94,4%) á öðrum
deildum voru sáttir við þá meðferð sem þeir
fengu (p<0,01), en 34 aðstandendur sjúklinga
á geðdeildum og 37 á öðrum deildum.
Tafla I sýnir að allir nema fjórir sjúklingar
á geðdeildum töldu sig hafa haft mikið eða
eitthvert gagn af innlögninni. Sjúklingar á
öðrum deildum kváðu sterkar að orði um
gagnsemi innlagnar.
Við spumingunni um bót töldu aðstandendur
sjúklinga á geðdeildum að einn sjúklingur