Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ 175 Inngangur: Scleroderma er sjaldséður sjúkdómur. Auðvelt er því að rannsaka sjúkdóminn á íslandi. Útbreiðsla, klínísk og ónæmisfræðileg einkenni sjúkdómsins voru könnuð. Aðferðir: Haft var samband við lækna og heilsugæslustöðvar, sjúkraskrár sjúkrahúsa kannaðar. Allir sjúklingar með þessa greiningu voru skoðaðir og blóð dregið. Niðurstöður: Nýgengi sjúkdómsins er 0.4 á 100.000 íbúa á ári, algengið er 6.4 á 100.000 íbúa. Fimm sjúklinganna reyndust hafa dreifðan sjúkdóm en hinir ellefu höfðu takmarkaðar húðbreytingar, á útlimum og í andliti. Meirihluti sjúklinganna hefur einkenni frá innri líffærum. Kjamamótefni eru mjög algeng og mótefni gegn æðaþelsfrumum sjást í helmingi sjúklinga. Undanfarin 10 ár hafa fimm sjúklingar með scleroderma látist. Alyktun: Scleroderma virðist sjaldséðari á Islandi en í nágrannalöndunum. Ekki hefur áður verið gerð kerfisbundin athugun á mótefnum gegn æðaþelsfrumum í sclerodermasjúklingum. Þýðing þessara mótefna fyrir þróun þessa sjúkdóms verður könnuð nánar. ÆÐABÓLGA f FYLGJUVEF SEM ORSÖK ENDURTEKINNA FÓSTURLÁTA HJÁ KONUM MEÐ ANTI-CARDIOLIPIN MÓTEFNI Höfundar: Kristján Erlendsson, Kristján Steinsson, Reynir T. Geirsson, Jóhann H. Jóhannsson. Lyflækningadeild, ónæmisfræðideild og kvensjúkdómadeild Landspítalans, rannsóknastofa Háskólans í meinafræði Endurtekin fósturlát eru verulegt vandamál hjá konum með lupus og virðist meðganga oft fara verr heldur en virkni sjúkdómsins að öðru leyti gæti sagt fyrir um. Þá er einnig hópur kvenna sem ekki uppfyllir skilmerki lupus en missir fóstur á svipaðan hátt. Ymislegt bendir til þess að tilvist anti-cardiolipin mótefna geti hindrað eðlilegan fósturvöxt sennilega vegna áhrifa á æðarfylgju. Það er ýmist talið að um sé að ræða æðastíflur (thrombosu) vegna aukinnar samloðunar blóðflagna, æðabólgur vegna bólguvaldandi áhrifa mótefna á æðavegg eða afbrigðileg myndun prostaglandína vegna beinna áhrifa á endothel frumur. Við lýsum tveimum meðgöngum tveggja kvenna með lítið virkan lupus, en anti-cardiolipin mótefni, sem fengu litla meðferð í fyrri meðgöngu, með óeðlilegum fósturvexti og fósturdauða. Sýni úr fylgjubeði sýndu miklar vasculitis breytingar. I seinni meðgöngu beggja þessara kvenna var meðhöndlað með barksterum og acetylsalicylsýru. Anticoagulant og anti-cardiolipin mótefni féllu, ekki sáust æðabreytingar í fylgjubeði og báðar fæddu eðlileg böm. MAT Á HEILSUFARI SJÚKLINGA MEÐ HÆKKUÐ MÓTEFNI GEGN GLÍADÍNÞÆTTI GLÚTENS Höfundar: Hallgrímur Guðjónsson, Jón A. Ámason, Ingileif Jónsdóttir, Jóna Freysdóttir, Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði, lyflækningadeild Landspítalans Inngangur: Nokkur hluti 200 einstaklinga, sem valdir vom af handahófi úr þjóðskrá, reyndist hafa mælanlegt magn IgG og IgA mótefna gegn glíadíni. Ákveðið var að athuga hvort heilsufar þessara einstaklinga væri að einhverju leyti afbrigðilegt miðað við þá sem ekki höfðu mælanleg mótefni í þessu úrtaki. Aðferðir: Valdir voru 32 einstaklingar úrtaksins sem höfðu hæstu IgG og/eða IgA glíadínmótefnin, og til samanburðar 20 sem ekki höfðu mælanleg mótefni gegn þessu fæðuefni. Heilsufar þessara einstaklinga var metið blint, með tilliti til glíadínmótefna. Þeir voru kallaðir til skoðunar, sem fólst í stöðluðum spumingum, líkamsskoðun, og rannsóknum til að meta næringarástand, einkum jám- og fólínsýruskort. Jafnframt vom mælingar á glíadínmótefnum endurteknar. Af 52 mættu 47 til skoðunar. Af 30, sem höfðu verið hækkaðir í giíadínmótefnum (m.v. 95% viðmiðunarmörk), mældust 22 aftur hækkaðir, og allir nema einn voru ennþá yfir 90% viðmiðunarmörkum. I samanburðarhópnum mældust allir (17) aftur neikvæðir í glíadínmótefnum. Einkenni frá meltingarvegi og jámskortur reyndust mun algengari hjá þeim, sem höfðu há glíadínmótefni. Af 15 þátttakendum sem höfðu einkenni er talin voru samrýmanleg við coeliac sjúkdóm reyndust 14 hafa glíadínmótefni. Alyktun: Þessar niðurstöður benda til þess að vægt form af glútenóþoli kunni að vera tiltölulega algengt. Þær réttlæta áframhaldandi rannsókn á gegndræpi og íferð ónæmisfmmna í gamaslímhúð. GIGTARÞÆTTIR OG LÍFSLÍKUR KRABBAMEINSSJÚKLINGA Höfundar: Þorbjörn Jónsson, Jón Þorsteinsson, Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði, lyllækningadeild Landspítalans Inngangur: Mótefni gegn Fc hluta IgG mótefna finnast í einhverjum mæli í heilbrigðum einstaklingum og er talið að þau geti tekið þátt í stýringu eðlilegra ónæmisviðbragða. Magn þessara mótefna eykst hins vegar vemlega í flestum sjúklingum með liðagigt (RA) og suma bandvefssjúkdóma. Þessi mótefni hafa því verið kölluð gigtarþættir (rheumatoid factors/RF). RF hækkanir hafa einnig fundist í öðmm sjúkdómum, svo sem krbbameini. Umdeilt er hvort RF magn getur gefið vísbendingu um æxlismagn eða horfur hjá krabbameinssjúklingum. eykst hins vegar vemlega í flestum sjúklingum með liðagigt (RA) og suma bandvefssjúkdóma. Þessi mótefni hafa því verið kölluð gigtarþættir (rheumatoid factors/RF). RF hækkanir hafa einnig fundist í öðrum sjúkdómum, svo sem krabbameini. Umdeilt er hvort RF magn getur gefið vísbendingu um æxlismagn eða horfur hjá krabbameinssjúklingum. Aðferðir: Aðferðir: Árið 1987 var könnuð tíðni krabbameins, horfur, afdrif og magn RF flokka hjá 493 einstaklingum, sem þátt tóku í hóprannsóknum Hjartavemdar 1974-83. RF mælingar voru gerðar á tveimur blóðsýnum úr hverjum þátttakanda, hið fyrra tekið 1974-83 og hið síðara 1987. Niðurstöður: Einstaklingar sem greinst höfðu með krabbamein og voru á lífi 1987 voru marktækt oftar með hækkun á RF. Þetta gilti þó ekki um IgA RF. Hins vegar reyndust einstaklingar með hækkun á IgA RF í upphaflega blóðsýninu hafa aukna krabbameinsáhættu og heildardánartíðni. Hækkun á IgM RF tengdist hins vegar betri lífslíkum. Umrœða: Verri horfur krabbameinssjúklinga með IgA RF gætu skýrst af vanhæfni IgA mótefna til að ræsa komplímentkerfið og drápsfrumur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.