Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1991, Side 41

Læknablaðið - 15.05.1991, Side 41
LÆKNABLAÐIÐ 201 samhengi kunni að vera milli flúorþétmi í blóði og kjálkum og gadds. Niðurstöður rannsóknanna sýndu, að verulegar sveiflur væru í flúorþéttni í blóði eftir árstíðum. Var þéttni flúors þannig 6-12 sinnum hærri í vetrarfóðruðu fé en sumargengnu. Samseming fóðursins hafði einnig veruleg áhrif á blóðþéttnina. Var flúoríð áberandi mest í því fé, sem fengið hafði flúorríkan fóðurbæti (fiskmjöl). Ekkert samhengi virtist vera milli þéttni flúors í blóði og einkenna um gadd. Hins vegar var greinilegt samhengi milli gadds og þéttni flúors í kjálkum. Frekari rannsóknir munu beinast að því, að rannsaka hvert samhengi kunni að vera milli þéttni flúors í blóði og beinum annars vegar og milli þéttni flúors í blóði og bráðra eiturhrifa hins vegar. ÁKVÖRÐUN Á KADMÍUM í NÝRNABERKI MEÐ SPENNUGREININGU Höfundar: Elísabet Sólbergsdóttir, Þorkell Jóhannesson. Rannsóknstofa í lyfjafræði, Háskóla Islands Kadmíum (Cd) er tvígildur málmur, sem safnast mjög í lifandi verur og getur meðal annars af þeim sökum haft ýmis eiturhrif. I mönnum safnast kadmíum aðallega í lifur og nýru, en veldur einungis skemmdum í nýrum. Verður því að telja nýru marklíffæri með tilliti til eiturhrifa kadmíums. Hér birtast ákvarðanir á kadmíum í nýrum þrjátíu einstaklinga, sem ýmist hafa látist vegna slysa eða svift hafa sig lífi. Niðurstöðutölur benda til þess, að magn kadmíums í nýmaberki í fslendingum sé tiltölulega lítið og langt frá hættumörkum (200 míkróg/g). Enginn öruggur munur var á milli magns kadmíums í nýrum einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu og nýrum einstaklinga er bjuggu utan þess. Magn kadmíums óx með hækkandi aldri upp að 70 ára aldri, en fór þá lækkandi. Ekki reyndist unnt að fá upplýsingar um tóbaksreykingar, en umtalsvert magn kadmíums er í reyktóbaki. Enda þótt magn kadmíums í nýmm íslendinga virðist vera lítið, er engu að síður fullrar aðgæslu þörf. Þar eð kadmíum safnast mjög í líkama manna og dýra, gæti það í raun verið hinn varasamasti málmur, sem menn komast í snertingu við. (Rannsóknir þessar em liður í stærra rannsóknarverkefni um útbreiðslu málma í íslensku lífríki. Spennugreiningu hefur áður verið lýst á ráðstefnu um rannsóknir í læknadeild 1988.) HEILABILUN Á ÍSLANDI - KLÍNÍSK- MEINAFRÆÐILEG OG FARALDSFRÆÐILEG RANNSÓKN - Höfundar: H. Blöndal, E. Benedikz, Gu. Guðmundsson, Gr. Guðmundsson, G. Jóhannesson, S. Stefánsson, Þ. Halldórsson, J.E. Jónsson, J. Snædal, J. Bjömsson, Þ. Jónsdóttir. Rannsóknastofa í líffærafræði, rannsóknastofa Háskólans við Barónsstíg, taugalækningadeild, öldmnarlækningadeild og geðdeild Landspítalans Heilabilun er orðin stórt heilbrigðisvandamál í flestum löndum vestur Evrópu með vaxandi aldri íbúanna. Samkvæmt flestum skýrslum má reikna með að um 5- 10% einstaklinga á aldrinum 65-79 ára og um 25-30% einstaklinga eldri en 80 ára þjáist af heilabilun. Alzheimer sjúkdómur (AS) er aðalorsökin fyrir heilabilun, líklega orsökin í um 60-80% tilfellanna. Þekking á framgangi og tjáningu AS er enn ófullnægjandi en það gerir sjúkdómsgreiningu erfiða og oft óvissa. Búast má við að langtíma klínísk-meinafræðilegar samanburðarrannsóknir á sjúkdómnum geti hjálpað til við lausn þessa vandamáls. Niðurstöður nokkurra erlendra rannsókna af þessu tagi hafa þegar verið birtar og aðrar eru í vinnslu. Talið er líklegast að samanburður margra slíkra rannsókna frá mismunandi löndum geti orðið til þess að auka þekkingu á gangi heilabilunar, skilning á eðli sjúkdómsins og þannig nákvæmni sjúkdómsgreiningarinnar. Talið er líklegast að nákvæm sjúkdómsgreining á AS fáist með samanburði á niðurstöðum margra slikra rannsókna. Þessi íslenska rannsókn á heilabilun, sérstaklega AS, er tvískipt: 1. Klínísk-meinafræðileg rannsókn á 100 sjúklingum sem hafa fengið 24 stig eða minna á stuttu kembileitarprófi (Mini Mental State Examination). 2. Athugun með þátttöku allra íbúa tveggja svæða á Islandi. Kynnt verður hvemig að þessari rannsókn er staðið en hún hófst árið 1988. ARFGENG HEILABLÆÐING -DREIFING CYSTATIN C MÝLILDISEFNIS- Höfundar: Hannes Blöndal, Eiríkur Benedikz, Gunnar Guðmundsson. Rannsóknastofa Háskólans í líffærafræði, rannsóknastofa Háskólans við Barónsstíg, taugalækningadeild Landspítalans Mýlildisefni, því sem næst eins að gerð og próteasa hindrinn cystatin C, var einangrað úr æðum í mjúku heilhimnunum frá sjúklingum með arfgenga heilablæðingu (Ghiso et al. Biochem Biophys Res Commun 1986; 136: 548-54). Mýlildisefnið sem talið var eingöngu að finna í heilaæðum sjúklinganna hefur síðar fundist í ýmsum öðmm vefjum með ónæmisvefjafræðilegum aðferðum og með rafeindasmásjárskoðun. Mýlildisefnið finnst í langmestu magni í miðtaugakerfi og í minna mæli í öðmm líffæmm. Ekki er því lengur unnt að telja sjúkdóminn staðbundinn (localized hereditary amyloidosis) heldur öllu fremur kerfistengdan mýlildissjúkdóm (systemic hereditary amyloidosis) þó klínísk einkenni hans séu eingöngu frá mitaugakerfi. Gerð verður grein fyrir dreifingu mýlildisefnisins í líffærum þessara sjúklinga. ARFGENG HEILABLÆÐING -ÚTFELLINGAR CYSTATIN C MÝLILDISEFNIS í HÚÐ- Höfundar: Eiríkur Benedikz, Hannes Blöndal, Gunnar Guðmundsson. Rannsóknastofa Háskólans í líffærafræði, rannsóknastofa Háskólans við Barónsstíg, taugalækningadeild Landspítalans Eðlilega útlítandi húð var athuguð hjá 47 einstaklingum, þar af 35 sjúklingum og fólki af heilablæðingarættum og 12 öðmm óskyldum einstaklingum, þar af fjómm heilbrigðum. Af þeim 35 einstaklingum af heilablæðingarættum, sem athugaðir vom með tilliti til mýlildisútfellinga í húð, reyndust 21 hafa þær. Af þessum 21 einstaklingi var sjúkdómurinn staðfestur með kmfningu í sjö

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.