Læknablaðið - 15.11.1992, Blaðsíða 8
352
LÆKNABLAÐIÐ
Table VII. Clinical characteristics of patients operated on after initial period of observation (n=5 all males).
Age Cause ISS Associated injuries Time from accident to operation (days) Operation No of transfusions Hospitas stay, (days)
68 Traffic 32 Intracereboral +subduraly hematoma 4 Splenectomy 4 51
6 Traffic 16 1 Splenectomy 2 7
11 Skiing 16 2 Splenectomy 0 11
9 Fall 16 1 Splenorraphy 1 14
19 Traffic 41 Pelvic fracture Hemothorax Pneumothorax Liver rupture Kidney contusion 1 Splenectomy 16 18
reyndist nægjanlegt til að stöðva blæðinguna.
Tveir sjúklingar úr aðgerðarhópnum létust og
var miltisáverkinn orsök dauða annars þeirra.
Þar var um að ræða 46 ára gamla konu sem
reyndist vera í óbætanlegu (irreversible) losti
við komu á spítalann og varð ekki bjargað
þrátt fyrir miltistöku, en miltisrifa var eini
áverkinn sem fannst við aðgerðina. Hinn
sjúklingurinn var eins árs og hafði einnig
slæman höfuðáverka sem leiddi til dauða.
I hinum meðferðarflokknum voru 14
sjúklingar sem ákveðið var að reyna að
meðhöndla án uppskurðar. Þeir voru lagðir
á gjörgæsludeild og fylgst var náið með þeim,
meðal annars með endurteknum ómunum eða
sneiðmyndatökum. Þessir sjúklingar voru
yngri og minna slasaðir en sjúklingarnir
í aðgerðarhópnum. (töflur II og V). Tíu
höfðu miltisáverka eingöngu, tveir fjöláverka
(ISS 32 og 41) og tveir minni háttar tengda
áverka (ISS 17 og 20). Níu sjúklinga tókst
að meðhöndla án uppskurðar. Þeir fluttust
af gjörgæsludeild á þriðja til fjórða degi og
útskrifuðust eftir níu daga að meðaltali. Eftir
útskrift voru snertiíþróttir (contact sports)
ekki leyfðar fyrr en eftir tvo til þrjá mánuði.
Þessum sjúklingum vegnaði öllum vel.
Fimm sjúklingar, sem upphaflega var reynt
að meðhöndla án uppskurðar, þurftu að fara
í uppskurð áður en lauk (tafla VII). Astæður
þessara aðgerða voru að tveir sjúklinganna
fóru í lost (báðir með fjöláverka) en hjá
þremur fóru kviðarholseinkenni versnandi auk
þess sem blóðrauði féll. Miltað var fjarlægt úr
fjórum þessara sjúklinga en gert var við það
hjá einum.
Uppskurðarsjúklingar urðu því alls 35
Table VIII. Morbidity in 22 out of 35 operated patients.
Morbidity n
Pleural effusion ............................. 16
Atelectasis................................... 13
Pneumonia ..................................... 6
ARDS........................................... 2
Sepsis ........................................ 3
Acute tubular necrosis......................... 2
Peritoneal abscess ............................ 1
Jaundice ...................................... 4
Dissseminated intravascular coagulation...... 1
Acalculous cholecystitis....................... 1
Brain damage................................... 1
Table IX. Hospital days. (Two patients who died on the
day of admission inccluded).
Days
(median) Range
All patients.......................... 13 (0-116)
Operated group ....................... 18 (0-116)
Observed group......................... 9 (6-51)
og fengu 22 þeirra meiriháttar fylgikvilla
(morbidity) eins og fram kemur í töflu
VIII. Allir sjúklingar sem misstu miltað
voru bólusettir gegn lungnabólgusýklum
(pneumovax). Þótt þrír sjúklinganna fengju
blóðeitrun fékk enginn yfirþyrmandi
blóðeitrun af þeirri gerð sem stundum sést
eftir miltistöku (OPSI). Miðtala legutíma
uppskurðarsjúklinga var 18 dagar, en þeirra
sem tókst að meðhöndla án uppskurðar m'u
dagar (tafla IX).
Af þeim 44 sjúklingum sem greindust með
miltisrof á umræddu tímabili dóu því tveir
(4,6%) og 32 (þeir dánu meðtaldir) misstu
miltað (77,7%). Hjá 12 (26,3%) tókst að
varðveita miltað, í níu tilvikum með því að