Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1992, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.11.1992, Blaðsíða 50
394 LÆKNABLAÐIÐ og sjúklings, svo og áhrif og virkni læknismeðferðar. Skipulagning: Þörf er þekkingar á heilbrigðisvandamálum, félagslegum vandamálum og meðferðarferli, svo að þeir sem annast skipulagningu heilbrigðis- og félagsþjónustu geti sem best nýtt sér öll tiltæk úrræði til forvarnar gegn sjúkdómum og slysum, svo og til eflingar heilbrigði. Gœðatrygging: Koma þarf aðferðum til sjálfsgagnrýni og gæðatryggingar inn í klíníska vinnu. Til samanburðar er gagnlegt að skoða aðferðir iðnfyrirtækja við gæðatryggingu, en sambærilegar aðferðir er nú rétt byrjað að nota í heilbrigðisþjónustu. Hið sívaxandi gagnafióð um læknisfræðileg efni gerir öllum læknum nauðsynlegt að þjálfa sig í að leggja gagnrýnið mat á læknisfræðilegar upplýsingar. Flokkunarnefnd Alheimssambands heimilislœknafélaga (WONCA): Vinnuframlag þessarar nefndar, sem að hluta til er unnið í samvinnu við Alþjóða heilbrigðismálastofnunina, hefur leitt til þess, að nú er fyrir hendi skilgreindur, alþjóðlegur grunnur til að byggja á vísindalegar rannsóknir í heilsugæslu. Þegar hafa verið gefin út flokkunarkerfi fyrir atriði eins og ástæður samskipta, heilbrigðisvandamál og sjúkdóma, meðferðarferli, skilmerki sjúkdómsgreininga og skilgreiningar heita (íðorða). Rannsóknaraðferðir: Vera má að taka þurfi upp vísindalegar rannsóknaraðferðir annarra vísindagreina svo sem líffræði, félagsvísinda og hugvísinda og aðlaga þær rannsóknum í heilsugæslu. Tölfræðilegar vinnuaðferðir munu gegna vaxandi hlutverki í slíkum rannsóknum. FRAMTÍÐIN Til að ná þeim markmiðum sem að framan er getið er lágmarksskilyrði, að læknaskólar séu vel búnir og bjóði upp á skipulegt nám í heimilislækningum. Heimilislæknar um víða veröld verða til kvaddir að annast kennslu og vísindalegar rannsóknir. Gera þarf heimilislækningar að undirstöðunámi í læknisfræði, sem aðrar greinar læknavísinda tengjast síðan við. Á þann veg má koma upp samvirku, víðfeðmu teymi sem gagnast mun einstaklingum, fjölskyldum og samfélaginu öllu. Þýðandi: Eyjólfur Þ. Haraldsson. HEIMILDIR 1. World Federation for Medical Education. The Edinburgh Declaration. Medical Education 1988; 22: 481. 2. Lamberts H, Wood M , eds. Intemational Classification of Primary Care. London: Oxford University Press, 1987. 3. WONCA. Intemational Classification of Process in Primary Care. IC-Process-PC. London: Oxford University Press, 1986. 4. WONCA Classification Committtee. Functional Status Measurement in Primary Care. Frontiers of Primary Care. Berlin: Springer-Verlag, 1990. 5. WONCAAVHO. Intemational Classification of Health Problems in Primary Care. ICHPPC-2-Defined. London: Oxford University, Press, 1983.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.