Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1992, Qupperneq 36

Læknablaðið - 15.11.1992, Qupperneq 36
380 LÆKNABLAÐIÐ aukaverkanir vegna meðferðar, sem krefðist lyfjabreytinga. Önnur rannsókn á meðferð við háþrýstingi meðal aldraðra var birt á árinu 1991: The Swedish Trial in Old Patients with Hypertension, skammstafað: STOP- hypertension (3). Sjötíu til 84 ára einstaklingar (meðalaldur 75,6 ár, 17% yfir áttrætt) með hækkaðan hvíldarþrýsting voru meðhöndlaðir á slembaðan tvíblindan hátt með lyfi eða lyfleysu. Niðurstöðumar sýndu að koma má í veg fyrir fjórtán heilablóðföll og fimmtán dauðsföll fyrir hverja þúsund einstaklinga meðhöndlaða í eitt ár og heildarlækkun á dánartíðni yrði um 43%. Tíðni hjartabilunar, tímabundinnar heilablóðþurrðar og hjartakveisu lækkkaði um 67%. Tíðni hjartadreps lækkaði um 13%, sem reyndist ekki tölfræðilega marktæk niðurstaða. Mikilvægt er að ofanskráðar tvær rannsóknir styðja hefðbundna og ódýra meðferðarvalkosti, samanborið við nýrri og dýrari meðferðarmöguleika. Lyfjakostnaður með þíasíðum er um það bil 4000 krónur á ári, en með atenólóli um það bil 8000 krónur á ári. Þetta eru tveir ódýrustu meðferðarvalkostimir við háþrýstingi, svo að miklu munar. BLÓÐÞYNNING VEGNA GÁTTAFLÖKTS Áður var algengast að gigtarsjúkdómur í hjartalokum tengdist gáttaflökti. Nú er hins vegar gáttaflökt ótengt lokusjúkdómi í 70% tilvika. Gáttaflökt sem ekki tengist hjartalokusjúkdómi skýrir nær helming allra slagæðablóðsega, sem taldir eru koma frá hjarta. Meðalaldur sjúklinga við upphaf gáttaflökts er 64 ár. Gáttaflökt leggst á 2-5% manna yfir sextugt, og leiðir til fimmfaldrar aukningar á heilablóðföllum og fimm til sjö prósent árlegrar áhættu á heilablóðföllum, sem fer vaxandi með hækkandi aldri. Þrjátíu og fimm af hundraði allra með gáttaflökt ótengt lokusjúkdómum fá heilablóðfall. Áhættan er jafnvel hærri ef þeir eru taldir með sem hafa svokallaða þögla blóðtappa í heila en þeir eru mikilvæg orsök vitrænnar skerðingar meðal aldraðra, en 15-18% sjúklinga með gáttaflökt hafa slíka þögla blóðtappa í höfði á tölvusneiðmynd. Gáttaflökt er sterkasti einstaki áhættuþáttur heilablóðfalla hjá konum yfir sjötugt. Innan hópsins með gáttaflökt án lokusjúkdóma ræður aldur mestu um áhættuna á heilablóðföllum. Áhættan á heilablóðföllum er minnst hjá þeim, sem eru yngri en 60 ára og hafa ekki annan þekktan hjartasjúkdóm, þar sem áhættan er 0,5% á ári, en vex hratt með aldri og tengslum við aðra hjartasjúkdóma (4). Á síðustu fáeinum árum hafa komið fram fjórar, framsæjar slembaðar rannsóknir, sem hafa metið áhættu og ávinning af blóðþynningu til að hindra heilablóðföll í sjúklingum með gáttaflökt. Samtals hafa þessar rannsóknir fylgt eftir 4300 sjúklingaárum, sem hefur verið deilt á milli warfaríns, aspiríns og lyfleysu. Þessar rannsóknir eru Copenhagen Atrial Fibrillation, Aspirin, Anticoagulation Study (AFASAK) (5), Stroke Prevention in Atrial Fibrillation Study (SPAF) (6), Boston Area Anticoagulation Trial for Atrial Fibrillation (BAATAF) (7) og Canadian Atrial Fibrillation Anticoagulation Study (CAFA) (8). í heild hafa þessar rannsóknir notað lágskammta- warfarín blóðþynningu og miðað hefur verið við INR (intemational nomalized ratio) 2,0-3,0 (9). í AFASAK rannsókninni voru áhrif 75 mg af aspiríni könnuð, en í SPAF áhrif 325 mg af aspiríni. Lækkunin á tíðni heilablóðfalla var sem hér segir (95% vissumörk): AFASAK 58% (7-81), SPAF 67% (21-86), BAATAF 86 (51-96) og CAFA 42% (-68-80). Fyrstu þrjár rannsóknimar náðu mjög ákveðinni tölfræðilega marktækri niðurstöðu, en síðasttalda rannsóknin ekki. Aspirín armurinn í AFASAK rannsókninni gaf 16% lækkun (-61- 56), sem er ekki tölfræðilega marktækt, en í SPAF rannsókninni fékkst 44% lækkun (9-66), sem reyndist marktækt. Munurinn hér kann að felast í aspirín skammtinum (75 mg vs. 325 mg). Heildamiðurstaðan er því að búast megi við að áhættan á heilablóðföllum sem fylgir langvinnu gáttaflökti án lokusjúkdóms lækki úr um það bil 6% á ári í 2% á ári við lágskammta blóðþynningu með warfaríni. Rétt er að gefa þeim aspirín, sem vilja ekki taka warfarín eða hafa frábendingar fyrir warfaríni. SEGAHAMLANDI MEÐFERÐ ÖNNUR EN WARFARÍN VIÐ BLÓÐÞURRÐ Þrjár meingerðir í heilablóðföllum eru af völdunt blóðþurrðar, þrengsli í stórum æðum, þrengsli í smáum æðum og blóðsegar. Segamyndun er samnefnari fyrir allar þrjár meingerðimar, enda er segahamlandi

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.