Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1992, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.11.1992, Qupperneq 46
390 LÆKNABLAÐIÐ ákveða, hvort eitthvað í því verki letjandi á lækninn til að þjóna því. - Læknirinn þarf að greina heilbrigðisvandamál í samfélaginu sem rista dýpra en vandamál einstaklings þess sem leitar sér hjálpar og reyna að nálgast þá, sem eru hjálpar þurfi en leita sér ekki aðstoðar, með því að efla heilbrigðisfræðslu og sjúkdómaleit. C. Stuðningur í samfélaginu. - Læknirinn þarf að að skilja heilbrigðisvenjur fólksins og styðja framtak hvers samfélags sem ntiðar að bættu og öruggara heilbrigðisástandi íbúanna. - Læknirinn þarf að taka fullt tillit til allra sem bjóða upp á vísindalega viðurkennda heilbrigðisþjónustu og reyna að virkja og nýta framlag þeirra til fulls. - Læknirinn þarf að beita sér fyrir forvamaraðgerðum, eflingu heilbrigði, meðferð sjúkdóma og endurhæfingu. 2. Gagnvart einstaklingum: A. Lœknismeðferð í víðustu merkingu. — Læknirinn þarf að gera sér grein fyrir öllum heilbrigðisvandamálum sent sjúklingur ber upp, (þar með talinn óskilgreindur vandi, sjúkleiki á frumstigi, bráðir sjúkdómar, langvarandi kvillar, geðræn og félagsleg vandamál), svo og þörfinni fyrir hvers konar endurhæfingu. - Læknirinn þarf að gera sér grein fyrir hvað þarf til að lækna sjúklinginn bæði í læknisfræðilegu og mannlegu tilliti, það er að lækna hann bæði líkamlega, andlega og félagslega. - Læknirinn þarf að greina viðkomandi sjúkdóm, útiloka alvarlega sjúkdóma og virkja aðra heilbrigðisstarfsmenn til samvinnu, þegar þörf gerist. B. Það sem snýr að sjúklingnum sjálfum. - Læknirinn þarf að skynja hvers vegna sjúklingurinn ber upp ákveðið vandamál á tilteknum tíma. - Læknirinn þarf að skynja og bregðast við væntingum sjúklingsins og til hvers hann ætlast við tiltekin samskipti. - Læknirinn þarf að skynja og skilja hver áhrif vandamálið hefur á sjúklinginn. C. Það sem snýr að fjölskyldunni. - Læknirinn þarf að skilgreina hver er raunverulega sjúklingurinn; sá sent kemur á stofuna eða hringir, ellegar aðrir honum tengdir. - Læknirinn þarf að taka tillit til þeirra áhrifa sem ýmsir fjölskylduþættir hafa á heilsufar sjúklingsins og gera ráð fyrir þeim þegar ráðgerðar eru forvamaraðgerðir eða læknismeðferð, enda nauðsynlegt ef lausn á að fást á vanda sjúklingsins. - Læknirinn þarf að skilja hver áhrif heilsufarsvandi sjúklingsins hefur á fjölskyldu hans. D. Samband lœknis og sjúklings. - Læknirinn þarf að líta á samband læknis og sjúklings annarsvegar og læknis og fjölskyldu hins vegar, sem mikilvæga þætti heilbrigðisþjónustu. - Læknirinn þarf að leitast við að skilgreina hver áhrif tilfinningar hans sjálfs gagnvart sjúklingi kunna að hafa á vandamál sjúklingsins og það hvernig læknirinn bregst við þeimi - Læknirinn þarf að taka tillit til sjálfræðis sjúklinga sinna og fjölskyldna þeirra í læknisdómum sínum, einkum þegar gerðar eru áætlanir um meðferð. SKILYRÐI SEM UPPFYLLA PARF TIL AÐ GEGNA FRAMANGREINDUM SKULDBINDINGUM A. Víðtœk lœknisþjónusta. Tengslin milli læknis og sjúklings spanna

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.