Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1993, Page 39

Læknablaðið - 15.10.1993, Page 39
LÆKNABLAÐIÐ 329 var sprautaður niður og fór mótþróalaust. Síðan var hann fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og lagður inn á geðdeild. Itarleg skoðun leiddi ekkert athugavert í ljós og var stefnandi útskrifaður daginn eftir. Stefnandi fór í skaðabótamál á hendur ríkinu sem vinnuveitanda heilsugæslulæknisins vegna ólögmætrar frelsissviptingar. I niðurstöðu héraðsdóms segir: »Stefnandi var með rænu og talaði við lœkninn og þá sem komu til að sœkja hann í allt að þrjár klukkustundir áður en hann var beittur valdi. Allan þennan tíma mótmœlti hann því að fara til lœknisskoðunar. Enda þótt í Ijós sé leitt með áliti lœknaráðs að stefnandi geti á þesswn tíma hafa verið haldinn alvarlegum geðsjúkdómi, sem gœti hafa reynst hcettulegur honum, þá réði hann því sjálfur hvort hann þœgi þá lœknismeðferð og rannsóknir sem boðið var upp á, svo framarlega sem hann var með ráði og rœnu og gat tekið slíka ákvörðun. Ekkert er komið fram um að stefndi (vakthafandi lœknir) hafi athugað hvort stefnandi var reiðubúinn að lýsa því yfir skrifiega að hann hafnaði því alfarið að fara undir lœknishendur og að hann gerði það með fullu ráði. Þegar á þetta er litið, svo og til þess sem í Ijós er leitt um hátterni stefnanda þanui um morguninn og þá sérstaklega þess að hann hringdi að B (nœsti bær) um kl. 9.30 og bað húsráðendur fyrir fénað sinn meðan hann yrði fjarverandi og sagði fyrir um fóðurgjöf verður ekki talið nægilega leitt í Ijós af stefndu hálfu að stefnandi hafi ekki vitað hvað hann var að gera og að hann hafi ekki getað gert sér grein fyrir því hverju hann var að neita, en sönnun um þetta hvílir á stefndu.« Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að áfrýja þessum dómi til Hæstaréttar. Athyglisvert er að dómurinn telur að læknir hefði átt að fá skriflega yfirlýsingu frá sjúklingi um að hann vildi ekki þiggja læknishjálp. Hér vakna spurningar um mat á sjúkdómsástandi og alvarleika þess. Einnig er fróðlegt að velta fyrir sér hver viðbrögðin hefðu orðið ef læknirinn hefði valið þá leið að skilja sjúklinginn eftir og eitthvað hefði komið fyrir sjúklinginn í framhaldi þess. í sérstökum tilfellum er bráðabirgðavistun manns á sjúkrahúsi heimil án samþykkis hans. Hér er átt við þau tilvik að viðkomandi þurfi á meðferð að halda vegna geðveiki eða ofnautnar áfengis, ávana- eða fíkniefna. I þessum tilvikum heimila lögræðislögin bráðabirgðavistun sjúklinga sem þetta sjúkdómsástand á við um. í öllum tilvikum verður læknir að meta sjúkdóminn og sjúkdómsástandið verður að vera svo alvarlegt að vistun sé óhjákvæmileg að mati læknisins. Fyrrnefndur dómur kom inn á þetta mat að hluta og sýnir að kröfurnar sem gerðar eru varðandi alvarleika ástandsins eru mjög miklar. Víða erlendis eru sérstök lög um vistun manna á sjúkrahúsi án þeirra samþykkis. Geðlæknafélag Islands hefur eindregið lagst gegn slflcum sérlögum, sem í flestum tilvikum ná fyrst og fremst til geðveikra manna. Því hafa ákvæði um bráðabirgðavistun af þessu tagi verið í lögræðislögunum. í einstökum sérlögum er að finna frekari undanþágur frá þessari mepinreglu um að samþykki sé nauðsynlegt. I þessu sambandi má nefna ákvæði berklavarnalaga frá 1939, ákvæði laga um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978, ákvæði í sóttvarnalögum frá 1954 og farsóttalögum frá 1958. I öllum tilvikum er vikið er til hliðar hinurn einstaklingsbundna rétti í þágu heildarinnar - minni hagsmunir víkja fyrir meiri. Áður en við hverfum frá reglum um samþykki er rétt að geta ákvæða í nýjum lögum um brottnám líjfœra og krufningu (nr. 16/1991). Þar getur hver sá sem orðinn er 18 ára gefið samþykki sitt til brottnáms líffæris eða lífrænna efna úr eigin líkama til nota við læknismeðferð annars einstaklings. Hér er miðað við 18 ára aldur þó meginreglan sé talin sjálfræðisaldurinn. Lækni er skylt að veita væntanlegum líffæragjafa upplýsingar um eðli aðgerðar og hugsanlegar afleiðingar hennar og skal læknirinn sérstaklega ganga úr skugga um að væntanlegur líffæragjafi skilji upplýsingarnar. Hafi einstaklingur gefið samþykki má nema á brott líffæri úr honum að honum látnum. Liggi samþykki hans ekki fyrir má engu að síður nema líffæri á brott ef nánasti vandamaður samþykkir og slíkt ekki talið brjóta í bága við vilja hins látna. E. Ymis réttindi samkvæmt læknalögum. Ymis réttindi sjúklinga byggja á ákvæðum læknalaga. Þar má nefna upplýsingaskylduna,

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.