Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1993, Side 11

Læknablaðið - 15.12.1993, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 383-392 383 Atli Dagbjartsson1), Jóhann Heiðar Jóhannsson2), Anna Björg Halldórsdóttir3), Guðmundur Bjarnason1), Gunnar Biering1) ÞARMADREPSBÓLGA NÝBURA Á ÍSLANDI ÁGRIP Gerð var afturskyggn rannsókn á bráðri þarmadrepsbólgu nýbura (neonatal necrotizing enterocolitis) á íslandi árin 1976-1991. Tilfellanna var leitað í sjúkdómaskrám Barnaspítala Hringsins, Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg og barnadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á þann hátt fundust sjúkraskrár 23 nýbura og voru þær allar endurskoðaðar, en einnig allar vefjasneiðar úr görnum og röntgenmyndir af kviðarholi. Talið er að sjúkraskrár allra nýbura, sem fengu þessa greiningu á umræddu tímabili á Islandi, hafi verið athugaðar. Sjúkdómurinn birtist sem fimm stök tilfelli árin 1976-1985, en sem faraldur 18 tilfella árin 1987-1990. Þetta svarar til nýgengisins 0,12% meðal nýbura á íslandi fyrra tímabilið og 1% síðara tímabilið. í erlendum rannsóknum, sem vitnað er til, er nýgengi á bilinu 1-1,3%. I íslenska sjúklingahópnum voru níu drengir og 14 stúlkur. Þar af voru 16 fyrirburar (70%), en tvö börn höfðu meðfæddan vanskapnað. Afbrigði og sjúkdómar á meðgöngutíma höfðu greinst hjá 19 mæðranna og sjúklegar breytingar fundust í átta af þeim 10 fylgjum sem rannsakaðar voru. Aldur barnanna við greiningu á þarmadrepsbólgu var að meðaltali 8,7 dagar og helstu sjúkdómsteikn voru blóð í hægðum, ælur, þaninn kviður og bjúgur í kviðvegg. Yfirlitsmyndir af kviðarholi sýndu þykkveggja garnir, loftbólur í garnavegg, útvíkkaðar garnalykkjur og vökva eða loft í kviðarholi. Þrettán börn fengu lyfjameðferð. Bráð skurðaðgerð vegna gamarofs var gerð hjá sex bömum, en aðgerð vegna síðkominna Frá Barnaspítala Hringsins1), Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði2), röntgendeild Landspítalans3). Upplýsingar og bréfskipti: Atli Dagbjartsson, Barnaspítala Hringsins, Landspítala, 101 Reykjavík. garnaþrengsla var gerð hjá einu barni. Hjá þremur börnum á fyrra tímabilinu greindist sjúkdómurinn ekki fyrr en við krufningu. Lifun var 60% fyrra tímabilið og 78% síðara tímabilið. Höfundar telja að árangur meðferðarinnar hér á landi sé viðunandi. Könnun á hugsanlegum orsakaþáttum sjúkdómsins leiddi í ljós tengsl við meðgöngualdur styttri en 37 vikur (70%), bráðan keisaraskurð (48%), súrefnisskort við burðarmál (61%), andnauð eftir fæðingu (43%), legg í naflastrengsæð (43%) og næringu um munn (87%). Ekki virtist skipta máli hvaða næring börnunum hafði verið gefin. Höfundar telja að betur þurfi að kanna áhrif mismunandi aðferða við fæðugjöf. í faraldrinum 1987-1990 þótti það eftirtektarvert að sjö af átján börnum veiktust meðan þau lágu á deild með öðrum nýburum, sem þegar höfðu fengið þarmadrepsbólgu. Bakteríuræktanir gáfu hins vegar ekki til kynna að um smitsjúkdóm væri að ræða. Samspil þriggja orsakaþátta, fyrirburðar, súrefnisskorts við burðarmál og næringar um munn, virðist vera það sem mestu máli skiptir í orsakafræði sjúkdómsins hér á landi. INNGANGUR Þarmadrepsbólga (necrotizing enterocolitis) er vel þekktur, bráður iðrasjúkdómur hjá nýburum, sem fyrst mun hafa verið lýst í grein í þýsku meinafræðitímariti árið 1891 (1). Lýst var sjúkdómsferli nýbura, sem fékk uppköst og þaninn kvið um það bil sólarhrings gamall og lést innan tveggja sólarhringa frá fæðingu. Við krufningu fannst afmarkað bólgusvæði og rof í smáþarmi, nánar tiltekið í dausgörn, en skýring á orsökum veikindanna fékkst að öðru leyti ekki. Á næstu áratugum birtust öðru hvoru læknisfræðilegar greinar, sem lýstu sambærilegum veikindum undir ýmsum heitum, svo sem "bösartige enteritis”, "entérite nécrosante”, ”entérocolite ulcero-nécrotique”, ”colitis ulcerativa grave”,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.