Læknablaðið - 15.12.1993, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ
395
sem leita þjónustu á tímabilinu frá kl.
8.00 til kl 16.00 á virkum dögum, þar sem
göngudeild fyrir áfengissjúklinga er öllum
opin á umræddu tímabili, engar tímapantanir
viðhafðar og því ekki hægt að greina hvaða
komur eru bráðakomur og hverjar ekki.
Með almennri geðdeild er átt við legudeild
fyrir aðra geðsjúklinga en áfengis- og
vímuefnasjúklinga.
Með áfengisdeild er átt við legudeild fyrir
sjúklinga með áfengis- og vfmuefnasýki.
Með gœsludeild er átt við deild fyrir
geðsjúklinga, þar sem vistunartími er
takmarkaður við einnar nætur dvöl.
NIÐURSTÖÐUR
A árinu 1989 leituðu alls 712 einstaklingar
samtals í 1298 skipti til bráðamóttöku
geðdeildar Landspítalans. Karlar voru 434
eða 61% og konur 278 eða 39% (tafla
I). Samskipti karla voru 875 (67%) og
kvenna 423 (33%). Hver karl kom þannig að
meðaltali tvisvar sinnum og hver kona 1,5
sinnum.
Mynd 2 sýnir aldursdreifingu sjúklinga. Flestir
sjúklinganna voru á aldrinum 25-44 ára, eða
um 60%. Yngsti sjúklingurinn var 15 ára
og sá elsti 78 ára. Karlar voru fleiri í öllum
aldurshópum nema í aldurhópnum 65-74
ára, þar voru konur fleiri. Innan við 9% af
heildarfjölda voru yngri en 25 ára.
Meðalaldur allra sjúklinga ±1 SD var 39,6
(12,8) ár, meðalaldur karla 38,7 (11,9 ) ár en
kvenna 41,6 (14,2) ár og því ekki marktækur
munur á aldri karla og kvenna.
Tafla II sýnir flokkun sjúklinganna í
áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðra
geðsjúklinga eftir kynjum. Meðal áfengis- og
vímuefnasjúklinga eru karlar áberandi fleiri
eða 598 (75%) á móti 202 konum (25%).
Nánast er jöfn dreifing á milli kynja í hópi
annarra en áfengis- og vímuefnasjúklinga, þó
eru karlar ívið fleiri eða 277 (56%) á móti 221
konu (44%).
Aldursdreifing áfengis- og vímuefnasjúklinga
sýnir að hlutfallslega eru flestir sjúklinganna
á aldrinum 25-54 ára (mynd 3). Fjöldi
karla og kvenna er hlutfallslega jafn í
yngsta aldurshópnum 15-24 ára, karlar eru
hlutfallslega fleiri í 25-44 ára aldurshópnum,
Tafla I. Fjöldi samskipta og einstaklinga eftir kyni.
Einstaklingar Samskipti Samskipti á
N (%) N (%) einstakling
Karlar .... . 434 (61,0) 875 (67,4) 2,0
Konur .... . 278 (39,0) 423 (32,6) 1,5
Samtals 712 (100,0) 1298 (100,0) 1,8
Tafla II. Flokkun á komum áfengis- og vímuefnasjúklinga og annarra geðsjúklinga eftir kyni.
Áfengis- og Aðrir
vímuefnasjúklingar geðsjúklingar Allir
N (%) N (%) N
Karlar .... . 598 (74,8) 277 (55,6) 875
Konur .... . 202 (25,2) 221 (44,4) 423
Samtals 800 (100,0) 498 (100,0) 1298
%
□ Konur
Mynd 4. Hlutfallsleg dreifing 498 samskipta annarra en
áfengis- og vímuefnasjúklinga eflir kyni og aldri.
en konur í 45-74 ára aldurshópnum.
Aldursdreifing annarra geðsjúkra er sýnd á
mynd 4.
Mynd 5 sýnir fjölda samskipta á hvern
einstakling.
Tæpur helmingur samskiptanna fór fram um
helgar eða 601 af 1298 (43%).
Fjöldi samskipta er nokkuð jafn í öllum
mánuðum, en-fæst í febrúar (85) og flest í
desember (139).
Tafla III sýnir að flestir leita án tilvísunar eða