Læknablaðið - 15.12.1995, Síða 33
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
867
Irritable bowel syndrome
Faraldsfræðileg könnun á ungu fólki
á íslandi
Linda Björk Ólafsdóttir11, Hallgrímur Guöjónsson1,2’
Ólafsdóttir LB, Guðjónsson H
Irretable bowel syndrome. Epidemiological study on
young people in Iccland
Læknablaðið 1995; 81: 867-73
An epidemiological study on Irritable Bowel Syn-
drome (IBS) was done on 411 otherwise healthy
young subjects in Iceland. A questionnaire was
used, based on socalled Manning’s criteria for IBS
(Br Med J1978; 2: 633). IBS was diagnosed if two or
more of the six Manning’s criteria were positive. It
was asked if these criteria (symptoms) were associ-
ated with stress or required medical treatment. Fur-
thermore the questionnaire addressed 13 other
symptoms related to the gastrointestinal tract (GI).
For analysis we could use answers of 400 subjects,
63.2% females, 36.8% males, most of them (93.5%)
19-29 years old. 37.9% met the criteria of IBS, and
the diagnosis was significantly more often present
among women (46.6%) than men (22.5%). Usually
the IBS symptoms are related to stress, but few
received medical treatment. All the 13 other GI
symptoms are more frequent in IBS subjects than
the others and there was a significant association of
IBS with nausea, upper abdominal pain, bloating,
constipation, painless diarrhea and flatulence.
In summary, the results of this study suggest that: (i)
IBS is very common among young adults in Iceland,
(ii) prevalence in Iceland is higher than reported
elsewhere, (iii) the female:male ratio is 2:1, (iv)
stress is a precipitating factor in IBS, (v) it is suggest-
ive that few patients with IBS seek medical atten-
tion, (vi) IBS patient have, beside classical IBS
symptoms, more frequently other digestive symp-
toms, which are suggestive of both upper and lower
GI functional disorders.
Keywords: lrritable bowel syndrome, epidemiology, symp-
tomatology.
Frá "lyfjafræði lyfsala, Háskóla íslands, 2,lyflækningadeild
Landspítalans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Hallgrímur Guð-
jónsson, lyflækningadeild Landspítalans, 101 Reykjavík.
Lykilorð: Iðraólga, faraldsfræði, einkenni.
Ágrip
Irritable bowel syndrome (IBS) eða iðraólga
er langvarandi starfrænn sjúkdómur í melting-
arvegi. IBS er vafalítið einn algengasti melting-
arfærasjúkdómurinn, en þrátt fyrir þessa stað-
reynd hefur hann mjög lítið verið rannsakaður
hérlendis.
Tilgangur könnunarinnar var í fyrsta lagi að
athuga algengi IBS hjá annars heilbrigðu ungu
fólki á Islandi og í öðru lagi að kanna sérstak-
lega einstök IBS einkenni, kynjamismun og
tengsl IBS við önnur einkenni frá meltingar-
vegi og streitu.
Spurningalisti var lagður fyrir þátttakendur.
Þar var spurt um svokölluð Mannings skil-
merki sem eru; (i) Þensla á kvið, (ii) verkir í
kvið sem lagast við hægðalosun, (iii) linar
hægðir samfara kviðverkjum, (iv) tíðar hægðir
samfara kviðverkjum, (v) slím með hægðum og
(vi) ófullkomin hægðalosun. Talið var að IBS
væri til staðar ef tvö eða fleiri skilmerki voru
jákvæð. Spurt var um tengsl IBS einkenna við
streitu og hvort lyf væru tekin við slíkuni ein-
kennum. Pá var einnig leitað upplýsinga um 13
önnur einkenni tengd meltingarvegi.
Könnunin var gerð á 411 manna úrtaki, en
nothæf svör bárust frá 400 einstaklingum, 253
konum (63,2%) og 147 körlum (36,8%). Lang-
flestir (93,5%) voru á aldrinum 19-29 ára.
Rúmlega 40,8% höfðu ekkert IBS einkenni,
en 37,9% höfðu tvö eða fleiri einkenni og upp-
fylltu því skilyrðin fyrir IBS. Marktækt fleiri
konur (46,6%) en karlar (22,5%) greindust
með IBS. Oftar en ekki voru einkenni tengd
andlegu álagi. Mjög fáir (4,2%) notuðu lyf við
einkennunum. Önnur einkenni frá meltingar-
vegi, þar með talið frá efri hluta (dyspepsia),
voru marktækt algengari hjá einstaklingum
með IBS.
Við ályktum að IBS sé sennilega algengt
meðal ungs fólks á íslandi og virðist algengi hér
vera hærra en erlendis. Konur með IBS eru