Læknablaðið - 15.12.1995, Page 40
872
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
aðferðarfræði okkar því hún var sams konar og
annars staðar. Það skal þó nefnt að við spurð-
um ekki sérstaklega út í tímalengd einkenna,
né hversu væg eða slæm þau voru. Slíkar ítar-
legar upplýsingar um einkenni gæfu könnun
sem þessari vissulega enn meira gildi. Við
minnum einnig á það að okkar úrtak var valið,
en ekki slembiúrtak úr öllum þjóðfélagshóp-
um. Það er því alls ekki víst að niðurstöður
okkar megi yfirfæra á allt ungt fólk á landinu.
Við teljum helst að skýringin liggi í yngra úr-
taki í okkar könnun, en meðalaldurinn var
23,5 ár. í erlendum könnunum eru oftast allir
aldurshópar skoðaðir og meðalaldur um eða
yfir 50 ár (2,9).
Talið er að auðvelt sé að greina IBS hjá
ungum einstaklingum, því tæplega er um aðra
sjúkdóma að ræða, eða fáa, sem trufla grein-
inguna, eins og hætta er á hjá eldri einstakling-
um. Eins og áður segir var unga fólkið í okkar
könnun einsleitur hópur, allt námsmenn á há-
skólastigi. Margir þátttakendur voru sennilega
undir andlegu álagi, í erfiðu námi og prófum. I
okkar könnun, eins og erlendum könnunum,
tengdu flestir þátttakendur IBS einkennin við
andlegt álag, eða 63,3% þeirra sem töldust
hafa IBS. Þetta fólk er oft félítið og óvissa ríkir
um framtíðina þar með talið atvinnuhorfur.
Námsmenn hafa einnig oft óreglulegan vinnu-
dag sem endurspeglast í óreglulegu mataræði,
sennilega oft miður góðri og trefjalítilli fæðu.
Enn fremur má ætla að oft hvíli meira á konum
en körlum á þessum vettvangi þar sem með-
ganga oj> umhyggja fyrir börnum bætist við
námið. I þessari könnun eru konur með IBS
helmingi fleiri en karlar og er það í samræmi
við kannanir á Vesturlöndum. Karlar með IBS
eru þó fleiri en'konur í ýmsum löndum Asíu
(6). Þeir sem hafa þrjú IBS einkenni eða fleiri
eru taldir hafa slæmt IBS (9). Þessi hópur er
merkilega stór í þessari könnun, 21,4%, eða
rúmlega fimmti hver einstaklingur. Hér er enn
meira ójafnvægi milli kynja, um það bil fjórar
konur á móti hverjum karli.
Spurningar hafa vaknað um hvort áhrif
kvenhormóna á þarm og ristil gætu skýrt þessa
sláandi kynjadreifingu. IBS einkenni tengjast
vissulega oft tíðum og konur með IBS leita oft
til kvensjúkdómalækna þar sem þær telja rang-
lega að einkennin tengist innri kynfærum
(11,12).
Lyfjameðferð er sjaldgæf hjá háskólanemum
með meint IBS. Sennilega leita því fáir til
læknis vegna einkennanna, en um slíkt var
ekki spurt beint. Það er í samræmi við erlendar
rannsóknir, en áætlað er að einungis innan við
20% einstaklinga með IBS leiti til læknis (8).
Þetta bendir til þess að fólk harki af sér verkina
og ónotin, enda eru þau sennilega oft væg. Það
er þó ljóst að sumir virðast hafa umtalsverð
einkenni eins og áður segir. Má ætla að sumir
telji þetta vera eðlilega líkamssvörun við áreiti
eins og streitu. Vissulega má segja að það sé
mats- og skilgreiningaratriði hvenær líkamleg
einkenni eins og IBS einkenni, eða önnur eins
og brjóstsviði eða kvíði, séu orðin sjúkleg. Við
leggjum því áherslu á að óvarlegt og óviðeig-
andi er að tala um tæplega 40% háskólastú-
denta sem sjúklinga þótt þessi fjöldi sé gjarnan
með einhver IBS einkenni.
Við túlkun á niðurstöðum seinni hluta könn-
unarinnar, sem lýtur að öðrum einkennum frá
meltingarfærunum, höfum við engar aðrar
góðar, sambærilegar kannanir til viðmiðunar.
Tilgangurinn með þessum spurningum var að
athuga sérstaklega hvort einstaklingar með
IBS væru gjarnari á að fá þessi einkenni en þeir
sem ekki hafa IBS. Auk þess gefur könnunin
einnig almenna vitneskju um algengi melting-
arónota meðal ungra íslendinga. Auðvitað ber
að taka niðurstöðum með fyrirvara þar sem
ekki var spurt náið út í einkennin, svo sem við
hvaða aðstæður þau koma fram eða hvort þau
tengist hugsanlega öðrum sjúkdómum í eða
utan meltingafæra. Það er umhugsunarvert að
öll 13 einkennin eru algengari hjá þeim sem
hafa IBS en hjá hinum sem ekki teljast hafa
sjúkdóminn. Munurinn er vel marktækur hvað
varðar sex einkenni, það er verk um ofanverð-
an kvið, ógleði, vindgang, uppþembu, hægða-
tregðu og verkjalausan niðurgang. Það kemur
ekki á óvart að sterk tengsl eru milli IBS og
þriggja síðasttöldu einkennanna, þar er mun-
urinn á einstaklingum með og án IBS áberandi
mikill, í öllum tilvikum rúmlega þrefaldur. Það
er velþekkt að sjúklingar með IBS lýsi tregum,
hörðum hægðum sem iðulega víxlast á við nið-
urgang. Þá telja sumir að verkjalaus niður-
gangur sé sérstakt afbrigði af IBS (1). Þótt
klínísk reynsla og niðurstöður þessarar könn-
unar sýni glögglega náin tengsl þessara ein-
kenna við IBS eru þau ekki hluti af greiningar-
aðferð Mannings og félaga (5).
Ef litið er sérstaklega á einkenni frá efri
hluta meltingarvegar þá eru þau tengd IBS.
Það skal þó tekið fram að við spurðum ekki