Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1995, Síða 61

Læknablaðið - 15.12.1995, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 887 Fréttatilkynning Kæra „fóstureyðingarnefndar“ Undanfarna daga hafa verið sagðar fréttir af kæru svo- nefndrar fóstureyðingarnefnd- ar á hendur landlækni. Opin- berlega hefur ríkissaksóknari skýrt frá því að hann hafi vísað kæru nefndarinnar til Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Af þessu tilefni tekur land- læknir fram: 1. Landlæknir hefur ekki samkvæmt lögum neitt um það að segja hvort framkvæma megi fóstureyðingu sem um er beðið. Hann hefur heldur aldrei skipt sér af ákvörðun um slíkt efni. Pað eru því furðuleg ummæli formanns fóstureyðingarnefnd- ar í fjölmiðli, að skera þurfi úr ágreiningi um hver skuli hafa endanlegt vald um fóstureyð- ingu, nefndin eða landlæknir. 2. Samkvæmt gildandi lög- um í landinu bera læknar ábyrgð á læknisverkum sínum. Þeir geta einnig orðið ábyrgir fyrir að synja beiðni um læknis- verk. Svo er að sjá sem fyrr- greind nefnd telji að þessu sé ekki svona háttað um fóstur- eyðingu, sem kona óskar eftir við starfandi lækni, ef nefndin hefur áður staðfest synjun ann- ars læknis til slíkrar aðgerðar. Þá verði með öllu óheimilt að framkvæma aðgerðina. í lögum um fóstureyðingar er þetta frá- vik frá almennum reglum um ábyrgð lækna á læknisverkum sínum hvergi nefnt. Þvert á móti er málinu svo háttað, að í frum- varpi að lögum á sínum tíma (Alþingi 1974) var svofellt ákvæði: „Hafi konu verið synj- að um aðgerð á einu sjúkrahúsi, er ekki heimilt að framkvœma aðgerðina á öðru sjúkrahúsi nema leyfi nefndarinnar komi til“. Við meðferð frumvarpsins á Alþingi var ákvæði þetta fellt út. Löggjafinn hafnaði þannig beinlínis bannreglu þeirri sem nefndin telur nú felast í lögun- um. 3. Það er sérkennileg ákvörðun hjá opinberri nefnd að senda kæru á hendur land- lækni til ríkissaksóknara fyrir þær sakir að hafa haft milli- göngu um að kona, sem til hans leitaði kæmist í samband við starfandi lækni. Þá einu skýr- ingu á þessari gjörð nefndarinn- ar hefur formaður hennar gefið, að nefndin vilji ekki lifa í óvissu um réttaráhrif ákvarðana sinna. Ekki verður séð, hvaða lög- mæta hagsmuni nefndin hefur af því að fá þessari óvissu aflétt með þessum hætti. Það er svo með öllu fráleitt að hér sé á ferðinni réttlæting fyrir þeirri aðför að landlækni sem felst í opinberri kæru af þessu tilefni. 4. Svo sem að ofan greinir hefur ríkissaksóknari skýrt frá því í fjölmiðli, að hann hafi ósk- að lögreglurannsóknar á tilefni kærunnar. Æskilegt væri að hann skýrði opinberlega mark- mið þessarar rannsóknar og hvernig þau tengist þeim hags- munum sem honum er ætlað að gæta samkvæmt lögum. Ólafur Ólafsson, landlæknir sjúkrahúsdvöl þeirra stendur. Aðstaða til gistingar þarf að vera fyrir foreldra og þeir hvatt- ir til að gista með börnum sínum á sjúkrahúsum. Ýmiskonar fræðsluefni og upplýsingabæklingar fyrir for- eldra og börn þurfa að liggja frammi á sjúkradeildum um áhrif sjúkrahúsdvalar á börn og einnig um hina ýmsu sjúkdóma sem leiða til innlagnar og þá meðferð sem börnum er veitt við þeim. NOBAB hefur unnið mark- visst að því að staðlarnir séu hafðir að leiðarljósi við allar breytingar og úrbætur í málefn- um veikra og fatlaðra barna. Má til dæmis nefna hér á landi í tenglum við flutning barna- deildar Landakotsspítala á Borgarspítala. Ýmis brýn mál hafa verið leyst á sviði norrænnar sam- vinnu frá stofnun þessara sam- taka, en af mörgu er að taka og næg verkefni bíða enn úrlausn- ar. Talsvert upplýsinga- og fræðsluefni hefur verið gefið út á vegum samtakanna og lands- deilda þess. Auk þess hefur verið gefið út fræðsluefni fyrir veik börn og foreldra þeirra sem liggur frammi á barnadeildum sjúkrahúsanna. í tilefni af 15 ára afmæli NOBAB var ákveðið að veita viðurkenningu aðilum (félög- um, stofnunum, einstaklingum) sem sýnt hafa málefnum veikra barna sérstakan skilning. Verð- launin hlaut norska félagið um þarfir sjúkra barna fyrir að hafa verið fyrsta aðildarfélagið á Norðurlöndum til að halda NOBAB þing og taka NOBAB staðal í notkun á sjúkrahúsum. Helga Hannesdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.