Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1995, Page 73

Læknablaðið - 15.12.1995, Page 73
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 899 ar og afdráttarlausar. Þessi áskilnaður setur því takmörk hverju unnt er að stýra með lagareglum og því þurfa laga- reglur fulltingi siðareglna. Lög og siðferði En hvað er lagaregla? — Hver er munur á lagareglu og siðgæðisreglu. Mikilvægt viðfangsefni lög- fræðinnar er að skilgreina að- ferðir til að leiða það í ljós. Og svarið er í stuttu máli: Lagaregl- ur eru þær sem styðjast við við- urkenndar réttarheimildir. Hér gæti fylgt löng útlistun, en þetta verður að nægja. Og þá er næsta álitaefni: Er einhver munur á ásýnd þeirra reglna sem eiga sér þennan uppruna og kallast lagareglur og hinna sem kenndar eru við siðferði. Svarið er játandi og þetta má meðal annars hafa til marks: Siðferðisreglur lúta flestar að mjög mikilvægum gildum í sam- skiptum manna. Þetta á einnig við um lagareglur, en engan veginn allar. Oft er málum svo háttað að lagareglur eru einung- is nánari útfærsla á tiltekinni grunnreglu, oftast siðferðilegri sem hvergi er orðuð. Þannig stendur til dæmis hvergi berum orðum í lögum að menn eigi rétt til að lifa og njóta friðhelgi; hins vegar er fjöldi reglna sem slá skjaldborg um þetta gildi (8). Siðareglur breytast alla jafna ekki ört. Þar eiga þær samleið með þeim sem kallaðar eru meginreglur laga. Annað verð- ur hins vegar uppi á teningnum þegar kemur að nánari útfærslu í löggjöfinni — þá eru reglur oft síbreytilegar. Brot á siðferðisreglu er bund- ið við vilja manns. Óviljandi brot hans á siðferðisreglu er af- sakað — lagabrot hans er í mesta lagi réttlætt. Afleiðingin verður sú að siðferðisreglan skírskotar til hugarfarsins, en lagareglan til háttseminnar. Aðhald siðareglu felst öðru fremur í skírskotun til mikilvæg- is hennar; aðhald lagareglunnar til viðurlaganna. Þetta er til marks um að lagareglunni er framfylgt með skipulegu að- haldi, sem birzt getur bæði beint og einnig óbeint, iðulega með valdbeitingu. Nú eru siðareglur ekki einnar gerðar. Sumar leggja á menn mjög ríkar skyldur svo sem þau boð- orð að vega ekki mann, stela ekki og bera ekki ljúgvætti, virða friðhelgi manna og segja satt. Þetta eru reglur sem hafa ber í heiðri ef samfélag manna á að haldast í viðunanlegu horfi. Sá sem virðir þær ekki má kall- ast illmenni svo að tæpitungu- laust sé talað. En sá sem lætur þetta nægja verður ekki kallað- ur dyggðugur maður; hann verður að gera meira; virða rétt- mæta hagsmuni annarra, sýna umhyggju og hjálpsemi. Og svo er allvíðtækt svið mannlífsins utan siðareglna. Lagareglur veita taumhalds- skyldum fulltingi þannig að á þeim sviðum eiga laga- og sið- ferðisreglur samleið. Hins veg- ar veita þær verknaðarskyldum takmarkaðri stuðning svo að þar skilur. Stundum er reynt að setja lög á slíkum sviðum, til dæmis á sviði fjölskyldumála — má þar nefna reglur um um- gengnisrétt — en það er dæmt til að mistakast þegar raunveru- lega reynir á. Þær reglur sem afmarka rétt- indi og skyldur lækna lúta ein- mitt að mikilvægum gildum og skyldur sem á lækna eru lagðar eru einkum verknaðarskyldur sem lagareglur veita almennt minna fulltingi. Þetta birtist óvíða með gleggri hætti en í þeim ákvæðum læknalaga sem rakin hafa verið. Ástæðan er augljós. Starf læknisins er þess eðlis — þar á meðal samskipti hans við sjúklinga — að því eru veruleg takmörk sett að ákvarða réttindi þeirra og skyldur með lagareglum. Hér verða siðareglur að koma til viðbótar og til þeirra skírskota mörg þeirra orða sem til var vitnað úr læknalögum. Lagareglur eru síðan einráð- ar á því sviði þar sem engar siða- reglur eru (9). Stjórnsýsla og læknisstörf En fleira veldur hér vanda en þau takmörk sem eðli laga- reglna setur stjórn á samskipt- um manna. Stundum er málum skipað þannig með lögum að álitaefni rísa. Ýmislegt í lög- bundnu skipulagi heilbrigðis- mála kann að vekja spurningar um réttindi og skyldur lækna. Þannig kunna ýmsar spurningar að vakna þegar stjórnsýslu- nefndum er fengið íhlutunar- vald um störf lækna. Sem dæmi má nefna 28. gr. laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barn- eignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Þar segir: „Rísi ágreiningur um hvort framkvœma skuli fóstureyð- ingu eða ófrjósemisaðgerð, skal málinu tafarlaust vísað til landlæknis og skal hann tafarlaust leggja málið undir úrskurð nefndar, sem skipuð skal í þeim tilgangi að hafa eftirlit með framkvæmd lag- anna. “ Nefnd þessi gegnir tvíþættu hlutverki: annars vegar að úr- skurða í ágreiningi um það hvort eyða skuli fóstri, eða framkvæma ófrjósemisaðgerðir og hins vegar hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Sá ágreiningur virðist einkum geta risið ef synjað er um fóstur- eyðingu þar sem reglur veita svigrúm til að meta félagslegar ástæður, sbr. 9. gr. d-lið lag- anna.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.