Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 51
KLÓFEN-L (díklófenak) - langvirkt gigtarlyf Klófen-L (díklófenak) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Forðahylki; M 01 A B 05 R E Hvert forðahylki inniheldur: Diclofenacum INN, natríumsalt, 100 mg. Eiginleikar: Lyfið minnkar myndun prostaglandína í líkamanum. Það hefur bólgueyðandi og verkjastill- andi verkun. Aðgengi lyfsins eftir inntðku er nálægt 50%. Þetta lyfjaform hefur forðaverkun og nær blóðþéttni lyfsins hámarki 3-7 klst. eftir inntöku, sé lyfið gefið með mat, en verkun helst i 12-24 klst. Próteinbinding í blóði er 99,7%. Lyfið skilst út sem umbrotsefni, um 60% í þvagi og um 30% í saur. Ábendingar: Gigtsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis rheumatoides), hryggikt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöðvagigt. Verkir. Þvagsýrugigt. Frábendingar: Sár í maga eða skeifugörn. Lyfið má ekki gefa sjúklingum sem fá astma, nefrennsli eða ofsakláða af acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur. Alvarleg hjartabilun og nýmasjúkdómur. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Lyf, sem hindra prostaglandinframleiðslu, geta haft ýmis áhrif á fóstur svo sem leitt til háþrýstings í lungnablóðrás og öndunarerf- iðleika eftir fæðingu. Þau geta einnig aukið blæðingarhættu vegna áhrifa á blóðflögur og valdið nýmaskemmdum, sem leiða til skertrar þvagframleiðslu eftir fæðingu og minnkun á legvatni. Lyf af þessum flokki ber því að forðast á meðgöngu, en einkum er mikilvægt að nota lyfið ekki á síðasta þríöjungi meðgöngu og alls ekki síðustu daga fyrir fæðingu. Lyfið skilst út í brjóstamjólk, en óliklegt er að lyfjaáhrifa gæti hjá barni á brjósti við venjulega skömmtun lyfsins. Aukaverkanir: í upphafi meðferðar fá um 10% sjúklinganna óþægindi frá meltingarfærum, sem venjulega hverfa á fáeinum dögum þrátt fyrir áframhaldandi töku lyfsins. Algengar(> 1%): Höfuðverkur, svimi. Magaverkir, ógleði, uppkðst, niðurgangur. Útbrot. Sjald- gælar: Bjúgur. Ofnæmi. Þreyta. Meltingarsár, blæðing frá meltingarfærum. Ofsakláði. Trufluð lifrarstarfsemi. Mjóg sjaldgæl- ar(<0,1%): Fækkun blóðflagna, hvitra blóðkoma og/eða rauðra blóðkorna. Sjóntruflanir, eyrnasuða, svefntruflanir, óróleiki, krampar. Rugl. Blöðrumyndun á húð, regnbogaroðsótt (erythema multiforme), Steven-Johnson heilkenni, Lyells heilkenni, hárlos, Ijósóþol. Truflað húðskyn. Bráð nýmabilun, blóð i þvagi, nýma- og skjóðubólga, nýrungaheilkenni (nephrotic syndrome). Milliverkanir: Lyfið virðist hvorki hafa áhrif á lyfjahvörf segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aðgát ef slík lyf og díklófenak eru gefin samtímis, vegna mikillar próteinbindingar í blóði. Blóðþéttni litíums og dígoxíns hækkar ef díklófenak er gefið samtímis. Háskammta metótrexatgjöf samtimis gjöf díklófenaks getur valdið alvarlegum eiturverkunum vegna minnkaðs útskilnaðar á metótrexati. Varúð: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með colitis ulcerosa, Crohns sjúkdóm, truflaða blóðmyndun.blæðingartilhneigingu eða hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar við gjöf lyfsins ef sjúklingar eru með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi (t.d. aldraðir), taka segavarnalyf, þvagræsilyf (blóðkalium) eða lyf við sykursýki. Við langtímameðferð þarf að fylgjast með lifrarstarfsemi og blóðhag. Porfyria. Athugið: Eftir inntöku 100 mg lyfsins hjá mjólkandi konum fannst lyfið ekki í mjólk (greiningarmörk: 10 ng/ml). Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er eitt forðahylki á dag, með mat. Skammtastærðir handa börnum: Þetta lyfjaform er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verö 1. sept. 1995: Forðahylki 100 mg: 10 stk. - 1033 kr.; 30 stk. - 2738 kr.; 100 stk. - 8474 kr. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.