Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 42
588
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
ari grein og í tuttugustu og níundu grein, skal
Fastanefndin um lífsiðfræði (CDBI) annast
eða hver sú nefnd önnur sem ráðherranefndin
tilnefnir.
2. An þess að skert séu sértæku ákvæðin í
tuttugustu og níundu grein, getur hvert aðild-
arríki Evrópuráðsins, svo og hver aðili þessa
samnings, sem ekki er aðili að Evrópuráðinu,
átt fulltrúa og farið með eitt atkvæði í nefnd-
inni, þegar hún annast um verkefni þau, sem
henni eru falin með þessum samningi.
3. Sérhvert ríki, sem vísað er til í þrítugustu og
þriðju grein eða ríki, sem ekki er aðili að samn-
ingnum og boðið er að gerast aðili að samn-
ingnum í samræmi við ákvæði þrítugustu og
fjórðu greinar, getur átt aðild að nefndinni,
með því að eiga þar áheyrnarfulltrúa. Ef
Evrópusambandið er ekki aðili að samningn-
um, getur það átt aðild að nefndinni, með því
að eiga þar áheyrnarfulltrúa.
4. í því skyni að fylgjast með vísindaþróun skal
nefndin endurskoða þennan samning eigi síðar
en fimm árum eftir að hann tekur gildi og síðan
á því bili, sem nefndin kann að ákveða.
5. Sérhverja tillögu um breytingu á samningi
þessum og sérhverja tillögu um viðbótarsamn-
ing eða um breytingu á viðbótarsamningi, sem
borin er fram af samningsaðila, nefndinni eða
ráðherranefndinni, skal senda aðalfram-
kvæmdastjóra Evrópuráðsins og skal hann
senda þær áfram, að minnsta kosti tveimur
mánuðum fyrir fund í nefndinni sem vísað er til
í annarri málsgrein, til aðildarríkja Evrópu-
ráðsins, Evrópusambandsins, til hvers þess að-
ila, sem undirritað hefir samninginn, til allra
samningsaðila og til hvers þess ríkis, sem boðið
hefir verið að undirrita samning þennan í sam-
ræmi við þrítugustu og þriðju grein og til hvers
þess ríkis, sem boðið hefir verið að gerast aðili
að honum í samræmi við ákvæði þrítugustu og
fjórðu greinar.
6. Nefndin skal fjalla um tillöguna eigi fyrri en
tveimur mánuðum eftir að hún hefir verið send
áfram af aðalframkvæmdastjóranum í sam-
ræmi við fimmtu málsgrein. Skal hún hljóta tvo
þriðju hluta greiddra atkvæða eða meira og
skal þá senda textann til ráðherranefndarinnar
til samþykktar. Þegar hún hefir samþykkt
hann, skal senda texta þennan til aðildarríkj-
anna til fullgildingar, viðurkenningar eða sam-
þykktar.
7. Sérhver breyting tekur gildi, að þvíervarðar
þá samningsaðila, sem hafa viðurkennt hana, á
fyrsta degi þess mánaðar, er hefst eftir að liðnir
eru þrír mánuðir frá þeim degi, að fimm aðilar
hið minnsta, þar með talin að minnsta kosti
fjögur aðildarríki Evrópuráðsins, hafa tilkynnt
aðalframkvæmdastjóranum um viðurkenningu
sína. Að því er varðar hvern þann samnings-
aðila annan, sem síðar viðurkennir breytingu,
skal hún taka gildi á fyrsta degi þess mánaðar,
sem hefst eftir að liðinn er einn mánuður frá
þeim degi, að samningsaðilinn hefir tilkynnt
um viðurkenningu sína til aðalframkvæmda-
stjóra Evrópuráðsins.
XIV. Lokaákvæði
Þrítugasta og þriðja grein (Undirritun, fullgild-
ing og gildistaka)
1. Samningur þessi skal liggja frammi til undir-
ritunar fyrir aðildarríki Evrópuráðsins, þau
ríki sem ekki eru aðildarríki Evrópuráðsins er
hafa tekið þátt í að semja hann og Evrópusam-
bandið.
2. Samning þennan skal fullgilda, viðurkenna
eða samþykkja. Fullgildingar-, viðurkenning-
ar- eða samþykktarskjöl skulu vera í vörslu
aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins.
3. Samningur þessi skal taka gildi á fyrsta degi
þess mánaðar, er hefst eftir að liðnir eru þrír
mánuðir frá þeim degi, að fimm ríki, þar með
talin að minnsta kosti fjögur aðildarríki
Evrópuráðsins, hafa lýst samþykki sínu við að
vera bundin af samningnum í samræmi við
ákvæði annarrar málsgreinar þessarar greinar.
4. Að því er varðar hvern annan aðila, sem
síðar lætur í ljósi samþykki sitt við að vera
bundinn af honum, skal samningurinn gilda frá
fyrsta degi þess mánaðar, er hefst eftir að liðnir
eru þrír mánuðir frá þeim degi, að fullgilding-
ar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjölum
hefir verið komið í vörslu.
Þrítugasta og fjórða grein (Ríki utan Evrópu-
ráðsins)
1. Eftir að samningur þessi hefir tekið gildi,
getur Ráðherranefnd Evrópuráðsins, eftir
samráð við samningsaðilana, boðið hvaða ríki
sem er, sem ekki er aðili að Evrópuráðinu, að
gerast aðili að samningi þessum, samkvæmt
ákvörðun er tekin er með þeim meirihluta,
sem tilskilinn er í d-lið tuttugustu greinar
Stofnskrár Evrópuráðsins og með samhljóða
atkvæðum fulltrúa samningsríkjanna sem rétt
eiga til setu í ráðherranefndinni.
2. Að því er varðar hvert það ríki sem gerist
aðili, skal samningurinn taka gildi á fyrsta degi