Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 18
CÍFLOX
( cíprófloxacín )
-breiðvirkt sýklalyf
Cíflox (cíprófloxacín)
Framleiöandi: Omega Farma ehf. Töflur; J 01 M A 02 R S Hver tafla inniheldur: Ciprofloxacinum INN, klóríö,
mónóhýdrat, samsvarandi Ciprofloxacinum INN 250 mg eða 500 mg. Eiginleikar: Lyfið er breiðvirkt sýklalyf af
kínólónflokki. Verkunarmáti er að nokkru óþekktur, en lyfið blokkar DNA-gýrasa, sem er sýklum nauðsynlegur til
frumuskiptingar. Lyfið frásogast um 70-80% frá meltingarvegi. Hámarks blóðþéttni næst eftir 2 klst. og helmingun-
artími í blóði er um 4 klst. Um það bil helmingur lyfsins útskilst óbreytt í þvagi, en afgangurinn sem niðurbrotsefni í
þvagi, galli og saur. Lyfið verkar á margar sýklategundir, þar á meðal Gram-neikvæða stafi (einnig Pseudomonas
aeruginosa, Branhamella catarrhalis); einnig á Gram-jákvæða sýkla. Óviss verkun er á loftfælna sýkla. Mjög virkt
gegn Neisseria gonorrhoea. Ábendingar: Sýkingar af völdum næmra sýkla, t.d. þvagfærasýkingar, iðrasýkingar
(salmonella o.fl.), sýkingar í blöðruhálskirtli. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð:
Lyfið á ekki að gefa börnum á vaxtarskeiði vegna möguleika á brjóskskemmdum af völdum lyfsins. Einnig ber að
gæta varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með tilhneigingu til krampa. Aukaverkanir: Ógleði, uppköst og óljós
magaóþægindi. Stöku sinnum niðurgangur. Svimi, höfuðverkur og þreytutilfinning. Stöku sinnum sjóntruflanir og
einstaka tilvik ofskynjana. Húðútbrot. Tímabundin hækkun lifrarenzýma hefur sést. Kristallamyndun i þvagi kemur
fyrir, ef þvag er basískt, en virðist þó ekki valda nýrnaskemmdum. Milliverkanir: Lyfið hindrar niðurbrot teófýllíns
og skyldra lyfja og hækkar því blóðþéttni þeirra. Ef nauðsynlegt er að gefa lyfin saman, þarf að fylgjast vel með
blóðþéttni teófýllíns. Sýrubindandi lyf, sem innihalda magnesíum- eða alúminíumhýdroxíð, geta hindrað frásog
lyfsins. Athuglð: Ónæmi getur myndast meðan á lyfjagjöf stendur, t.d. við beinasýkingar. Skammtastærðir
handa fullorðnum: Þvagfærasýkingar: 100-250 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Lekandi: 250 mg gefið í einum
skammti einu sinni. Iðrasýkingar: 500 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Beinasýkingar: 750 mg tvisvar til þrisvar
sinnum á dag. - Skammta verður að minnka, ef kreatínínclearance er undir 30 ml/mínútu. Skammtastærðir
handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð 1. sept. 1995:
Töflur 250 mg: 10 stk. - 1403 kr.; 20 stk. - 2474 kr.; 100 stk. - 12097 kr.
Töflur 500 mg: 10 stk. — 2682 kr.; 20 stk. — 4777 kr.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafelag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990