Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 40
586 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 samnings þessa og annarra lögskipaðra ákvæða, sem tryggja vernd mannsins. Sextánda grein (Verndun einstaklings sem gengst undir rannsókn) Rannsókn á manni má aðeins gera ef öllum eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: i. að enginn annar jafn virkur kostur rann- sóknar á mönnum sé fyrir hendi, ii. að áhættan, sem viðkomandi mannvera kallar yfir sig, sé ekki í röngu hlutfalli við hugs- anlegar hagsbætur af rannsókninni, iii. að rannsóknaráætlunin hafi verið sam- þykkt af lögbærum hópi, að lokinni óháðri könnun á vísindagildi hennar, þar með talin markmið rannsóknarinnar og siðfræðilegur að- gengileiki hennar, iv. að þeir, sem gangast undir rannsóknina, hafi verið fræddir um réttindi sín og um örygg- isráðstafanir til verndar þeim, sem lög mæla fyrir um, v. að nauðsynlegt samþykki, sem mælt er fyrir í fimmtu grein, hafi verið gefið skýlaust, sértækt og að það sé skjalfest. Slíkt samþykki má draga til baka hvenær sem er. Sautjánda grein (Vernd mannvera sem ekki eru hæfar til að veita samþykki fyrir rannsókn) 1. Því aðeins má gera rannsókn á mannveru, sem ekki er hæf til að veita samþykki það, sem mælt er fyrir um í fimmtu grein, að öllum eftir- farandi skilyrðum sé fullnægt: i. að fullnægt sé skilyrðunum sem mælt er fyrir um stafliðum i til iv í sextándu grein, ii. að niðurstöður rannsóknarinnar geti mögulega orðið heilbrigði viðkomandi beint til góðs, iii. að engar jafn virkar rannsóknir verði gerðar á einstaklingum, sem eru hæfir til að veita samþykki, iv. að nauðsynlegt samþykki, sem mælt er fyrir í sjöttu grein, hafi verið gefið skýlaust, sértækt og skriflega og v. að viðkomandi mannvera mótmælir ekki. 2. Þegar niðurstöður rannsóknarinnar geta mögulega ekki orðið heilbrigði viðkomandi mannveru beint til góðs, má leyfa slíka rann- sókn í undantekningartilvikum og háð vernd- arskilyrðum, sem mælt er fyrir um í lögum, að því tilskildu að fullnægt sé skilyrðunum í fyrstu málsgrein, stafliðunum i, iii, iv og v hér að ofan og háð eftirfarandi viðbótarskilyrðum: i. að rannsóknin hafi að markmiði að bæta marktækt vísindalegan skilning á ástandi, sjúk- dómi eða röskun einstaklingsins, í því skyni endanlega að afla niðurstaðna, sem gætu orðið til hagsbóta fyrir viðkomandi mannveru eða aðrar í sama aldursflokki eða eru haldnar sama sjúkdómi eða röskun eða búa við sama ástand, ii. að rannsóknin feli aðeins í sér minniháttar áhættu og minniháttar álag fyrir viðkomandi einstakling. Atjánda grein (Rannsóknir á fósturvísum í glasi) 1. Þar sem rannsóknir á fósturvísum í glasi eru leyfðar með lögum, skulu í þeim tryggja nægj- anlega vernd fyrir fósturvísinn. 2. Bönnuð er myndun fósturvísa í vísindaskyni. VI. Brottnám líffæra og vefja úr lifandi gjöfum í því skyni að flytja þau í aðra Nítjánda grein (Almenn regla) 1. Brottnám líffæra eða vefja úr lifandi manni, í því skyni að flytja þau í aðra, má einvörðungu gera vegna lækningar á þeganum og þegar ekki er í boði neitt heppilegt líffæri eða vefur úr látnum manni og að engin jafn virk valmeðferð við lækningar er til. 2. Nauðsynlegt samþykki, sem mælt er fyrir um í fimmtu grein, verður að gefa skýlaust og sértækt, annað hvort skriflega eða fyrir opin- berum aðilum. Tuttugasta grein (Verndun þeirra sem ekki eru hæfir til að samþykkja brottnám líffæris) 1. Engin líffæri eða vefi má nema brott úr þeim, sem ekki er hæfur til að veita samþykki í samræmi við fimmtu grein. 2. Hægt er að leyfa að vefur sem endurnýjar sig, sé numinn brott úr mannveru sem er ekki hæf til að veita samþykki, í undantekningar- tilvikum og háð verndarskilyrðum sem mælt er fyrir um í lögum, að því tilskildu að eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt: i. að enginn samrýmanlegur gjafi er tiltækur, sem er hæfur til þess að veita samþykki, ii. þeginn er bróðir eða systir gjafans, iii. í gjöfinni verður að felast möguleiki á að lífi þegans verði bjargað, iv. leyfið sem tiltekið er í annarri og þriðju málsgrein sjöttu greinar hafi verið gefin sér- tækt og skriflega, eins og mælt er fyrir um í lögum, v. mögulegur gjafi mótmæli ekki. VII. Bann við fjárhagslegum ágóða og eyðing brottnumins líkamshluta Tuttugsta og fyrsta grein (Bann við fjárhagsleg- um ágóða)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.