Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 601 Tillögur Siðaráðs landlæknis Varðandi: Siðanefndir og siðaráð — tillaga að nýju skipulagi Siðaráð landlæknis hefur nú starfað í rúman áratug og í reynd hefur það gegnt tvöföldu hlutverki, bæði sem vísinda- siðanefnd og siðaráð, þar sem ýmis siðferðileg vandamál tengd heilbrigðisþjónustu hafa verið til almennrar umfjöllunar og álitsgerðar. Málefni vísinda- siðanefnda hér á landi er í nokkrum ólestri, allmargar slík- ar nefndir eru starfandi, bæði á vegum fagfélaga og sjúkrahúsa, en lítið sem ekkert samráð eða samstarf er þeirra í milli. Engar samræmdar vinnureglur hafa verið samdar þeim til fulltingis. Siðaráð hefur áður fjallað um þessi mál, meðal annars með bréfi frá 2. júní 1994 og bréfi landlæknis til þáverandi heil- brigðisráðherra frá 13. júní 1994. Nú eins og þá er samstaða um að ástæða sé til þess að aðskilja starfsemi vísindasiðanefndar og siðaráðs. Að þessu hníga all- mörg rök. Vísindasiðanefndir eiga að fjalla um vísindarann- sóknir frá siðferðilegu sjónar- miði, en faglegt mat vegur þar mjög þungt. Pörf er á lands- nefnd um þessi efni. Þátttaka íslendinga í fjölþjóðlegum rannsóknum er mjög vaxandi og undantekningalaust gera þeir sem að slíkum rannsóknum standa kröfur um að fjallað sé um rannsóknina í hverju landi af viðurkenndri, opinberri vís- indasiðanefnd. Mjög mikilvægt er að nefnd af þessu tagi sé þverfagleg, að minnsta kosti með þátttöku lækna, siðfræðinga, hjúkrunar- fræðinga og lögfræðinga. Slík siðanefnd yrði að starfa í náinni samvinnu við þverfaglegar siða- nefndir sjúkrahúsa, í heilsu- gæslu og víðar, sjá að neðan. Siðaráð gegnir hins vegar öðru hlutverki. Það þarf einnig að vera landsráð og skipað fólki með mismunandi menntun og reynslu. Hlutverk siðaráðs yrði umfjöllun um ýmis siðferðileg álitsefni, stefnumótun og um þau mál, samningu siðareglna og svo framvegis. Má ætla að stefnumótunarhlutverkið verði og eigi að vera mikilvægasta verkefni ráðsins. Fólk í slíku siðaráði getur haft allt annan bakgrunn, reynslu og menntun en fólk sem hæfast væri til setu í vísindasiðanefnd. I reynd er starfsemi þessara tveggja nefnda/ráða svo ólík, að full ástæða er til að skilja þau að. Því er lagt til að komið verði á nýrri skipan þessara mála hér- lendis og er nánari grein gerð fyrir þeim hér á eftir. 1. Vísindasiðanefnd. Nefndin verði landsnefnd og skipuð af heilbrigðisráðherra og menntamálaráðherra. Hún er/yrði þverfagleg. Megin- hlutverk hennar yrði umsögn um vísindarannsóknir. A stærri sjúkrahúsum og í heilsugæslu störfuðu síðan sérstakar þverfaglegar siða- nefndir. Siðanefndar yrði einnig þörf til að fjalla um nemendarannsóknir í há- skólanum og síðar verður líklega þörf sérstakrar siða- nefndar til að fjalla um rann- sóknir á fólki sem gerðar eru af sálfræðingum, félagsfræð- ingum, félagsráðgjöfum og fleirum, án tengsla við heil- brigðisstofnanir. Hinarýmsu „undirnefnir“ fjölluðu um rannsóknir hver á sínu sviði. Unnt væri þó að áfrýja úr- skurðum til landsnefndar. Landsnefndin setti sjálfri sér og öðrum nefndum vinnureglur sem yrðu byggð- ar á alþjóðlegum sáttmálum á borð við Helsinkisáttmál- ann, Nurnbergssamþykktina og ráðleggingar ráðherran- efndar Evrópuráðsins. Fram hafa komið hugmyndir um að öllum rannsóknum á mönnum sem gera eigi á Is- landi skuli vísað til lands- nefndarinnar, sem síðan vísi þeim áfram til hinna ýmsu „undirnefnda". Landsnefnd- in hefði þannig yfirsýn yfir klínískar rannsóknir í land- inu og gæti því betur metið hvort um endurtekningu væri að ræða og samræmt vinnubrögð. Til þess þyrfti landsnefndin að sjálfsögðu starfsmann/menn. 2. Siðaráð. Yrði einnig lands- ráð, en skipað af landlækni. Eins og áður hefur komið fram yrði hlutverk ráðsins fyrst og fremst stefnumótun um ýmis siðferðileg álitamál, er lúta að heilbrigðisþjón- ustu, samningu vinnureglna /siðareglna og fleira. Ráðið yrði þverfaglegt eins og áður. Á vegum fagfélaga, sjúkrahúsa og annarra heil- brigðisstofnana starfa og geta starfað siðaráð með hliðstæð hlutverk. Mikilvægt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.