Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 58
602 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 er að gott samstarf ríki á milli þessara ráða og við siðaráð landlæknis. Leiðbeiningar um mál á borð við meðferð við lok lífs, upplýst sam- þykki til vísindarannsókna og aðgerða, og fleira séu samræmdar í öllu heilbrigð- iskerfinu. Ljóst er að sam- vinna verður einnig milli vís- indasiðanefndar og siðaráðs, auk þess sem starf tölvun- efndar mun áfram tengjast starfi vísindasiðanefndar. Þörf á vísindasiðanefndum og siðaráðum á vegum stofnana, fagfélaga og fleiri mun verða ljósari á næstu árum. Mikilvægt er að sú þróun falli að því grund- vallarmynstri sem hér er lagt fram. Siðaráð landlæknis lítur enda svo á, að með tilkomu þeirra tveggja nefnda sem hér eru gerðar tillögur um, sé mikil- vægt skref stigið í þróun þessara mála hérlendis. Með þessu gæti tölvunefnd einnig einbeitt sér meira að því hlutverki, sem lög kveða á um, en vegna skipulags- leysis í þessum málum hefur hún í æ ríkara mæli þurft að starfa sem dæmigerð vísinda- siðanefnd. Landlæknir Aðgangur að sjúkraskrám og persónulegum upplýsingum Nýlega hafa verið til umsagn- ar hjá landlækni óskir trygg- ingafélaga um aðgang að sjúkraskrám og áform Trygg- ingastofnunar ríkisins um ítar- legri skráningu persónulegra upplýsinga um þá einstaklinga sem leggjast inn á sjúkrastofn- anir. Það er skoðun landlæknis að trúnaðarlæknir tryggingafélaga eigi að geta fengið afrit af sjúkraskrá sjúklings hafi sjúk- lingur gefið samþykki sitt fyrir því. Sá aðgangur á að takmark- ast við þann hluta sjúkraskrár- innar sem getur varðað viðkom- andi slys eða tjón. Þannig ber trúnaðarlækni ekki að fá upp- lýsingar um svo sem fósturlát, lyfjanotkun eða botnlangaupp- skurð, ef af slysinu hlaust háls- áverki eða fótbrot. Það er því viðkomandi læknis sem hefur sjúkraskýrsluna undir höndum að ákveða hvaða hluta sjúkra- skrárinnar trúnaðarlæknir getur fengið. Landlæknir telur rétt að trún- aðarlæknir leiti eftir skriflegu samþykki sjúklingsins fyrir því að tiltekinna sjúkragagna sé afl- að. Það sé ekki gert með stöðl- uðu eyðublaði heldur með sér- stakri yfirlýsingu þar sem skýrt kemur fram hvaða upplýsinga er verið að óska. Það skal árétt- að að þær upplýsingar sem trún- aðarlæknir fær á þennan hátt eiga ekki undir nokkrum kring- umstæðum að vera aðgengileg- ar öðrum starfsmönnum við- komandi fyrirtækis. Varðandi óskir Trygginga- stofnunar ríkisins um ítarlegri upplýsingar um sjúklinga á sjúkrastofnunum og áform stofnunarinnar er lúta að því að halda skrár um sjúklinga á sjúkrastofnunum sem eru á föst- um fjárlögum svo unnt sé að tryggja að lífeyrisgreiðslur þeirra komi til greiðslu vistun- arkostnaðar eftir þeim reglum sem þar um gilda, vill landlækn- ir taka fram að hann telur að þegar sé gengið of langt í söfnun á persónulegum upplýsingum um sjúklinga og vistmenn á sjúkrastofnunum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Víðast í þeim löndum sem við miðum okkur við fá stofnanir sem eru sambærilegar við Trygginga- stofnun ríkisins aðeins upplýs- ingar um aldur, kyn, meðferð, legu, lyfjanotkun og svo fram- vegis. En þess er gætt mjög stranglega að ekki sé unnt að rekja þær upplýsingar sem um ræðir til viðkomandi einstakl- inga. Áform Tryggingastofnunar ríkisins um frekari söfnun upp- lýsinga eru ekki aðeins varhuga- verð úr frá sjónarmiðum um persónuvernd, heldur skal jafn- framt bent á að á flestum sjúkra- húsum, öldrunar- og langlegu- stofnunum er til dæmis hlutur lífeyristrygginga í greiðslu vist- unarkostnaðar sáralítill eða langt innan við 2% af heildar- rekstrarkostnaði stofnananna. Landlæknir leyfir sér að efast um að sú mikla vinna sem lögð er í að finna greiðsluskyldu hvers sjúklings og innheimtu standi undir sér. Nær væri því að leita annarra leiða til þess að tryggja þátttöku lífeyrisþega í greiðslu vistunarkostnaðar. í slíkum tilvikum getur ekki verið um að ræða aðstæður þar sem hagsmunir þjóðfélagsins verði settir ofar rétti einstaklingsins. Þá er einfaldlega verið að fórna of miklu fyrir lítið. Þetta getur landlæknir ekki samþykkt. Landlæknir vill vekja athygli á að í nýlegri lagasetningu um réttindi sjúklinga í nágranna- löndum okkar er aðaláherslan lögð á að tryggja einstaklings- bundinn rétt. Svör við fyrir- spurnum embættisins um hvernig brugðist yrði við óskum frá aðilum sambærilegum við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.