Læknablaðið - 15.10.1996, Blaðsíða 70
738
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
benda á leiðir til að bœta okkur
upp hin lágu laun.
Það er alkunna að mörgum
opinberum starfsmönnum erséð
fyrir bílakosti af þeim stofnun-
um, sem þeir vinna við. - Það er
œtlast til, að við mœtum á spítal-
anum á vaktdegi okkar, hvort
heldur á nóttu eða degi, með sem
styztum fyrirvara. Viljum við
því mælast til, að Landspítalinn
greiði bílakostnað okkar í sam-
rœmi við það, sem margar aðrar
ríkisstofnanir gera.
Okkur er greiddur húsaieigu-
styrkur, sem nemur kr. 450,00 á
mánuði, eða sem svarar leigu
eins sœmilegs herbergis. Eðli-
legast vœri, að fastráðnir iœknar
spítalans hefðu embœttisbústað
á lóðinni, en fyrst svo er ekki,
œtti að greiða húsaleigu þeirra
að fullu.
Þá viljum við mœlast til, að
okkur verði veitt leyfi frá störf-
um með fullum launum nokkra
mánuði, t.d. þriðja hvert ár,
ásamt styrk til utanfarar, enda
vœru ferðirnar að sjálfsögðu
farnar til að kynnast nýjungum í
lœknisfræði.
Virðingarfyllst.
Sigurður Samúlesson (sign.)
Friðrik Einarsson (sign.)“
Okkur er kunnugt um, að
stjórnarnefnd Ríkisspítalanna
hefir haft bréfþetta til meðferðar
áfundi sínum. Þann 7. þ.m. fór-
um við því til fundar við for-
manns nefndarinnar, Vilmund
landlœkni Jónsson, til þess að
grennslast eftir undirtektum
nefndarinnar. Landlæknir lét
ótvírœtt í Ijós, að hann mundi
ekki leggja til við nefndina, að
hún kæmi sérstaklega til móts
við nein af tilmælum okkar,
heldur vísaði hann okkur til heil-
brigðismálaráðherra og fjár-
málaráðherra með erindið.
Við viljum því hér með leyfa
okkur að senda yður, herra heil-
brigðismálaráðherra, erindi
þetta með ósk um, að reynt verði
á sanngjarnan hátt að leysa úr
þessari málaleitun.
Jafnframt höfum við sentfjár-
málaráðherra, hr Eysteini Jóns-
syni, samhljóða bréf.
Virðingarfyllst.
Sigurður Samúelsson
Friðrik Einarsson.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið
Reykjavík 3. september 1953.
Eftirviðtöku bréfsyðar, herra
lœknir, og Sigurðar Samúels-
sonar, dags. 11. jan. þ.á., þar
sem þið farið fram á kjarabætur,
m.a. mánaðarlaun ykkar verði
hækkuð um kr. 2.000,00, tekur
ráðuneytið fram, að það getur
eigi orðið við þessari málaleitan,
en hefur hinsvegar ákveðið, að
greiða ykkur hvorum um sig kr.
12.000,00 á ári í bílastyrk og
mun skrifstofu ríkisspítalanna
falið að annast þœr greiðslur frá
1. jan. sl. að telja.
Steingrímur Steinþórsson
(sign.)
Gústav A. Jónasson (sign.)
Til
hr. læknis Friðrik Einarssonar,
Reykjavík
Um 100 krónurnar sem Sig-
urður segist hafa fengið greidd-
ar fyrir næturvaktir, er það ekki
rétt. Sjá eftirfarandi yfirlýsingu:
„Það vottast hér með aðfrá og
með 1. janúar 1953 samþykkti
dóms- og kirkjumálaráðherra
greiðslu á bílastyrk kr. 12.000, - á
ári til lœknanna Sigurðar Samú-
elssonar dr. med og Friðriks
Einarssonar dr. med. Þeir
gegndu þá hvor um sig stöðu 1.
aðstoðarlœknis á lyflœkninga-
og handlækningadeildum
Landspítalans. Engar aðrar
breytingar urðu á launum þeirra
á þessum árum (þ.e. 1950 til
1955).
Reykjavík 21. ágúst 1996
f.h. launadeildar Ríkisspítala,
Guðlaug Björnsdóttir, starfs-
mannastjóri (sign.)“
Sigurður segir (bls 35)
„Frumkvæðið kom ekki frá
læknafélögunum“. Þetta errétt.
í stjórn L.R. 18.4. 1950 til 11.3.
1953 voru:
Kristinn Stefánsson formaður,
Sigurður Samúelsson ritari,
Friðrik Einarsson gjaldkeri.
Aldrei var imprað á launamál
okkar Sigurðar á stjórnarfund-
um eða þau rædd.
GLÆTAN!
Þemadagur um unglinga verður haldinn á veg-
um umboðsfyrirtækja THORARENSEN LYF
þann 16. nóvember 1996 í samvinnu við
fræðslunefnd Félags íslenskra heimilslækna.
Thorarensen Lyf
Dr. Friðrik Einarsson