Læknablaðið - 15.11.1997, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
725
ónefnin, prógestógenlykkjur og -forðaídæling-
ar, nýjar aðferðir við að fylgjast með egglosi,
hormónavarnir og nýjar gerðir smokka fyrir
karla og loks neyðargetnaðarvarnir. Fræðslu-
samtök um kynlíf og barneignir (FKB) hafa
staðið fyrir átaki til að vekja athygli á neyðar-
getnaðarvörnum og aðstoða ungt fólk með
ráðgjöf í miðborg Reykjavíkur. Á kvennadeild
Landspítalans er kominn vísir að skipulagðri
getnaðarvarnaráðgjöf (family planning) eins
og er á flestum svipuðum háskóladeildum. Þar
verður lögð áhersla á að sinna konum sem átt
hafa í erfiðleikum með getnaðarvarnir, meðal
annars þeim sem hafa þurft að leita eftir fóstur-
eyðingu. Fjölbreyttara aðgengi að góðri og við-
eigandi faglegri ráðgjöf fyrir hvern aldurshóp
er nauðsyn. Loks eru læknar og almenningur
að kynnast notkun neyðargetnaðarvarnar og
gera sér grein fyrir að hún er ekki aðferð til
fóstureyðingar heldur jafn sjálfsögð slysavörn
og reiðhjólahjálmar.
Það er ein af frumskyldum allra lækna að sjá
skjólstæðingum sínum fyrir góðum, öruggum
og ódýrum getnaðarvörnum og gera aðgengi
að getnaðarvörnum eins auðvelt og kostur er.
Sérstök ábyrgð hvílir á okkur gagnvart ungum
konum í því efni. Þar verður góð fagleg þekk-
ing byggð á framþróun vísinda að ráða ferð-
inni, en persónulegar skoðanir, fordómar og
æsifregnir fjölmiðla mega aldrei ná að hafa
áhrif á ráðgjöfina.
HEIMILDIR
1. Manfreösdóttir VF, Tryggvadóttir L, Tulinius H, Guð-
mundsdóttir GB. Notkunarmynstur getnaðarvarnapill-
unnar á íslandi 1965-1989. Læknablaðið 1996; 82: 460-4.
2. Crook D. Do different brands of oral contraceptives
differ in their effects on cardiovascular disease? Br J
Obstet Gynaecol 1997; 104; 516-20.
3. Thorneycroft IH. Contraception in women older than 40
years of age. Obstet Gynecol Clin North Am 1993; 20:
273-8.
4. Furedi F, Furedi A. The international impact of a pill
panic in the UK. London: Birth Control Trust, 1996.
5. Farmer RDT, Lawrenson RA, Thompson CR, Kennedy
JG, Hambleton IR. Population-based study of risk of
venous thromboembolism with various oral contracep-
tives. Lancet 1997; 349: 83-8.
6. Szarewski A. Third-generation pill warnings were pre-
mature. Lancet 1997; 350: 497.
7. Lidegaard 0, Milsom I. The pill. The controversy con-
tinues. Acta Obstet Gynecol Scand 1996; 75: 93-7.
8. Tryggvadóttir L, Tulinius H, Gudmundsdóttir GB. Oral
contraceptive use at a young age and the risk of breast
cancer: an Icelandic, population-based cohort study of
the effect of birth year. Br J Cancer 1997; 75: 139-43.
9. Anonymous. Nýlegar rannsóknir á notkun getnaðar-
varnapillu fyrir tvítugt. Aukin áhætta talin geta verið á
brjóstakrabbameini. Morgunblaðið 1997, 5. janúar: 48
(col.l—4).
10. Tómasson H, Tómasson K. Oral contraceptives and risk
of breast cancer. A historical prospective case-control
study. Acta Obstet Gynecol Scand 1996; 75: 157-61.
11. Meirik O. The pill and breast cancer: new information.
IPPF Med Bull 1996; 30: 1-2.
12. Collaborative Group on Hormonal Factors in Breast
Canecr. Breast cancer and hormonal contraceptives:
collaborative reanalysis of individual data on 53297
women with breast cancer and 100239 women without
breast cancer from 54 epidemiological studies. Lancet
1996; 347: 1713-27.
Reynir Tómas Geirsson