Læknablaðið - 15.11.1997, Side 32
744
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Ályktun: Bráð miðeyrabólga hjá börnum er
meðal algengustu vandamála sem heilsugæslu-
læknar fást við. Val á lyfjum við þessu vanda-
máli virðist hafa verið í samræmi við almennar
leiðbeiningar. Mikilvægt er að heilsugæslu-
læknar þekki vel til greiningar og meðferðar á
þessu algenga vandamáli.
Inngangur
Bráð miðeyrabólga hjá börnum er algengt
vandamál hér á landi. Aður hafa verið birtar
rannsóknir um tíðni bráðrar miðeyrabólgu hjá
börnum á landsbyggðinni en ekki í þéttbýli
(1,2). Erlendar rannsóknir hafa sýnt að um
43-60% eins árs barna hafa fengið bráða mið-
eyrabólgu einu sinni eða oftar (3-6).
Mikil umræða hefur farið fram hér sem er-
lendis um það hvernig æskilegast sé að með-
höndla bráða miðeyrabólgu hjá börnum (7,8)
og hefur þar einkum verið miðað við tíðni og
næmi helstu sýkla sem orsaka hana (9). Und-
anfarin ár hefur sú staðreynd verið að koma æ
betur í ljós að nýgengishlutfall penicillín
ónæmra pneumókokka hefur aukist en þeir
voru óþekktir fram til ársloka 1988 (10).
í framhaldi af umræðu um tíðni og með-
höndlun á bráðri miðeyrabólgu og opinberum
verðstýringaraðgerðum þótti áhugavert að
kanna, annars vegar tíðni bráðrar miðeyra-
bólgu hjá börnum í þéttbýli eins og Garðabæ
og hins vegar hvernig sýklalyfjaávísunum gegn
bráðri miðeyrabólgu væri háttað og hvort ávís-
unarvenjur hefðu eitthvað breyst milli áranna
1990 og 1995.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin fór fram sumarið 1996 við
Heilsugæsluna í Garðabæ, sem er eina heilsu-
gæslustöðin í bænum. íbúar Garðabæjar voru
6.954 þann 1. desember 1990 og 7.801 fimm
árum síðar. Bærinn verður að teljast til þéttbýl-
is höfuðborgarsvæðisins.
Við heilsugæslustöðina störfuðu fjórir lækn-
ar bæði árin sem rannsóknin náði til, þar af
voru þrír þeir sömu. Vaktir lækna eru sameig-
inlegar með Heilsugæslustöðinni Sólvangi í
Hafnarfirði og nær vaktsvæðið einnig yfir
Bessastaðahrepp.
Skráning samskipta sjúklinga við Heilsu-
gæsluna í Garðabæ fór öll fram eftir svoköll-
uðu Egilsstaðakerfi (11). Kerfið hefur verið
notað frá 1985 og voru allir læknarnir vanir
notkun þess.
Við rannsóknina var leitað í tölvu stöðvar-
innar að öllum, sem fengið höfðu greininguna
bráð miðeyrabólga í tölvuskrá stofnunarinnar
árin 1990 og 1995. Engar breytingar urðu á
greiningar- eða skráningaraðferðum læknanna
milli þessara ára. Greining byggðist á skoðun
læknis á barni með eyrnaverk, þar sem staðfest
var að um rauða og bólgna og frambungandi
hljóðhimnu væri að ræða, með vökva í miðeyra
samkvæmt hefðbundnum skilmerkjum (12).
Efniviður og skilyrði rannsóknarinnar voru
börn fimm ára og yngri, sem áttu lögheimili í
Garðabæ á árunum 1990 og 1995 og höfðu
greinst með bráða miðeyrabólgu af læknum á
Heilsugæslunni í Garðabæ og vaktlæknum á
svæðinu á þessum sama tíma.
Byrjað var á því að kanna hve stórt hlutfall
barnanna fékk greininguna bráða miðeyra-
bólgu á tímabilinu. Fjöldi barna á þessu aldurs-
bili, með lögheimili í Garðabæ, fékkst frá Hag-
stofu íslands. Alls reyndust þau 639 árið 1990
en 727 árið 1995. Þannig var hægt að kanna
raunverulega tíðni bráðrar miðeyrabólgu
hvort ár fyrir sig og hvort tíðnin hefði aukist
eða minnkað á þessu fimm ára tímbili.
Valið var úrtak 134 sjúkraskráa frá hvoru
ári, samtals 268 sjúkraskrár barna með grein-
inguna bráða miðeyrabólgu, og athugaðar
sýklalyfjaávísanir við miðeyrabólgu. Alls
reyndust 76,6% sjúkraskráa frá árinu 1990
uppfylla skilyrði rannsóknarinnar og 56,5% frá
árinu 1995. Úrtakið var valið eftir fjölskyldu-
númerum sjúkraskránna sem gefur handahófs-
kennt úrval barnanna. Tekinn var saman heild-
arfjöldi sýklalyfjaávísana á hvoru ári fyrir sig.
Að lokum var borið saman hlutfall ávísana frá
Heilsugæslunni í Garðabæ annars vegar og
vaktlæknum á svæðinu hins vegar.
Niðurstöður
Á mynd 1 kemur fram tíðni bráðrar miðeyra-
bólgu hjá börnum fimm ára og yngri á árunum
1990 og 1995. Árið 1990 greindust 15% barna
undir eins árs aldri með bráða miðeyrabólgu
en 57,5% barna eins til tveggja ára. Árið 1995
voru tölurnar 22,4% barna yngri en 12 mánaða
og 67,3% eins til tveggja ára. Tíðnin var mest á
öðru aldursári barnanna. Sýkingar voru al-
gengari hjá drengjum en stúlkum bæði árin. Á
myndinni sést einnig að sýkingum fjölgaði í
hverjum aldurshópi á þessu fimm ára tímabili.
Mynd 2 sýnir samanburð á sýklalyfjaávísun-
um við bráðri miðeyrabólgu á sömu tveimur