Læknablaðið - 15.11.1997, Side 38
750
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
fjallað um, ef sambærilegum útilokunarreglum
vegna þyngdar væri beitt.
Það er ljóst að skjaldkirtill í Islendingum
hefur stækkað mikið síðustu áratugi. Baldur
Johnsen veltir nokkuð fyrir sér orsökum
stækkunar skjaldkirtils í íslendingum og ræðir
einkum þrjá þætti; breytingu á neyslu joðríkrar
fæðu, breytingu á hæð og þyngd hjá þjóðinni
og annars sem einkum tekur til kvenna svo sem
barneignir og hormónalyf (3).
Baldur bendir á að samkvæmt neyslukönnun
hafi fiskneysla minnkað um 60-70% og ætla
mætti að joðmagn fæðu hafi minnkað samsvar-
andi en rannsókn Gunnars Sigurðssonar og
Leifs Franzsonar frá 1985 sýnir að þrátt fyrir
minnkandi joðinntöku í fiskmeti er mikið joð-
innihald í fæðu íslendinga sem kemur fram í
miklu joði í þvagútskilnaði. Telja þeir að rekja
megi það til mikils joðmagns í íslenskri mjólk
og þá líklega vegna fiskimjöls í kúafóðri (4).
Baldur vísar í Potter (5) og segir „Almennt er
reiknað með að stœrð skjöldungs sé ákveðið
hlutfall af líkamshœð ogleða þyngd, sem ncest
0,046%“ (3). Baldur kannaði því hæðar- og
þyngdarmælingar Guðmundar Hannessonar
1920-1929, Manneldisráðs 1939-1940 og
Hjartaverndar 1967-1968 og 1968-1969. Þó að
fram kæmi hæðar- og þyngdaraukning þá taldi
hann það ekki skýra nema lítinn hluta þyngd-
araukningar skjaldkirtils sem hann taldi vera
20-30% í körlum og konurn á tímabilinu 1967-
1978.
Skýring á stækkun skjaldkirtils í íslending-
um er ekki augljós og sjálfsagt margþætt. í
rannsókninni sem hér er greint frá hefur ekki
verið gerð tilraun til þess að meta þessa þætti.
Gerð var leit að hæðar- og þyngdarmælingum
hinna látnu sem rannsókn þessi er byggð á,
slíkar mælingar eru ekki hluti venjulegrar rétt-
arkrufningar og leit hjá Hjartavernd bar ekki
árangur.
HEIMILDIR
1. Johnston TB. Grays Anatomy. 31st ed. London: Long-
mans, 1954.
2. Sigurjónsson J. Studies of the human thyroid in Iceland
(dissertation). Reykjavík, 1940.
3. Johnsen B. Þyngd skjöldungs í íslendingum. Læknablað-
ið 1986; 72: 300-6.
4. Sigurðsson G, Franzson L. Joðútskilnaður í þvagi ís-
lenskra karla og kvenna. Læknablaðið 1988; 74: 179-81.
5. Potter L, Craig JM. Pathology of the foetus and infant.
London, 1976: 21. Cited in Johnsen B (3).