Læknablaðið - 15.11.1997, Side 67
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
773
hagvaxtarins eru miklar fram-
kvæmdir í höfuðborginni en
gagnrýnisraddir segja uppbygg-
inguna alltof öra. Þeir óttast að
gamli bærinn í Tallinn hverfi í
skugga háhýsa og neonljósa
framtíðarinnar. Þá óttast þeir
að Eistlendingar gleymi arfleifð
sinni, tapi auðkennum sfnum og
nýfengnu sjálfstæði með því að
selja sig menningu hins vest-
ræna heims. Eitt fyrsta merki
þess er nýlegur McDonald’s
veitingastaður í gamla bænum.
Auðkenni Tallinn er gamli
bærinn en hann hefur yfir sér
ævintýralegan blæ evrópskra
miðaldarbæja. Einkennandi eru
aldagömul steinhús með rauð
leirplötuþök, steinlögð öng-
stræti, háar og lágar turnspírur,
gamlar steinkirkjur og höll með
virkisvegg sem enn afmarkar
gamla bæinn að hluta.
PWG ráðstefna
Ráðstefnan fór fram á 26
hæða glæsihóteli með útsýni yfir
höfnina og gamla bæinn. Þegar
við komum seint um kvöld voru
nokkrir ráðstefnugestir komnir
og kynnti Páll mig fyrir fulltrú-
um helstu vinaþjóða okkar og
forkólfum Evrópusamtakanna.
Samkoman fór vel af stað en þar
voru litríkir fulltrúar Danmerk-
ur og Bretlands áberandi. Tók-
um við Páll þegar þátt í gleðinni
með því að skipta með okkur
einum öl.
Fimmtudagurinn 1. maí
Um morguninn hófst ráð-
stefnan fyrir alvöru með vinnu-
fundum nefnda. Lunginn úr
deginum fór í fund nefndar um
„future medical work“ sem er
stefnumótunarvinna á vegum
samtakanna um allt sem við-
kemur læknisstarfinu sjálfu. í
stefnumótunargrein nefndar-
innar segir að til að bæta núver-
andi ástand, sem í sumum aðild-
arlöndum er slæmt, verði að
endurskoða læknisstarfið í heild
sinni. Hér á eftir fjalla ég laus-
lega um stefnu samtakanna en
hún verður tekin til ítarlegri
umfjöllunar að lokinni ráð-
stefnu um „future medical
work“ sem haldin var í Köln í
október 1997.
í stefnunni er fyrst lögð
áhersla á að skilgreina læknis-
vinnu og aðgreina hana frá öðr-
um störfum sem oft lenda á ung-
um læknum. Þá greina þeir
hvernig vinnu lækna skuli hátt-
að í framtíðinni með áherslu
annars vegar á samband læknis
og sjúklings og samfellu þess en
hins vegar á tengsl læknis við
framhaldsmenntun, símenntun
og rannsóknir. Þá er lögð
áhersla á starfsumhverfi, starfs-
anda, samskipti lækna og stuðn-
ing þeirra á milli.
í öðru lagi er fjallað um
skipulagningu daglegra verk-
efna, gæðaeftirlits þeirra, sam-
bland daglegrar vinnu við
kennslu læknanema og eigin
fræðslu auk skipulagningar
fræðslufunda og starfsmanna-
funda þannig að þeir falli sem
best að vinnu læknisins.
Vaktavinna lækna er þriðja
umfjöllunarefnið en það tekur
sérstaklega til mismunandi skil-
greininga á vakt (on-call work).
Þá er fjallað um skipulagningu
vaktavinnunnar sjálfrar, það er
að hafa hana markvissa en ekki
láta hana ná yfir verkefni sem
auðveldlega á að vera hægt að
vinna í dagvinnu. Mikilvægi
þessa liggur einnig í kennslu-
gildi verkanna. Þá voru ýmsar
leiðir ræddar varðandi þessa til-
færslu, meðal annars bætt
mönnun lækna síðdegis og bætt
mönnun aðstoðarfólks allan
sólarhringinn. Undirstrikað er
mikilvægi gæða þjónustunnar
og aðgengis að sérfræðingum
allan sólahringinn.
í fjórða lagi er lögð áhersla á
að ná eðlilegri mönnun í lækna-
stéttinni þannig að vinnutími
lækna verði viðunandi. Því til
grundvallar er lögð mannafla-
spá samtakanna frá 1994 en
stefnt er að endurnýjun hennar
strax á næsta ári.
I síðasta lagi eru niðurstöður
teknar saman og ábendingar um
úrbætur lagðar fram í tæpum 20
málsliðum.
Eftir að stefnumótunin hafði
verið yfirfarin og breytt var far-
ið í skipulagningu ofangreindr-
ar ráðstefnu um málefnið. Farið
var yfir dagskrá ráðstefnunnar,
fjárhagsáætlun og hverjum yrði
boðið til þátttöku.
í beinu framhaldi af ofan-
greindum vinnufundi héldum
við Páll á óformlegan fund nor-
rænu unglæknasamtakanna til
að undirbúa sameiginlegan
fund í Osló í september 1997.
Föstudagurinn 2. maí
A föstudagsmorgun voru
vinnufundir tveggja nefnda.
Fyrst í framhaldsmenntunar-
nefnd sem er enn að vinna úr
niðurstöðum ráðstefnu um
framhalds- og símenntun lækna
(PMT og CME) sem haldin var
fyrir tæpum tveimur árum. Síð-
ari nefndarfundurinn fjallaði
um samstarf og stöðu PWG inn-
an Evrópusambandsins og
stöðu Evrópusambandsmála.
Helstu mál þar voru staða
bresku stjórnarinnar með tilliti
til komandi kosninga en þær
gátu ráðið úrslitum um útgáfu
sambandsins á svokallaðri hvít-
bók (White paper) sem inni-
heldur tilllögur að breytingu á
vinnutímalöggjöf EES.
Skemmst er frá því að segja að
daginn eftir, 3 maí, gjörsigraði
Verkamannaflokkurinn breska
íhaldið og í framhaldi af því var
lokið við hvítbókina og hún gef-
in út 17. júlí 1997. Þar eru tillög-
ur að breytingum á vinnutíma-
löggjöfinni sem lúta að því að
sem flestar starfsstéttir og þar á
meðal læknar í sérþjálfun falli
undir vinnutímalöggjöfina.