Læknablaðið - 15.11.1997, Page 74
778
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
LANDSPÍTALINN
.../þágu mannúðar og vísinda...
Yfirlæknir í blóðsjúkdómum
Staöa yfirlæknis í blóösjúkdómum viö blóöfræöiskor lyfjadeildar er laus til umsóknar.
Stöðunni fylgja störf og stjórnun á rannsóknardeild, samkvæmt nánara samkomulagi,
ennfremur fylgir stöðunni þátttaka í kennslu og rannsóknum í samráði við prófessorinn í
lyflækningum.
Umsóknir meö upplýsingum um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum,
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna til Þórðar Harðarsonar prófessors fyrir 20.
nóvember næstkomandi. Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum.
Prófessor Þórður og Ólafur Steingrímsson, sviðsstjóri rannsóknarsviðs, veita nánari
upplýsingar. Sími 560 1000. Gert er ráð fyrir að staðan veitist frá 1. janúar 1998.
Sérfræðingur í geislagreiningu
óskast á röntgen- og myndgreiningardeild. Um er að ræða tvær 100% stöður, önnur
ótímabundin og hin afleysingastaða í eitt ár. Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum sendist á eyðublöðum lækna til Ólafs
Kjartanssonar forstöðulæknis sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 5601070. Mat
stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum.
Deildarlæknir
óskast á bæklunarskurðdeild. Um er að ræða árs stöðu sem veitist sem fyrst. Umsóknir
ásamt upplýsingum um starfsferil sendist Halldóri Jónssyni jr. forstöðulækni sem einnig
veitir nánari upplýsingar. Sími 560 1000.
Deildarlæknar
óskast á krabbameinslækningadeild. Um er að ræða tvær stöður sem ráðið verður í sem
fyrst. Starfið er fólgið í vinnu á legu- og göngudeild í samvinnu við sérfræðinga deildarinn-
ar. Möguleikar eru á rannsóknarverkefnum á deildinni. Upplýsingar veitir Þórarinn
Sveinsson forstöðulæknir eða staðgengill hans. Sími 560 1440.
Laun samkvœmt gildandi samningi vidkomandi stéttarfélags og fjármálaráöherra. Umsóknarcyöubltíö Líst
hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítalanum. Öllum umsóknum
veröur svaraö þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.