Fréttatíminn - 05.11.2010, Page 13
Eimskip | Kornagörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Sjóflutningar
fyrir Íslendinga
í 96 ár
Lækjargata 2 Miðað er við að á fyrstu hæð
verði verslanir, ein eða tvær.
Verslanir geta einnig verið á
einni eða fleiri efri hæðum
í tengslum við verslanir á
fyrstu hæð. Ekki er miðað
við að veitingarekstur verði
í húsinu. Á efri hæðum geta
verið skrifstofur eða önnur
þjónusturými.
Lækjargata 2b (Nýja bíó) Margvísleg
starfsemi getur verið í hús-
inu. Miðað er við að á fyrstu
hæð og í kjallara geti verið
veitingahús, verslun eða
önnur starfsemi á tveimur
hæðum. Á 2. eða 3. hæð
væri hægt að hafa veitinga-
hús á annarri eða báðum
hæðum. Efri hæðirnar henta
einnig vel sem skrifstofu-
húsnæði eða fyrir aðra
þjónustustarfsemi.
Austurstræti 22 Húsið gæti hentað
margvíslegri starfsemi sem
ekki þarf mikið rými, t.d.
kaffihús eða lítið veitinga-
hús, sem jafnvel tengdist
starfseminni í húsunum
í kring. Taka þarf tillit til
þess að húsið er endurgert
í þeirri mynd sem það var í
1807. Í kjallara er gert ráð
fyrir að hægt verði að hafa
starfsmannaaðstöðu og
eldhús sem tengist húsinu ef
þar verður rekið veitinga-
hús.
Umferðarslys Hægt að stefna á að útrýma banaslysUm
Fimm hafa látist það sem af er ári
Það sem af er ári hafa fimm látist í
fjórum umferðarslysum hér á landi.
Svo fá banaslys hafa ekki orðið í
umferðinni í áratugi, en árið 1968
létust átta allt árið. Einar Magnús
Magnússon, verkefnastjóri umferð-
aráróðurs og fjölmiðlunar, hjá Um-
ferðarstofu, bendir til að mynda á
að árið 2006 hafi 31 látist á árinu, en
flestir hafi hingað til látist árið 1977
þegar þeir voru 33. „Við verðum þó
að hafa í huga að árið er ekki liðið.“
Einar segir marga þætti gera það
að verkum að slysatíðnin sé svo lág
í ár. Þeir séu þó engin haldbær vís-
indi heldur byggðir á tilfinningu.
„Margir vilja meina að hugarfarið
sé annað í umferðinni, hraðinn og
asinn minni heldur en sást í skuld-
setta góðærinu. Síðan gengu árið
2007 í gildi lög sem höfðu í för með
sér strangari viðurlög og hærri
sektir við umferðarlagabrotum. Svo
má líka nefna ákveðið úrræði sem
kom til sögunnar árið 2007 sem set-
ur nýliða í akstursbann brjóti þeir
alvarlega af sér.“
Í fyrra létust sautján í fimmtán
umferðarslysum. „Ef þessu ári
lýkur þannig að við sjáum tölur um
fjögur slys og fimm látna, þá er það
svo mikil fækkun að það gefur hug-
myndum margra um að hægt sé að
útrýma banaslysum úr umferðinni
byr undir báða vængi. Það er hægt,“
segir Einar.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Átta létust í umferðarslysum árið 1968 en 31 lést fyrir fjórum árum.
miðborgin byggt af kappi við aUstUrstræti og lækjargötU
Hátt í 60 vilja rekstur
sinn á bruna rústunum
Nóvember
2007
Austurstræti 22
keypt
Apríl
2007
Miðbærinn
brennur
Ágúst
2008
Nýtt skipulag sem
gerði ráð fyrir upp-
byggingu í anda
gömlu húsanna.
Maí
2007
Lækjargata 2
keypt
Nóvember
2010
Valið úr tilboðum
og hugmyndum.
Mars
2010
Óskað eftir kaup-
og leigutilboðum
í húsin.
Maí
2011
Stefnt á fulla
starfsemi í
húsunum.Við stefnum að því að húsin verði komin í
fulla notkun um miðjan maí.
fréttir 13 Helgin 5.-7. nóvember 2010