Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 18
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Vaxtasproti er einfalda
leiðin til að spara í áskrift
Með sparnaði í áskrift getur
þú sett þér mark mið, lagt
fyrir í hverjum mán uði,
safn að vöxt um og átt fyrir
því sem þig langar að gera.
Hvort sem það er sumar frí
fjöl skyld unnar, heimilis tæki
sem þarf að endur nýja eða eitt hvað allt
annað – þá er ódýrara að safna og eiga
fyrir hlut unum en að fá lánað fyrir þeim.
Vaxtasproti er sparnaðar
reikn ingur sem er alltaf laus.
Þú getur því bæði safnað þér
fyrir einhverju ákveðnu en
um leið notað reikn inginn
sem vara sjóð til að bregðast
við óvæntum útgjöldum.
Fyrir hverju langar þig að safna með
sparnaði í áskrift?
Byrjaðu að spara á islandsbanki.is
A thafnamaðurinn Heiðar Már Guðjóns-son greindi frá því í Fréttatímanum í síð-ustu viku að hann væri í sambandi við
tvo erlenda fjárfestingarsjóði sem væru tilbúnir
að fjármagna lagningu sæstrengs frá Íslandi til
Evrópu, sæstreng sem myndi gera Landsvirkjun
kleift að selja umframorku til Evrópu á alþjóð-
legu verði, sem er mun hærra heldur en það sem
Landsvirkjun fær hér innanlands í dag. Við-
brögðin voru tvíþætt. Sumir töldu það glapræði
að hlusta á mann eins og Heiðar Má, sem hefur
verið sakaður um að skipuleggja árás á krónuna
og var samstarfsmaður Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, en aðrir töldu rétt að skoða nánar rök
Heiðars Más fyrir lagningu sæstrengs. Loka-
ákvörðun liggur þó alltaf hjá Landsvirkjun og því
hitti Óskar Hrafn Þorvaldsson Hörð Arnarson,
forstjóra fyrirtækisins, og spurði hann um stöð-
una á verkefninu.
„Við skoðum núna stefnu Landsvirkjunar
til framtíðar, bæði með og án sæstrengs. Það
er mikil vinna lögð í það að finna út réttu við-
skiptahugmyndina fyrir Landsvirkjun, hvernig
fyrirtækið getur hagnast sem mest,“ segir
Hörður.
Hann segir lagningu sæstrengs frá Íslandi til
Evrópu flókið og áhættusamt verkefni því ekki
hefur enn verið lagður jafnlangur strengur á
jafnmiklu dýpi. „Ný framtíðarsýn Landsvirkj-
unar byggist ekki á sæstrengshugmyndinni en
mjög líklega styður hugmyndin mjög vel við
framtíðarsýnina.“
Stefna Landsvirkjunar er að vera markaðs-
drifið fyrirtæki, að sögn Harðar, og í því felst
áskorun um að hækka raforkuverð á Íslandi til
stórnotenda. „Á sama tíma teljum við okkur
geta boðið mjög samkeppnishæfa raforkusamn-
inga fyrir þau fyrirtæki sem vilja starfa á Ís-
landi. Við teljum að verðið hérlendis muni þró-
ast eins og raforkuverð í Evrópu þótt það verði
áfram verulega lægra og að verð muni hækka
til stórnotenda í takt við hækkanir erlendis
hvort heldur sem sæstrengur verður lagður eða
ekki. Ef sæstrengur verður ofan á verður þó
ekki um neinn magnútflutning að ræða 24 tíma
á sólarhring. Við myndum þá senda út orku
þegar verðið er hátt og mögulega taka inn orku
þegar verðið er lágt. Það eru miklar sveiflur á
þessum markaði,“ segir Hörður.
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna
hjá Landsvirkjun með erlendum ráðgjöfum þar
Leggjum ekki út í sæstreng
nema á okkar forsendum
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir lagningu sæstrengs til Evrópu vera í skoðun en öll þátttaka Landsvirkjunar veltur á að hagnaðurinn sé ásættanlegur.
18 fréttaviðtal Helgin 5.-7. nóvember 2010