Fréttatíminn - 05.11.2010, Side 26
E f ég ætla að halda í við dóttur mína þýðir ekkert annað en að styrkja líkamann og komast í
form,“ segir Lilja Katrín Gunnarsdóttir
(28), leikkona og blaðamaður á Séð og
heyrt. Hún mætir nú í ræktina þrisvar í
viku, klukkan sjö að morgni, hittir Ólaf
Ólafsson einkaþjálfara sem slær aldrei
af: „Fyrsta æfingin var rosaleg, mér
var óglatt – ég hélt ég myndi æla.“
Rótleysi, stefnuleysi og kæruleysi
kvöddu Lilju Katrínu þegar hún fékk
dóttur sína í hendur við fæðinguna
fyrir tíu mánuðum. „Dóttir mín bjarg-
aði lífi mínu, ég segi það hiklaust því
að hún gefur mér innblástur og ég
þakka henni fyrir það á hverjum degi.
Ég held að æðri öfl hafi ákveðið að
núna ætti ég að breyta lífi mínu til hins
betra og að þessi litla stúlka væri leiðin
til þess að gera það,“ segir Lilja enda
óléttan fjarri því að vera plönuð.
Fyrsti tíminn hjá einkaþjálfaranum
Ólafi var ekkert ólíkur fyrstu mánuð-
um meðgöngunnar hjá Lilju – tíminn
einkenndist af ógleði. En tilgangurinn
helgar meðalið: „Þessi litlu kríli geta
allt. Hún sefur til dæmis í jógastelling-
um sem ég kemst ekki einu sinni í og
svo finnst mér – og það þekkja líklega
allar konur sem hafa komið börnum
út úr sér – að þau gefa manni tilgang í
lífinu. Maður fær gríðarlega ábyrgðar-
kennd og spark í rassinn að standa sig
til þess að fæða og klæða þessi litlu
börn og veita þeim sómasamlegt líf.“
Bústin í gaggó
En vart plaga aukakílóin Lilju? „Ég
komst nú að því eftir meðgönguna að
ég hafði tekið það bókstaflega að borða
fyrir tvo,“ segir hún. „En markmiðið
núna er fyrst og fremst að styrkja mig.“
Hún veit þó hvernig það er að burðast
með aukakíló: „Já, ég náði hátoppnum
um fermingu,“ segir Lilja og hlær um
leið og hún ræðir alvöru lífsins. „Ég
átti í basli með aukakílóin sem barn en
pældi ekkert í því fyrr en í gaggó. Þá
vildi enginn koma í sleik! Strákarnir
vildu bara vera vinir mínir. En auð-
vitað verða feitar stelpur líka skotnar
í strákum þótt þeir verði ekki skotnir
í þeim,“ segir Lilja sposk. „Vandinn er
þó að offita er ekki heilbrigð og maður
verður að snúa þróuninni við. Það tókst
mér í framhaldsskóla.“
Lilja segir hægara sagt en gert fyrir
foreldra að takast á við þyngdarvanda
unglinganna sinna. „Það væri því
ákjósanlegt að þeir fengju hjálp frá
skólanum sínum. Þeir fást við fíkn og
því þurfa þeir hjálp þótt viljastyrkurinn
verði að vera fyrir hendi. Því má heldur
ekki gleyma að holdarfar getur leitt til
öfga í báðar áttir. Það er alveg ljóst.“
Ástin færi vel á skjánum
Hin hispurslausa Lilja hefur vakið
athygli undanfarið fyrir einleikinn
sinn Mamma, ég! sem hún sýndi
fyrir Kvennafrídaginn, en ekki síður
fyrir að segja frá því að dóttirin kom
undir eftir einnar nætur gaman í
Kaupmannahöfn. „Ég get ekki lýst
því hvernig mér leið þegar ég komst
að því að ég væri ólétt; hvernig gat
þetta komið fyrir mig? Komið fyrir!
Ég gerði þetta bara, liggur við, upp á
eigin spýtur.“ Hún tók upp samband
við barnsföðurinn, sem flutti heim
frá Danmörku þegar hún var komin
um fjóra mánuði á leið. „Það var ást
við fyrstu sýn þegar ég sá barnsföður
minn og unnusta í fyrsta sinn,“ segir
hún: „Söguþráður sambandsins er eins
og í bíómynd.“
Einleikurinn sem fjallar um leyndar-
dóma meðgöngunnar – gyllinæð,
þvagleka, grátköstin og ósögðu hlut-
ina um fæðinguna – hefur fengið svo
frábærar viðtökur að hún ætlar að sýna
hann aftur í nóvember og desember
hér í borginni og einnig úti á landi.
Hún hefur þegar bókað sýningu á
Ísafirði og stefnir á að sýna á Akureyri
og stærri stöðum landsbyggðarinnar.
En meðfram sýningum, barnauppeldi
og ástinni stefnir Lilja á að verja næsta
mánuðunum samviskusamlega í rækt-
inni: „Það þýðir ekkert annað. Nógu
andskoti mikið kostar þetta!“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Einkaþjálfun lilja katrín Gunnarsdóttir ætlar Ekki að sitja Eftir þEGar dóttirin tEkur á rás
Lilja Katrín Gunnarsdóttir ætlar að halda í við dóttur sína og slær því ekki slöku við í ræktinni. Hér tekur hún á því undir handleiðslu Ólafs Ólafssonar einkaþjálfara.
Ljósmynd/Hari
Lilja veit hvað það er að takast á við auka-
kílóin, það gerði hún sem barn og hristi þau
af sér í framhaldsskóla. Ljósmynd/úr einkasafni
Já, ég átti í basli með auka-
kílóin sem barn en pældi ekkert
í því fyrr en í gaggó. Þá vildi
enginn koma í sleik!
Dóttir mín bjargaði lífi mínu
Lífið tók nýja stefnu þegar Lilja Katrín eignaðist dóttur sína. Hún telur að æðri öfl hafi ákveðið að setja festu í líf hennar og nú,
einu og hálfu ári seinna, er hún komin á fullt í ræktinni til að fylgja dóttur sinni eftir í lífinu.
Bræðraborgarstíg 9
Tilkynnt var í vikunni
að hið vinsæla spil
Fimbulfamb væri
loksins að koma út í
nýrri útgáfu og með
nýjum orðum. Hefur þú
spilað Fimbulfamb?
SPURNING VIKUNNAR
Ásmundur Helgason
Fimbulfamb er einfaldlega
skemmtilegasta spil sem
ég hef spilað!
Katla Hreiðarsdóttir
Algjör snilld! Örugg
uppskrift að frábærum
stundum með fjölskyldu
og vinum.
Finnbogi Einarsson
Féll kylliflatur fyrir þessu
spili á sínum tíma. Get
varla beðið eftir nýju
útgáfunni – spennandi
tímar framundan!
Hildur Sigurðardóttir
Það eru allir að tala um
hvað þetta Fimbulfamb sé
skemmtilegt. Mun tryggja
mér eintak um leið og
spilið kemur í búðir.
26 fréttir Helgin 5.-7. nóvember 2010