Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 60
60 bíó Helgin 5.-7. nóvember 2010  frumsýningar Ástríður og ótti Græna ljósið frumsýnir nýjustu mynd Woodys Allen, You Will Meet a Tall Dark Stranger, á föstudag. Samkvæmt venju veltir Allen sér upp úr tilfinningaflækjum fólks sem glímir við sjálft sig og umhverfi sitt af veikum mætti. Anthony Hopk- ins og Gemma Jones leika hjón sem eru komin í öngstræti. Kallinn yfirgefur kerlu til þess að eltast við glataða æsku sína og símavændis- konu. Frúin missir tökin á tilver- unni og setur allt sitt traust á spá- kerlingu. Dóttir hjónanna, Naomi Watts, er ekki síður óhamingjusöm í hjónabandi sínu með eiginmann- inum, sem Josh Brolin leikur, og fellur fyrir fjallmyndarlegum yfir- manni sínum sem Antonio Bande- ras leikur. Sem sagt ekta Woody Allen með öllum þeim sálarflækjum sem honum fylgja. Aðrir miðlar: Imdb: 6,8/10, Rotten Tomatoes: 48%, Metacritic: 51/100 f rank Moses (Bruce Will is) l i f ir f rekar óspennandi lífi og hund- leiðist eftir að hann hætti hjá leyniþjónustunni og settist í helgan stein. Þegar hópur þjálfaðra morðingja veitist að honum hrekkur hann í gamla formið og snýr vörn í sókn. Hann smalar saman nokkrum gömlum félögum, sem allir eru komnir af léttasta skeiði, og þegar gamlingjarnir fá að spreyta sig á ný sýna þeir að þeir hafa engu gleymt. Frank dregur Joe ( Morg- an Freeman) út af elliheimili, John Malcovich leikur Mar- vin, sem er snargeðbilaður og heldur sig á Flórída, og hin virðulega leikkona Helen Mirren leikur Victoriu, fyrrum leigumorðingja, sem rekur gistiheimili. Þegar þessi und- arlegi hópur er samankominn eiga vondu kallarnir ekki von á góðu þar sem öll kunna þau enn sitt fag þótt þau séu orðin svolítið stirð og roskin. Enda kemur á daginn að fátt kemur í staðinn fyrir reynslu og and- legan þroska þeirra sem muna tímana tvenna. Þessi frábæri hópur leikara fær dyggan stuðning frá ekki síðri spámönnum í smærri hlutverkum. Sjálfur Brian Cox dúkkar til dæmis upp sem gömul, rússnesk kaldastríðs- grýla sem tókst á við vinahóp- inn þegar þau voru öll yngri og sprækari. Meistari Rich- ard Dreyfuss er svo líka með í fjörinu og eldgamla kempan Ernest Borgnine (The Dirty Dozen, The Wild Bunch,The Poseidon Adventure, Escape from New York) tekur slaginn eina ferðina enn. Kallinn er orðinn 93 ára og sjaldséður á hvíta tjaldinu síðustu áratugi og sjálfsagt hafa einhverjir ver- ið búnir að telja hann af. Mary- Louise Parker (The West Wing) og Julian McMahon, sem er þekktastur fyrir túlkun sína á siðlausa lýtalækninum Christian Troy í Nip/Tuck eru fremst í flokki yngri deildar- innar í þessum ellismelli. Dómar í öðrum miðlum: Imdb: 7,3/10, Rotten Tomatoes: 70%, 61/100 Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó f yrrum tukthúslimurinn Danny Trejo er illilegur og ógnvekjandi náungi sem smellpassar í hlutverk hins grjót- harða Machete enda persónan hönnuð utan um leikarann. Mac- hete er brjálæðislega klár lögga sem mætir ofjarli sínum í dópkóngi sem frekar klístraður Steven Sea- gal leikur. Viðskiptum þeirra lýkur með því að fjölskylda Machete er drepin og hann sleppur nær dauða en lífi úr klóm illmennisins. Þremur árum síðar dregst Mac- hete inn í flókinn svikavef sem gengur út á að tryggja snældu- vitlausum rasista endurkjör til setu á þingi. Robert DeNiro sýnir skemmtilega takta í hlutverki þess skítalabba sem hefur hinn mjög svo sjaldséða Jeff Fahey og eitís- hetjuna Don Johnson sér til halds og trausts í illvirkjum sínum. Þegar þessir kónar reyna að drepa Machete snýst hann gegn þeim af fullri hörku og fær um leið tækifæri til þess að hefna fjöl- skyldu sinnar. Gellurnar Jessica Alba og Michelle Rodriguez styðja Machete í stríðinu við vondu kall- ana. Alba er jafn sæt og venjulega en heldur bitlaus, sérstaklega í samanburði við Rodriguez sem hefur blessunarlega fundið töffið sitt aftur. Sagan er þvæld moðsuða með þann eina tilgang að gefa skemmti- legum leikurum tækifæri til þess að vera voða svalir og drepa fólk með miklum og blóðugum tilþrif- um. Veikleikarnir í sögunni skipta nákvæmlega engu máli og myndin gengur vel upp sem fín skemmtun hjá leikstjóranum og handritshöf- undinum Robert Rodriguez. Hann gerir myndina blygðunar- laust í B-mynda stíl og er með alla grunnþættina á hreinu; töffara- skap, grafískt ofbeldi, kynþokka og nekt í hæfilegu magni. Þeir sem kunna að meta rusl af þessu tagi vita nákvæmlega að hverju þeir ganga og verða ekki sviknir. Hin- um er ráðlagt að halda sig fjarri. Þórarinn Þórarinsson Due Date Juliette Lewis, Robert Downey Jr. og Zach Ga- lifianakis leiða hér saman hesta sína í gamanmynd um geðvondan stressbolta sem á von á sínu fyrsta barni og liggur því lífið á að komast heim áður en frumburðurinn kemur í heiminn. Hann missir illu heilli af flugvél og neyðist því til að ferðast þvert yfir Bandaríkin ásamt undarlegum fábjána þannig að ferðin verður vægast sagt taugatrekkjandi. Aðrir miðlar: Imdb: 7,5/10, Rotten Tomatoes: 40%, Metacritic: 59/100 Sammy’s Adventures Þrívíddarteiknimynd um skjaldbökuna Sammy. Hann er klófestur af mávi um leið og hann skríður úr eggi. Hann sleppur frá illfyglinu en er þá orðinn strandaglópur úti á miðju hafi. Hann hittir aðra skjaldböku og saman ákveða þau að leita að skjaldbökuparadísinni Lapagos. Aðrir miðlar: Imdb: 6,4/10, Rotten Tomatoes: -, Metacritic: - Klassadama Helen Mirren á, að körlunum sem deila Red með henni ólöst- uðum, ansi hreint glæsilegan feril sem einkennist af miklum metnaði og djörfung til að takast á við umdeild verkefni með undarlegum leikstjórum sem fara ótroðnar slóðir. Mirren, sem hét Ilyena Lydia Vasilievna Mironov áður en hún fann sér þjálla nafn, er orðin 65 ára. Hún nýtur mikillar virðingar og skyggir á flestar konur í sínum aldursflokki. Hún á að baki umdeildar myndir á borð við Caligula, The Cook, The Thief, His Wife & Her Lover eftir rugludallinn Peter Gree- naway en sú mynd gekk fram af mörgum árið 1989. Mirren setti einnig sterkan svip á The Long Good Friday, Excalibur, The Comfort of Strangers og var alveg hreint frábær í hlut- verki lögregluforingjans Jane Tennison í bresku sakamála- þáttunum Prime Suspect. Mirren hlaut Óskarsverðlaunin árið 2006 fyrir aðalhlut- verkið í The Queen þar sem hún bókstaflega breytti sér í Elísabetu Bretadrottningu. Þá hefur hún verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestan leik í aukahlutverki fyrir The Madness of King George árið 1994 og Gosford Park 2001. Helen Mirren ber aldurinn vel og sveiflar vélbyssum eins og ekkert sé í Red. Alvöru B-mynd Anthony Hopkins leikur mann sem fær gráa fiðringinn á efri árum.  bruce Willis: Kominn á eftirlaun og enn að drepa Myndin um hrunið Í Inside Job kafar Charles Ferguson ofan í ástæður stóra efnahagshrunsins árið 2008. Hann talar við fjölda fólks sem kom að málum úr ýmsum áttum, gefur engum grið og fær ekki betur séð en fjármálakerfi heimsins hafi verið ein risastór svikamilla. Hann hefur yfirreið sína um heiminn á Íslandi sem hlýtur að teljast ákaflega við- eigandi. Aðrir miðlar: 7,7/10, Rotten Tomatoes: 95%, Metacritic: 87/100 Efnahags- hrunið sem skók heims- byggðina er skoðað í Inside Job. Malcovich, Freeman og Willis eru komnir af léttasta skeiði en láta það ekki draga úr sér kjark þegar fortíðin eltir þá uppi og líf þeirra hangir á bláþræði. Hættuleg gamalmenni Bruce Willis fer fyrir glæsilegum hópi leikara sem komnir eru af léttasta skeiði í spennumyndinni Red. Hann leikur gamalt hörkutól á eftirlaunum hjá CIA sem þarf að smala saman gamla genginu sínu og rifja upp gamla drápstakta þegar sérþjálfaðir morðingjar ógna lífi hans. Machete sendir fjendur sína til heljar með skemmtilegum tilþrifum.  bíódómur: machete
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.