Fréttatíminn - 05.11.2010, Side 62
Þörfin á að
lykta vel
Ég stóð lengi í snyrtivörudeild Hag-
kaupa um helgina. Var farin að fæla
frá mér aðra viðskiptavini sem tóku á
sig stóran krók til að komast hjá því að
ganga fram hjá mér. Handahófskennt
tók ég fram hvert ilmvatnið af öðru í von
um að finna það eina rétta. Var farin að
lykta eins og risavaxið ilmvatnsglas.
Valkvíðinn var í hámarki og ég gat ekki
fundið réttu lyktina. Of sæt eða of sterk.
Þurfti að vanda valið því yfirleitt fæ
ég fljótlega leiða á því ilmvatni sem ég
geng með. Á endanum gekk ég út. Var
búin að eyða hátt í klukkutíma í að finna
réttu lyktina. Gafst upp. Blandaður
ilmur af öllum þeim tegundum sem ég
hafði prófað höfðu fest í vitunum og allt
lyktaði eins.
Þetta skiptir okkur máli. Hver kona
hefur þörf fyrir að lykta vel og það
tekur langan tíma að finna rétta ilminn
sem hentar þeim. Leitin getur endað
í mörgum ferðum í næstu snyrtivöru-
verslun. Aðeins til að leita að því eina
rétta. Ilmurinn skiptir okkur máli og
þetta er mjög persónubundið. Oftar en
ekki endurspeglast lyktin í persónuleika
okkar svo við þurfum að vanda valið.
Þegar konur hafa fundið það ilmvatn
sem hentar þeim best og eru loksins
ánægðar með valið, halda þær yfirleitt í
það í mörg ár. Eltast við það til annarra
landa ef þörf krefur. Það gerist oft. En
þetta er ilmvatnið þeirra og þær eru
tilbúnar að ganga langt til að verða sér
úti um það.
62 tíska Helgin 5.-7. nóvember 2010
F Á K A F E N I 9 - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
www.gabor.is
Sérverslun með
HEILSUSKÓR
St. 35-44
Verð 7.495.-
Fyrsta flokks innlegg
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Mánudagur
Skór: Sneaky Steve í Svíþjóð
Buxur: G-star
Bolur: Suit-Imperium, Smáralind
Jakki: Suit-Imperium, Smáralind
Húfa: Amma prjónaði hana
Þriðjudagur
Skór: Sneaky Steve í Svíþjóð
Buxur: Levi’s
Skyrta: Levi’s
Úr: Dolce&Gabbana
Miðvikudagur
Skór: Kolaportið
Bolur: Suit-Imperium, Smáralind
Buxur: G-star
Armbönd: Spúútnik, Laugavegi.
CHeryl Cole notAr:
Blautan kinnalit frá nars. Veitir
húðinni mikinn gljáa, undirstrikar
há kinnbein hennar og rjóðar
kinnar.
Vinsæla Juicy tubes glossið
frá lancome. Gerir varirnar
kirsuberjarauðar.
ljósan augnskugga frá Chanel.
Skyggir augun á áberandi hátt.
Boss orange ilmvatn. Hún leggur
áherslu á að lykta alltaf vel og segir
að Boss Orange sé það sem hún
gæti síst verið án.
Cheryl notar einnig gerviaugnhár
við öll tækifæri. Þau lengja og
þykkja hennar eigin augnhár og
setja sterkan svip á andlitið.
snyrtivörur Cheryl Cole
Með einstakt útlit
Cheryl Cole, sem nýlega hefur stigið sín
fyrstu skref sem söngkona utan stúlknahljóm-
sveitarinnar Girls Aloud, er talin vera ein allra
fegursta kona heims. Hún er þekkt fyrir bros
sitt sem bræðir nærstadda og spékoppana
sem ljá henni einstakt útlit. En spékopparnir
eru ekki lengur einstakir því mörg hundruð
lýtaaðgerðir hafa verið gerðar í Bretlandi á
konum sem hafa viljað verða sér úti um sams
konar spékoppa og söngkonan.
Hún er mjög framarlega í flokki þegar kem-
ur að fegurð og tísku og víða eltist kvenfólk
við þær snyrtivörur sem hún notar. Hún gefur
góð fegrunarráð og segir að lykillinn sé ekki
að nota dýrar snyrtivörur, heldur að nota þær
snyrtivörur sem henta manni best!
vara vikunnar
Blandaði saman og bjó til
Lengi vel hafði verðlaunaleikkonan Halle Berry verið
í miklum vandræðum með að velja sér ilmvatn sem
hentaði hennar persónuleika. Hún byrjaði að blanda
saman nokkrum tegundum og endaði með því að búa
til ilm sem henni þótti fullkominn fyrir sig. Hún var
svo ánægð með útkomuna að hún ákvað að fram-
leiða þennan ilm til þess að
aðrir fengju að njóta hans.
Þessi blanda hennar kom
á markað árið 2009 undir
hennar nafni og hefur
rokið út. Vinsælli
hefði hún ekki getað
orðið. Hér á landi
fæst ilmvatnið í
verslunum Hagkaupa
og Flugstöð Leifs
Pub í miklu uppáhaldi
Kristján Karl Þórðarson, 21 árs áhugamaður um tónlist, tísku,
snjóbretti og trommur.
„Ef ég ætti að lýsa stílnum mínum í einu orði, þá væri það Russel Brand,“
segir Kristján og hlær. Mest kaupir hann af fötum í G-star og Imperium
hér á Íslandi. „Ég vinn í G-star, svo fötin mín eru mikið þaðan. Annars er
Imperium líka rosalega svöl búð. Svo er verslunin Pub í Svíþjóð í miklu
uppáhaldi. Frekar óþekkt búð á hliðargötu sem selur fatnað frá óþekktum
hönnuðum.“ Innblásturinn fær hann alls staðar að í kringum sig og kaupir
helst föt sem honum finnst henta sínum stíl best. „Ég held að ég eigi enga
fyrirmynd í sambandi við tísku, en eins og ég sagði þá er leikarinn Russel
Brand án efa langsvalasti gaur í heimi. Engin spurning!“
5
dagar
dress
Fimmtudagur
Skór: Converse, Deres
Buxur: G-Star
Skyrta: Levi’s
Sólgleraugu: Optical Studio.
Föstudagur:
Buxur: Levi’s
Bolur: Suit
Skór: Pub, Stokkhólmi
Jakki: G-star