Fréttatíminn - 05.11.2010, Qupperneq 66
66 dægurmál Helgin 5.-7. nóvember 2010
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Viltu ná kjörþyngd og komast í form?
TT námskeiðin okkar sívinsælu, frá toppi til táar, miðast við að veita konum leiðsögn um lífshætti
sem skila árangri. Þau byggjast á áralangri reynslu og fela í sér leiðbeiningar um mataræði,
líkamsbeitingu, fundi, vigtun og mælingar.
TT námskeiðin standa yfir í sex vikur. Þrjá tíma í viku er stunduð markviss líkamsrækt sem eflir þol
og styrk og tekur mið af einstaklingsbundinni getu. Vigtað er í hverjum tíma og mælingar gerðar
þrisvar á tímabilinu. Fundur er haldinn einu sinni í viku. Við veitum persónulega þjónustu í
notalegu umhverfi þar sem algjör trúnaður ríkir.
Velkomin í okkar hóp!EFLIR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
sk
h
ö
n
n
u
n
Innritun hafin á síðustu
TT-námskeið fyrir jól í síma 581 3730
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
TT tímar í boði:
6:15 A mánu-, miðviku- og föstudagar
7:20 C mánu-, miðviku- og föstudagar
10:15 D mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
12:05 F mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
14:20 G mánu-, miðviku- og föstudagar
16:40 H mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
17:40 I mánu- og þriðjud, fimmtud 18:25 Barnapössun
18:40 J mánud, - miðvikud 19:25 og lau 8:30
18:25 TT3 Mánu- og miðvikud - (16-25 ára)
NÁMSKEIÐUM
FYLGIR
FRJÁLS MÆTING
Í TÆKJASAL
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 14. nóvember kl. 17:00
Námskeið hefjast 14. nóvember
Hiti í Halloween-
partíi Heidi Klum
Ofurfyrirsætan Heidi Klum hélt árlegt Halloween-partí sitt á
Lavo-veitingastaðnum í New York á sunnudagskvöldið. Mikið
var um dýrðir en Klum og eiginmaður
hennar Seal stálu senunni með frumlegum
búningum. Klum var klædd sem ofurhetja
og gnæfði yfir alla gestina á 60 sentimetra
háum hælum. Seal var í silfurbúningi og
sagði Klum að hann væri „Silver Surfer“ úr
myndinni Fantastic Four.
Þokkadísin Kim Kardashian mætti á svæðið í gervi Rauðhettu
litlu. Aðalástæða veru hennar í New York var þó að vera viðstödd
opnun á fataversluninni Dash, sem hún á með systrum sínum.
Rapparinn Ice-T kom með íturvaxna eig-
inkonu sína Coco í partíið. Coco var klædd í
hjúkkubúning og sagði við fjölmiðla að hún
hefði keypt búninginn sérstaklega fyrir
kvöldið.
Gestgjafinn sjálfur, hin
glæsilega Heidi Klum,
var óþekkjanleg.
Ximena Navarrete, handhafi
titlisins Miss Universe, var
sjóðandi heit í partíinu.
Hjónakornin
Ice-T og Coco með
söngvarann Seal,
eiginmann Heidi
Klum, á milli sín.
Þokkadísin Kim
Kardashian var
Rauðhetta fyrir
fullorðna.
Söngkonan Ashanti faldi ná-
kvæmlega ekki neitt í partíinu.
L eikhúsgestum gefst tækifæri til þess að taka þátt í hinum bráðskemmtilega útvarps-
þætti Orð skulu standa í Borgarleik-
húsinu. Á Litla sviðinu er útvarps-
forminu blandað við uppistand,
tónlist og umræðuþátt þar sem ís-
lenska tungumálið er sem fyrr kruf-
ið og greint. Þátturinn, sem Karl
Th. Birgisson hafði umsjón með
á Rás 1 í ein átta ár, er jafnan hin
besta skemmtun. Þar spreyta fjór-
ir gestir sig á þrautum sem minna
okkur öll á fjölbreytileika tungu-
málsins (og sér í lagi hliðar þess
sem við veltum sjaldnast fyrir okk-
ur). Tveir þeirra eru fararstjórar/
gestgjafar en svo bætast við tveir
nýliðar í hverjum þætti. Á sviðinu á
dögunum voru Andrea Gylfadóttir
söngkona og stjórnmálamaðurinn
Guðmundur Steingrímsson, gestir
liðstjóranna Davíðs Þórs Jónsson-
ar og Sólveigar Arnarsdóttur auk
Karls Th. spyrils sem ferðaðist vítt
og breitt um salinn.
Það er vandasamt að ætla sér að
leggja leikhúsmælistiku á frammi-
stöðu keppenda því þátturinn er
klárlega ekki sýning. Nær væri að
kenna uppákomu af þessu tagi við
kvöldvöku. Vissulega voru þar sýnd
ákveðin dramatísk tilþrif en eðli
málsins samkvæmt voru þátttak-
endur þarna í sínum eigin hlutverk-
um og mjög sjarmerandi sem slíkir.
Efnistökin gera þeim einnig kleift
að sýna sínar bestu hliðar, þarna
skapast fróðlegar og skemmtilegar
umræður út frá spurningunum og
dagskráin er síðan brotin upp með
tónlistaratriðum og annars konar
sprelli. Af því leiðir að skemmt-
anagildi þáttarins er mjög háð því
hversu fjörugir og fróðir gestirnir
eru. Svo heppilega vildi til að bæði
Andrea og Guðmundur voru hvoru
tveggja.
Þáttur Pálma Sigurhjartasonar
tónlistarstjóra er afar mikilvægur.
Hann er stemmningsvakinn sem
styður allt sem fram fer á sviðinu.
Hann mætti jafnvel láta meira til
sín taka.
Þó allir ættu að hafa áhuga og ást
á íslensku máli er það ekki raunin.
Upplifunin á Litla sviðinu er vel til
þess fallin að vekja áhuga og við-
halda honum en heimsókn þangað
hentar þó ekki öllum ég er hrædd
um að yngri kynslóðum finnist
þetta full lágstemmt. En ég vil sér-
staklega hnippa í íslenskukennara
landsins og hvetja þá til að sjá þátt-
inn sem og fjölmiðlafólk sem hefur
metnað til þess að auðga mál sitt.
Persónulega hef ég virkilega
gaman af þættinum, hvort heldur
í útvarpi eða á sviði. Ég vil gjarnan
leggja það til að RÚV taki við hon-
um aftur og setji hann á dagskrá
í staðinn fyrir hringavitleysuna á
laugardagskvöldum.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Dómur Orð skuLu stanDa 3 stjörnur
Íslenskan í aðalhlutverkinu
Orð skulu
standa
Borgarleikhúsið
Umsjónarmaður: Karl Th.
Birgisson