Fréttatíminn - 05.11.2010, Síða 67
dægurmál 67Helgin 5.-7. nóvember 2010
Dómur Orð skulu stanDa 3 stjörnur
Íslenskan í aðalhlutverkinu
Þær eru skap-
andi og það er
skemmtilegt að
vinna með þeim
eins og öllu þessu
fólki sem skipar
hljómsveitina.
rúnar ÞórissOn: Fylgir Falli eFtir
Dæturnar syngja með
Rúnar Þórisson tónlistarmaður og
gítarleikari hljómsveitarinnar Grafik
sendi nýlega frá sér hljómplötuna Fall
og blæs af því tilefni til útgáfutónleika
í Tjarnarbíói á þriðjudagkvöld klukkan
20.30. Tólf manna hljómsveit stígur á
stokk með Rúnari og í þeim hópi eru
dætur hans tvær, þær Lára og Mar-
grét, sem sjálfar hafa skapað sér nafn
í tónlistarbransanum.
„Það eru þrjú ár síðan ég byrjaði
á plötunni þegar ég lagði grunninn
að þeim hugmyndum sem allt annað
byggist á. Ég vinn yfirleitt þannig að
ég geng út frá einhverri lítilli hugmynd
sem hleður utan á sig og fleiri hug-
myndir bætast við þangað til komið er
lag,” segir Rúnar.
Rúnar er þekktastur sem gítarleikari
en er allt í öllu á Falli og vann hana sem
alhliða tónlistarmaður og lagði tölu-
verða vinnu í útsetningar fyrir strengi,
blásturshljóðfæri og söngraddir.
Rúnar segir það hafa verið mjög
ánægjulegt að fá tækifæri til að starfa
með dætrum sínum á plötunni og tón-
leikunum. „Þær syngja bak- og aðal-
raddir með mér. Þær eru skapandi og
það er skemmtilegt að vinna með þeim
eins og öllu þessu fólki sem skipar
hljómsveitina. Það eru örugglega allir í
bandinu yngri en ég en ég hef sótt svo-
lítið í að vinna með yngra fólki í tónlist.
Að öðrum aldursskeiðum ólöstuðum er
oft meiri gerjun hjá yngra fólkinu þótt
það sé ekki algilt.”
Lára Rúnarsdóttir hefur gefið út
þrjár plötur og Rúnar segist hafa samið
nokkur lög með henni áður en henni
tókst að hasla sér völl í tónlistinni. „Ég
hjálpaði henni kannski svolítið að kom-
ast í gang og Margrét kemur svo í kjöl-
far systur sinnar og hefur tekið við af
henni sem söngkona í hljómsveitinni
Lifun.“
Rúnar tók sér góðan tíma í
gerð Falls en hann segir hug-
myndavinnuna í upphafi alltaf
vera skemmtilegasta hlutann
í sköpunarferli hljómplötu.
Miley tekur ekki
afstöðu í skilnaði
Hannah Montana-stjarnan Miley Cyrus
ætlar ekki að taka afstöðu í skilnaði for-
eldra sinna. Heimildir
herma að henni sé
illa brugðið en ætli
að halda tilfinn-
ingum sínum fyrir sig
og halda hlutleysi í
deilum foreldra sinna.
Faðir Miley, Billy Ray
Cyrus, hefur farið fram á sameiginlegt
forræði yfir þremur börnum hans og
Tish, móður söngkonunnar. Hjónin eiga
einnig tvö sjálfráða börn.
Slash hættir við
skilnað
Slash, gítarleikari hinnar fornfrægu
rokksveitar Guns N´Roses hefur aftur-
kallað beiðni um skilnað frá Perlu
Ferrar, eiginkonu sinni til níu ára.
Rokkhundurinn lagði fram beiðni um
skilnað fyrir tveimur mánuðum vegna
ósættanlegs ágreinings en er nú hættur
við allt saman. Slash og Perla gengu
í hjónaband árið 2001 og saman eiga
þau tvo syni, 8 og 4 ára. Fyrir rúmu ári
þakkaði Slash Perlu og fjölskyldunni að
hann hefði náð að róa sig og losa sig
frá þeim hörðu efnum sem hann hafði
notað um langt árabil.
Kim í hljóðveri
Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kim
Kardashian er í miklum ham um
þessar mundir og nú berast þær fregnir
úr herbúðum hennar að hún hyggist
feta í fótspor stallsystur sinnar, Paris
Hilton, með því að gefa út hljómplötu.
Hún hefur verið í hljóðveri með stjörnu-
framleiðandanum Terius Nash sem
hefur gert lög fyrir ekki minni stjörnur
en Rihanna og Beyoncé.