Kjarninn - 10.10.2013, Blaðsíða 4

Kjarninn - 10.10.2013, Blaðsíða 4
Þ að hefur vart farið framhjá neinum að íslenska efnahagshrunið á afmæli um þessar mundir. Í gær voru liðin slétt fimm ár frá því að stærsti banki landsins, Kaupþing, skilaði síðastur stóru fjármálafyrirtækjanna lyklum sínum til Fjármála eftirlitsins. Þegar efnahagslegur veruleiki okkar hrundi fórum við að leita að sökudólgum. Fyrst leituðum við erlendis. Kenndum Bretum um. Alþjóðlegu bankakreppunni. Ástandinu í Evrópusambandinu. Bandaríkjamönnum fyrir að vilja ekki lána okkur pening. Þegar þær skýringar dugðu ekki til að útskýra ástandið fórum við að benda hvert á annað. Eðlilega var fingrinum fyrst beint að þeim sem breyttu landinu í vogunarsjóð. Mönnunum sem stýrðu bönkum og fjárfestingarfélögum og lögðu heila þjóð undir í illa undirbyggðum fjármála- veðmálum sínum og embættis- og stjórnmálamannanna sem brugðust algjörlega eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu. Og þessir aðilar báru tvímælalaust mikla ábyrgð. En höfuðsökin liggur í því að hér hefur, og hefur alltaf verið, efnahagskerfi við lýði sem er arðbært fyrir lítinn hóp en gríðarlega kostnaðarsamt fyrir þorra þjóðarinnar. Þegar mælt er hvort við höfum lært eitthvað af hruninu verður að horfa til þess hvort okkur hefur tekist að hrista hlekki þess kerfis af okkur. Svo virðist því miður ekki vera. Hrunið hefði átt að þvo meðvirknina af okkur. Til valda komst enda fyrsta hreina vinstristjórnin. Hún ákvað hins vegar að sleppa því að nýta þetta einstaka tækifæri sitt til að móta langtímaefnahagsstefnu en nýta umboð sitt frekar til að reyna að troða eins miklu og mögulegt var af pólitískum áherslum sínum inn á íslenskt samfélag á þeim fjórum árum sem hún fékk úthlutað. Úr varð kraðak sem skildi lítið eftir sig annað en endalausar illdeilur. Vinstristjórnina skorti sýn og ákvarðanir hennar voru nánast allar viðbragð við aðstæðum frekar en innleiðing á skýrri stefnu. Þess vegna skildi hún við með mörg stærstu efnahagsmál þjóðarinnar enn óleyst. Því miður virðist ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar flokks ætla að falla í sama pytt. Það er mjög erfitt að sjá hver stefna hennar er í lykilmálum. Hún ætlar ekki að kasta íslensku krónunni, sem hefur tapað 99,7 prósentum af virði sínu frá því að hún varð til, en hefur ekki útskýrt hvaða hækjur og höft þurfi til að hún standi til framtíðar. Ríkis- stjórnin hefur ekki boðað neina stefnu um hvernig hún ætli að taka á vanda lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og hvernig eigi að mæta 390 milljarða króna umfram skuldbindingum hans, þrátt fyrir að sá vandi hafi blasað við árum saman. Hún hefur ekki gripið til ráðstafana varðandi Íbúðalánasjóð þrátt fyrir að hann hafi kostað ríkissjóð 46 milljarða króna á síðustu árum. Ríkisstjórnin ákvað að gefa frá sér milljarða króna skatttekjur til útgerða og ferða þjónustu og brúa þess í stað fjárlög með því að afnema vexti á láni Seðlabankans og fyrirframgreiða sér úr þrota búum fallinna banka. Reyndar hefur hún ekkert upplýst heldur um hvernig hún ætlar sér að afnema gjaldeyrishöft. Ríkisstjórnin virðist því hreinlega ekki hafa neina stefnu í ríkisfjármálum. Einnig virðist ríkisstjórnin ætla að feta í fótspor þeirrar fyrri og hafna erlendri fjárfestingu. Það er í það minnsta erfitt að skilja orð forsætisráðherra um að erlend fjárfesting sé eins og erlend skuldsetning. Því sé betra að liðka fyrir því að lífeyrissjóðir fjármagni fjárfestingar hérlendis í enn meiri mæli en þeir gera nú þegar. En það er engin stefna til fram- tíðar heldur. Og það er engin afsökun að ríkisstjórnin hafi bara haft nokkra mánuði til að koma sér fyrir í valdastólum því þetta fólk hefur haft fimm ár til að móta sér skýra stefnu um hvernig eigi að gera Ísland betra. En stefnuleysið virðist ekki hafa nein áhrif á okkur sem þjóð. Sama hver heldur um stjórnartaumanna virðumst við sem þjóð alltaf vera ginkeypt fyrir stórum vinningum. Hvort sem þeir heita hlutabréf í Decode, stærsta stífla í Evrópu, fjármálamiðstöð, skuldaniðurfellingar, kröfuhafagull, túristakrónur eða olíuauður viljum við leysa efnahagsleg vandræði okkar með lottóvinningi frekar en að setja upp langtímaáætlun um nýtingu þeirra ótrúlega miklu gæða sem Ísland býr yfir og ættu fyrir löngu að vera búin að skila okkur sjálfbærni. Líkurnar á því að vinna í lottói eru hins vegar sáralitlar. Sá sem kaupir tíu raðir á viku allt árið um kring í Víkinga- lottói má eiga von á einum fyrsta vinningi á 23.500 ára fresti. Þegar um velferð heillar þjóðar er að ræða eru lottólíkur ömurlegar líkur. Og jafnvel þótt einstaka vinningar detti inn eru þeir skammgóður vermir í þessu verðbólgudrifna jójó- hagkerfi sem við höfum búið til. Sagan segir okkur að við lendum í nýjum efnahagslegum öldudal fyrr en síðar. Dal sem er dýpri og verri en sá sem við klifum upp úr á undan. Til hamingju með það. Til hamingju með stefnuleysið leiðari Þórður Snær Júlíusson thordur@kjarninn.is 01/01 kjarninn Leiðari M yn d: a nt on B rin k
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.