Kjarninn - 10.10.2013, Side 16

Kjarninn - 10.10.2013, Side 16
02/06 kjarninn Efnahagsmál M ikið hefur verið rætt um það í fjölmiðlum, á vettvangi stjórnmálanna og víðar að kröfu- hafar Glitnis og Kaupþings, auk fulltrúa þeirra í slitastjórnum þessara risavöxnu þrotabúa, séu tilbúnir að gera Seðlabanka eða stjórnvöldum einhvers konar tilboð til að leysa úr þeim vanda sem eignir þeirra í íslenskum krónum valda íslenskum fjármálastöðugleika. Við blasir enda að kröfuhafarnir fá ekki að skipta þessum eignum í erlendan gjaldeyri hjá Seðlabank- anum og hverfa frá. Íslendingar eiga einfaldlega ekki gjald- eyri til að skipta þeim tæplega 400 milljörðum krónum sem um ræðir til að slíkt væri gerlegt. Þeir sem stýra hinu svokallaða óformlega kröfuhafaráði búanna tveggja hafa, ásamt slitastjórn Glitnis, leitað eftir samtali við Seðlabankann eða forsvarsmenn ríkisstjórnar- innar til að leggja til lausnir sínar á þessum vanda. Í fram- haldinu vonast þeir til að fá að klára nauðasamninga sem beðið hafa afgreiðslu í um ár og fá greitt út úr búunum. Þessar umleitanir hafa gengið vægast sagt illa. Viðræðum hafnað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í viðtali við Kjarnann 22. ágúst síðastliðinn að það væru sameiginlegir hagsmunir kröfuhafa og íslenskra stjórnvalda að leysa úr þessum vandkvæðum þannig að hægt yrði að afnema gjaldeyrishöft. „Þess vegna finnst mér tilefni til að gera ráð fyrir því að kröfuhafarnir muni vilja leggja fram lausn. Þeir þurfa að sýna frumkvæði í þessu. Ég geri ráð fyrir að kröfuhafarnir séu að meta stöðu sína og hvað sé raunhæft. Vonandi gerist það fljótlega,“ sagði Sigmundur Davíð. Slitastjórn Glitnis sendi fimm dögum síðar erindi á Sigmund Davíð, Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahags- ráðherra og Má Guðmundsson seðlabankastjóra. Í því kom fram að kröfuhafar væru tilbúnir til viðræðna um hvað þyrfti að gera til að leyfa þeim að klára nauðasamninga sína. Seðlabankinn svaraði erindinu mánuði síðar. Í svarinu sagði meðal annars að „þó nákvæmri greiningu sé ekki lokið efnahagsmál Þórður Snær Júlíusson thordur@kjarninn.is

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.