Kjarninn - 10.10.2013, Page 50
07/07 kjarninn viðtal
Annars eru þetta karlmenn sem sitja og spila leiki, skoða
tölur og línurit, tala saman og borða. Ég fæ ekki að sjá sjálfa
hönnunardeildina vegna leyndarinnar sem hvílir yfir ferlinu
en þar eru flestir líka karlmenn. Þetta skýrir kannski hvers
vegna auðvelt er að selja hugmyndir sem ganga út á að allt
sé stærra, hraðara eða háværara en áður. Þetta er enn sem
komið er karlaheimur. „Ég vinn 90% bara með karlmönnum
og allir yfirmennirnir eru karlar en það eru margir staðir
miklu verri en Svíþjóð.“ Sigurlína tekur sérstaklega fram að
þrátt fyrir að kynjahlutfallið sé ójafnt eigi konur fullt erindi
í þennan heim. Vinnan sé skemmtileg og henti konum alveg
jafn vel og körlum. Enda séu sífellt fleiri konur að hasla sér
völl í þessum geira.
gríðarleg áhersla á árangur
Ég kemst líka að því að sagan um borðtennisborðið er
sönn. „Ég held að það hafi verið borðtennisborð hjá öllum
tölvuleikjafyrirtækjum sem ég hef unnið hjá. Það er mikill
fókus á stemmningu. Það var þannig hjá CCP, þegar ég vann
hjá Massive og líka hér hjá DICE. Það er í eðli sínu mjög
gaman að búa til tölvuleiki og það eru margir sem vinna
hérna með mikla sköpunarhæfileika, fólk sem býr til flotta
list. Borðtennisborð, billjardborð og spilakassar eru ákveðin
yfirlýsing um að við vinnum ekki hjá tryggingafélagi eða
við þunga alvarlega vinnu. Við gefum okkur líka tíma til að
leika okkur. En þetta er orðinn einhvers konar staðal búnaður
hjá afþreyingarfyrirtækjum og kannski ekkert öðruvísi en
að vera bara með ljósritunarvél.“ Á sama tíma er gerð þung
krafa um afköst, sérstaklega þegar tugir milljarða eru í
spilunum. „Battlefield er svo stórt og þekkt merki og það
eru svo margir sem vilja vinna hérna. Sumt af besta fólkinu
í bransanum vinnur með mér. Það þýðir líka að pressan er
mikil.“