Kjarninn - 10.10.2013, Page 53

Kjarninn - 10.10.2013, Page 53
02/05 kjarninn Heimilisfjármál gleymist oft að stjórnmálamenn hafa það ekki í hendi sér hver kaupmáttur launanna er hjá fólki, nema að mjög takmörkuðu leyti. Of sjaldan er rætt um það að fólk ræður kaupmætti launa sinna í vissum skilningi. Alveg eins og almenningur verður að geta gert þá kröfu til stjórnmálamanna og almanna- stofnana að vel sé farið með almannafé (láni til dæmis ekki 500 milljónir evra til banka á sama tíma og neyðarrétti er beitt gegn þeim, eins og gert var 6. október 2008) verður hann að reyna að haga fjármálum sínum þannig að tekjur dugi fyrir gjöldum. Annars fer illa. Þetta er ekkert lítið mál, þvert á móti. Alls konar óvissu- þættir geta grafið undan rekstri heimilisins, eins og mikil verðbólga og óvænt áföll. Þrátt fyrir þetta er hægt að gera ýmislegt sem minnkar óvissuna, dregur úr líkum á því að illa fari. Ég er áhugamaður um heimilisrekstur og hér að neðan eru nokkur heilræði þegar kemur að því að minnka útgjöld, sem hafa reynst mér og mínum vel. 1. Takmarkaðu notkun á bíl eins og kostur er. Bíll er dýr í rekstri í hlutfalli við heildarveltu venjulegs heimilishalds. Ég kynntist því að vera með þungan bílrekstur þegar við hjónin bjuggum í Kópavogi, ég vann í Hádegismóum og konan mín ¯ 5H\NMDY¯NI\ULUW¨SXPŭPP£UXP  D²KHI²LPDUJ- ERUJD²VLJD²QRWD6WU¨WµHQYDUHUŭWWÀDUVHPÀD²ÀXUƀLD² koma syni okkar á leikskóla samhliða vinnuferðunum. Nú nokkrum árum síðar erum við þannig staðsett, í 105 Reykja- vík, að tæplega þrír kílómetrar eru til vinnu fyrir hvort okkar. Við tókum ákvörðun um að sleppa því að nota bílinn alveg í þessar ferðir til að spara. Ég labba til og frá vinnu en konan KOH\SXU\ŭUOHLWW ‹JQ¨D²IDUDPH²V\QLRNNDUWYR¯VNµODQD sína, leikskóla og grunnskóla, áður en ferðinni er framhaldið. 0«UUHLNQDVWWLOD²YL²VS¸UXPU¯ŮHJD À¼VXQGNUµQXUPH² þessu fyrirkomulagi á mánuði. Bensínkostnaður lækkar auð- vitað mikið en það munar ekki síður um viðhaldið. Viðhald á bílum er lúmskur kostnaðarliður í heimilis bókhaldi. Því

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.