Kjarninn - 14.11.2013, Side 27
Þ
egar gengið er inn á skrifstofur Plain Vanilla við
Laugaveg í Reykjavík er augljóst að þar gengur
vel. Eftir að hafa þrammað dúklagðan stiga-
gang taka við marmaratröppur upp á efstu hæð
hússins og þegar komið er á efsta stigapallinn
blasir veggbreið ljósmynd við. Við enda myndarinnar er
síðan hurð sem er vel merkt fyrirtækinu sem ég heimsæki.
Þar ætla ég að ræða við Ými Örn Finnbogason fjármálastjóra
um ævintýri síðustu mánaða.
Plain Vanilla gaf í síðustu viku út eitt vinsælasta app
í heimi fyrir iPhone og iPad. Spurningaleikurinn QuizUp
hefur orðið vinsæll á svo skömmum tíma að aðeins fimm
dögum eftir að hann varð fyrst aðgengilegur sáu yfirmenn
fyrirtækis ins sér ekki annað fært en að auglýsa eftir sjö
starfsmönnum í hin ýmsu störf.
Í móttökunni er mér boðið góðan daginn og eftir að ég
hef kynnt mig býður Hildur Kristín Stefánsdóttir mér kaffi
og vill sýna mér vinnuaðstöðuna. Klukkan er langt gengin í
tíu á þriðjudagsmorgni en svo virðist sem aðeins sjö af þeim
sautján sem vinna hjá Plain Vanilla í Reykjavík séu mættir.
Nætur vaktinni yfir vefþjónunum lauk víst ekki fyrr en undir
sólarupprás svo að starfsmennirnir eru farnir heim að leggja
sig áður en næsta nótt er undirbúin.
Í stærsta rýminu er langborð með fjölmörgum vinnu-
stöðvum sem hafa það allar sameiginlegt að skarta Apple-
breiðskjáum og tölvum í stíl. Þennan morguninn sitja aðeins
tveir við langborðið og hafa það verkefni að vakta vefþjóna
fyrirtækisins. Í herbergi fyrir innan sitja þrír starfsmenn sem
sjá um efnislega þátt appsins.
Mér verður starsýnt á tvo tölvuskjái sem sem sýna alls-
konar línurit sem virðast vera uppfærð í rauntíma. Mynd-
irnar eru kannski 20 og hafa það allar sameiginlegt að sýna
einhvers konar jákvæða þróun. Í þann mund sem Hildur
Kristín ætlar að sýna mér sjónvarpsholið þar sem starfsmenn
fyrirtækisins koma reglulega saman til að horfa á Game
of Thrones á Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir leið hjá og
tilkynnir okkur um leið að fjöldi notenda sé nú kominn yfir
500 þúsund einstaklinga. Svanhildur Gréta starfar í teyminu
sem sér um efnisþætti QuizUp en er, eins og allir sem þarna
vinna, hissa á þessum ótrúlegu viðtökum á vörunni.
Ætluðu að fara rólega af stað
Velgengnin er að mörgu leyti til komin vegna þess að varan
er góð, segir Ýmir Örn. Þeir Þorsteinn Baldur Friðriksson for-
stjóri hafa undanfarið verið að kynna leikinn fyrir fjár festum
og fjölmiðlum í Bandaríkjunum, þar sem helsti markaður
fyrirtækisins er. Við Ýmir settumst niður í fundarherberginu
og ræddum sprotafyrirtækið sem þeir reka, velgengnina og
næstu skref.
„Við ætluðum bara að setja þetta rólega af stað, sjá hvort
vefþjónarnir myndu ekki höndla þetta og jafnt og þétt auka
við markaðsbudduna,“ segir Ýmir. „Við hittum fulltrúa Apple
fyrir mánuði og sýndum þeim vöruna. Við vissum að þeir
höfðu strax áhuga. Á vefþjónunum sjáum við hvenær nýir
spilarar koma inn og Apple hafði aðgang að beta-útgáfunni
okkar og við sáum þegar þeir byrjuðu að spila.“
Apple hefur hins vegar þann háttinn á að láta ekki mikið
uppi um fyrirætlanir sínar þegar það gefur út nýjar tölvur
eða fær ný öpp á markaðinn hjá sér. „Við vissum að þeir voru
að íhuga að gefa okkur einhvers konar athygli en vissum það
ekkert fyrir víst fyrr en varan kom út í App Store,“ segir Ýmir.
Þá var appið sett á lista yfir bestu nýju leikina á markaðnum.
Ýmir segir þetta hafa gefið appinu góða spyrnu og hafa
sparað Plain Vanilla gríðarlegt fjármagn í markaðsherferð.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Ými Örn í Kjarnaofninum sem er aðgengilegur
14. nóvember 2013 á www.kjarninn.is/kjarnaofninn.
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.
gerðu vinsælasta
app í heimi
Deildu með
umheiminum
Kjarnaofninn
Birgir Þór Harðarson
birgir@kjarninn.is
02/02 kjarninn KJARNAOFNiNN