Kjarninn - 14.11.2013, Side 44

Kjarninn - 14.11.2013, Side 44
12/12 kjarninn STJÓRNMÁL Palestínumálið, þar sem Ísland gekk fram fyrir skjöldu og viðurkenndi sjálfstæði þjóðarinnar, fyrst vestrænna ríkja og fyrst Evrópuríkja í 25 ár, sýnir líka að Ísland er reiðubúið að leggja af mörkum til mannréttindabaráttu og fyrir friði. Í málinu hjó Ísland í sama knérunn og tuttugu árum fyrr þegar það viðurkenndi endurheimt sjálfstæðis Eystrasaltsríkjanna. Ísland getur þannig lagt af mörkum til mikilvægra mála, gangi það fram af sjálfstrausti en hvorki drambi né minni- máttarkennd. nýtt siglingakort eftir Kalda stríðið Það er nú nýrrar kynslóðar að marka stefnu Íslands gagn- vart heiminum. Þeir sem harðast standa gegn því að þjóðin fái að meta hvaða leið sé heppilegust í samskiptunum við stærsta markað okkar í Evrópu eru þeir sem lengi hafa verið á velli íslenskra stjórnmála. Þeir ala á ótta og beita kenni- valdi í utanríkis málunum sem ætti að hafa beðið hnekki í ljósi reynslunnar. Þeir treystu fyrst og fremst á að Ísland ætti að freista gæfunnar undir handarjaðri stórveldanna, Sovét- ríkjanna eða Bandaríkjanna. Þeir voru ekki tilbúnir fyrir nýja tíma og stjórna nú niðurdrepandi umræðu um stöðu Íslands í heiminum. Því miður hafa þeir enn mikil áhrif, einkum innan stjórnmálaflokkanna sem virðast sem í fjötrum horfinnar heimsmyndar. Það væri óskandi að þau fjölmörgu sem hafa sótt sér menntun í hvers kyns alþjóðasamskiptum eða hafa starfs- reynslu af alþjóðavettvangi blönduðu sér meira í umræðuna um íslensk utanríkismál til að hægt verði í auknum mæli að marka brautina út frá sterkri sjálfsmynd og hagsmunum Íslands fremur en ótta og órökstuddum kreddum. ÍtArEfni Fríverslunar- samningurinn við Kína Utanríkisráðuneytið $OOWXPYL²U¨²XUYL² Evrópusambandið Utanríkisráðuneytið Schengen-samningur Utanríkisráðuneytið Smelltu á fyrirsagnirnar til að lesa ítarefnið

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.