Kjarninn - 14.11.2013, Síða 60
11/17 kjarninn TRÚMÁL
é
g er kolfallin fyrir Vísindakirkjunni, ekki þannig
að ég kæri mig um að vera meðlimur í henni,
heldur er hún mér endalaus uppspretta af áhuga-
verðum sögum og sögusögnum enda sjúklega
dularfull að ég hélt.
Ég ætla að reyna að koma frá mér nokkrum áhugaverðum
punktum um hana sem hafa heillað mig lengi. Ég fór fyrr
á árinu á upplestur hjá Lawrence Wright, en hann skrif-
aði bókina „Going Clear“ sem fjallar um Vísindakirkjuna
einungis á staðreyndum, viðtölum við fyrrverandi meðlimi og
vitnisburðum úr réttarsölum. Ég viðurkenni að það er ekki
vöntun á efni um Vísindakirkjuna en þessa bók var ég tilbúin
að lesa enda rithöfundurinn virtur blaðamaður og Pulitzer-
verðlaunahafi. Minniháttar bækur í anda sorprita læt ég eiga
sig því sannleikurinn á bak við Vísindakirkjuna er trylltari
en nokkur maður gæti fundið upp. Á blaðsíðu 80 hélt ég að
ég yrði ekki eldri og svo aftur á blaðsiðu 120 og koll af kolli,
en bókin er tæpar 400 síður. Mæli eindregið með þeirri stór-
kostlegu lesningu.
)QDRJIU¦JDI³ONL°OLJJXUN\OOLöDWWI\ULUNLUNMXQQL
Fyrst og fremst byrjaði þessi brennandi áhugi minn á þessari
kirkju sökum þess hversu mikið af fína og fræga fólkinu í
Hollywood liggur kylliflatt fyrir henni. Vísindakirkjan er í
raun og veru, að mínu mati að sjálfsögðu, sjálfshjálpartækni
sem L. Ron Hubbard diktaði upp í kringum 1950. Leikstjórinn
Paul Thomas Anderson byggði kvikmyndina The Master, sem
kom út árið 2012, á Hubbard og lífi hans. Einnig má finna
á Youtube-vefnum stórgóðar heimildarmyndir og þætti um
Vísinda kirkjuna og einn af mínum uppáhalds þar er þáttur-
inn „Secret lives – L. Ron Hubbard“.
Þar eru uppljóstranir frá fólki sem stóð honum mjög
nærri en hefur nú yfirgefið kirkjuna eftir að hafa verið
ofboðið. En áður en við getum lýst því hvað það var sem
fólki ofbauð þarf aðeins að skýra út nokkur hugtök og renna
yfir sögu mannsins Hubbards, sem lifði eins og guð á meðal
dýrkenda sinna.
trúmál
Dröfn Ösp Snorradóttir
Rozas skrifar frá
Los Angeles