Kjarninn - 14.11.2013, Side 60

Kjarninn - 14.11.2013, Side 60
11/17 kjarninn TRÚMÁL é g er kolfallin fyrir Vísindakirkjunni, ekki þannig að ég kæri mig um að vera meðlimur í henni, heldur er hún mér endalaus uppspretta af áhuga- verðum sögum og sögusögnum enda sjúklega dularfull að ég hélt. Ég ætla að reyna að koma frá mér nokkrum áhugaverðum punktum um hana sem hafa heillað mig lengi. Ég fór fyrr á árinu á upplestur hjá Lawrence Wright, en hann skrif- aði bókina „Going Clear“ sem fjallar um Vísindakirkjuna einungis á staðreyndum, viðtölum við fyrrverandi meðlimi og vitnisburðum úr réttarsölum. Ég viðurkenni að það er ekki vöntun á efni um Vísindakirkjuna en þessa bók var ég tilbúin að lesa enda rithöfundurinn virtur blaðamaður og Pulitzer- verðlaunahafi. Minniháttar bækur í anda sorprita læt ég eiga sig því sannleikurinn á bak við Vísindakirkjuna er trylltari en nokkur maður gæti fundið upp. Á blaðsíðu 80 hélt ég að ég yrði ekki eldri og svo aftur á blaðsiðu 120 og koll af kolli, en bókin er tæpar 400 síður. Mæli eindregið með þeirri stór- kostlegu lesningu. )­QDRJIU¦JDI³ONL°OLJJXUN\OOLöDWWI\ULUNLUNMXQQL Fyrst og fremst byrjaði þessi brennandi áhugi minn á þessari kirkju sökum þess hversu mikið af fína og fræga fólkinu í Hollywood liggur kylliflatt fyrir henni. Vísindakirkjan er í raun og veru, að mínu mati að sjálfsögðu, sjálfshjálpartækni sem L. Ron Hubbard diktaði upp í kringum 1950. Leikstjórinn Paul Thomas Anderson byggði kvikmyndina The Master, sem kom út árið 2012, á Hubbard og lífi hans. Einnig má finna á Youtube-vefnum stórgóðar heimildarmyndir og þætti um Vísinda kirkjuna og einn af mínum uppáhalds þar er þáttur- inn „Secret lives – L. Ron Hubbard“. Þar eru uppljóstranir frá fólki sem stóð honum mjög nærri en hefur nú yfirgefið kirkjuna eftir að hafa verið ofboðið. En áður en við getum lýst því hvað það var sem fólki ofbauð þarf aðeins að skýra út nokkur hugtök og renna yfir sögu mannsins Hubbards, sem lifði eins og guð á meðal dýrkenda sinna. trúmál Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas skrifar frá Los Angeles

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.