Kjarninn - 14.11.2013, Page 72
06/07 kjarninn DANMÖRK
Forsætisráðherra Nýja Suður-Wales,
Joseph Cahill, lagði mikla áherslu á að hefja
byggingu hússins sem fyrst, þar sem hann
óttaðist að stuðningur stjórnmálamanna og
almennings myndi dvína ef langur tími liði
áður en framkvæmdir hæfust. Mikil harka
var í pólitíkinni í Ástralíu á þessum árum
og Cahill taldi að andstæðingar sínir myndu
bregða fæti fyrir byggingu Óperuhússins
ef þeir gætu. Jarðvegsframkvæmdir hófust
í mars 1958 og ári síðar var byrjað á sjálfri
byggingunni. Fljótlega kom í ljós að tillaga
Jørns Utzon var flókin í framkvæmd. Miklum
erfiðleikum olli að súlurnar sem áttu að
bera húsið uppi, segllaga skeljarnar fjórtán,
reyndust ekki nógu traustar og af þeim sökum varð að endur-
gera þær. Ekki hafði verk fræðingum heldur tekist að leysa
tæknileg vandamál sem tengdust hússkeljunum og að lokum
var það Jørn Utzon sjálfur sem uppgövaði þá tækni sem til
þurfti. „Þetta tengist allt appelsínum, ég var að taka í sundur
appelsínu þegar ég fékk hugmyndina að útliti hússins og líka
þegar tæknin til að byggja ytra byrði hússins laukst upp fyrir
mér,“ sagði hann síðar í viðtali.
Í þingkosningum 1965 urðu stjórnarskipti í Nýja Suður-
Wales, en Robert Askin sem þá varð forsætisráðherra hafði
alla tíð haft miklar efasemdir um Óperuhúsið og ráðherra
opin berra framkvæmda var mjög andsnúinn Utzon. Svo fór
að Utzon hætti allri vinnu við Óperuhúsið árið 1966 vegna
deilna við stjórnmálamennina, en kostnaðurinn var þá
orðinn meiri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Utzon
fór í fússi, hét því að koma aldrei aftur til Ástralíu og settist
að á Mallorca.
Framkvæmdirnar stöðvuðust um hríð en arkitektar sem
ekki voru á vegum Utzons voru fengnir til að hanna og skipu-
leggja húsið að innan. Kostnaðurinn við að innrétta húsið
reyndist mjög hár og sérfræðingar reiknuðu síðar út að verkið
hefði orðið mun ódýrara ef áætlunum Utzons hefði verið fylgt.
bagsværd-kirkjan
Meðal verka Jørns Utzon má
nefna kirkjuna í Bagsværd á
Sjálandi, paustian-húsgagna-
verslunina í Kaupmannahöfn,
Þinghúsið í Kúvæt, Náttúru-
sögusafnið Skagen á Jótlandi
og Melli-bankann í Teheran.