Kjarninn - 14.11.2013, Side 80
03/03 kjarninn piSTiLL
s
íðustu vikur hefur lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu staðið fyrir fundum víðs vegar á sínu
starfssvæði með lykilfólki á hverju svæði. Þessir
fundir hafa verið árviss viðburður undanfarin ár,
en á þeim er farið yfir stöðu mála á hverju svæði,
þ.e. tíðni afbrota og umferðarslysa borið saman við undan-
farin ár og önnur sveitarfélög eða hverfi á höfuðborgar-
svæðinu. Jafnframt eru kynntar á þessum fundum
niðurstöður úr árlegri könnun sem gerð er meðal íbúa
á höfuðborgarsvæðinum, en þar eru meðal annars
lagðar fram spurningar um sýnileika lögreglunnar,
aðgengi að henni og öryggistilfinningu fólks í sínu
hverfi. Á fundunum eru þessi mál síðan rædd frekar og
hlustað eftir ábendingum og tillögum frá fulltrúum skóla,
foreldrafélaga, íbúasamtaka, félagsmálayfirvalda og annarra
lykilaðila á hverjum stað. Til þess að gefa sem flestum tæki-
færi til að fylgjast með hafa þessir fundir verið sendir út í
beinni útsendingu á netinu í gegnum samfélagsmiðla og þar
er einnig hægt að skoða upptökur frá fundunum.
ánægjuleg þróun á undanförnum árum
Á síðustu árum hefur tilkynntum brotum til lögreglu fækkað
umtalsvert á flestum sviðum. Í síðustu samantekt lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tölfræði má sjá að þjófn-
uðum hefur fækkað um 8% á þessu ári samanborið við sama
tímabil í fyrra, innbrotum um 17%, eignaspjöllum um 6%
og ofbeldisbrotum einnig fækkað lítillega. Umferðar slysum
hefur aftur á móti fjölgað um 13% milli ára. Þessi þróun var
hins vegar ekki að byrja á þessu ári heldur má sjá ef tölur
ársins 2013 eru bornar saman við sama tímabil 2010-2012 að
þjófnuðum hefur fækkað um 21%, innbrotum um 46%, eigna-
spjöllum um 24% og ofbeldisbrotum um 6%. Umferðarslysum
hefur á þessum tíma fækkað um 2%.
Þessi merkilega þróun hefur ekki vakið mikla athygli
fjölmiðla, öfugt við það þegar fréttir hafa borist af fjölgun
afbrota á ákveðnum tíma eða svæðum. Stöku fréttir hafa
verið fluttar af þessari þróun og þessum upplýsingum jafnvel
verið mætt með tortryggni. Þetta geti ekki verið rétt enda sé
allt hvort eð er að fara fjandans til.
Ekki bara hér á landi
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þessar upplýsingar
eru réttar og þetta á sér ekki bara stað hér á landi. Ítarleg
umfjöllun var um málið síðla sumars í tímaritinu The
Economist undir forsíðufyrirsögninni „The Curious Case of
the Fall in Crime“. Þar var reynt að greina helstu ástæður
þess að þessi þróun blasti við á flestum stöðum í hinum
vestræna heimi. Ýmsar ástæður voru nefndar, m.a. á sviði
félagsfræði og forvarna. Ein helsta ástæðan var hins vegar
að mati greinarhöfunda betri og öflugri lögregla sem sinnti
verkefnum sínum á grunni stefnumótunar og upplýsinga og
væri sífellt færari vegna aukinnar menntunar og reynslu að
takast á við verkefni
sín. Nefndar voru
aðgerðir sem byggjast
á greiningu á þeim
stöðum þar sem búast
má við fleiri brotum
en annars staðar,
svonefndir heitir reitir
eða „hotspots“. Slíkar
greiningar og aðgerð-
ir í kjölfarið hafa ekki
bara gefist vel í banda-
rískum stórborgum
heldur víðast hvar.
Einnig var fjallað
um nýtingu tölfræði-
upplýsinga við slíkar
greiningar og stjórnun lögreglunnar á þeim grunni. Jafn-
framt voru tækniframfarir nefndar í þessu samhengi, þar á
meðal DNA-greiningar, greiningar á farsíma upplýsingum og
fleiri og betri öryggismyndavélar.
Önnur atriði skipta einnig miklu máli í þessu samhengi
og snúa að ýmsum hlutum í samfélagsgerðinni. Þannig
hefur neysla ungmenna dregist saman víðast hvar og betur
er hugað að ýmsum félagslegum þáttum í umhverfinu. Bætt
umgengni, reglubundið viðhald og fegurra umhverfi hefur
jákvæð áhrif í þessu sambandi, samanber kenninguna um
brotna gluggann (e. broken window theory). Tilkynningum
um heimilisofbeldi hefur einnig fækkað verulega samkvæmt
greininni og er það rakið til opinnar umræðu um þau mál
og afdráttarlausrar fordæmingar á slíkum brotum meðal
almennings. Þá hefur meðvitund samfélagsins fyrir brotum
almennt aukist og einstaklingar og fyrirtæki huga mun
meira og betur en áður að eigin öryggi með öryggiskerfum,
nágrannavörslu og ýmiss konar öryggisviðbúnaði öðrum
í verslunum og fyrirtækjum. Slíkt gerir það að verkum
að færri tækifæri gefast en ella til að fremja brot. Mikil
fækkun hefur t.d. orðið víða á vopnuðum ránum, þar á meðal
bankaránum, m.a. vegna margháttaðra öryggisráðstafana
sem gerðar eru til að fyrirbyggja rán. Þá hefur bílaþjófnuðum
fækkað mikið, sem meðal annars má rekja til þess að erfitt er
og jafnvel ómögulegt að stela nýjustu gerðum bíla.
Brotum fækkar hins vegar ekki á öllum sviðum og eru
kynferðisbrot nefnd sérstaklega í því samhengi, sem og vasa-
þjófnaður og búðahnupl. Vasaþjófnaður þar sem hnuplað
er dýrum snjallsímum er vandamál um allan heim og ekki
er langt síðan lögregluyfirvöld í New York kenndu Apple og
snjallsímum þess um aukna tíðni þjófnaða í borginni.
Hvað á við hér á landi?
Framangreindar skýringar á fækkun afbrota eiga að mörgu
leyti vel við þegar horft er til stöðu mála á höfuðborgar-
svæðinu. Frá því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók
til starfa í janúarbyrjun 2007 hefur mikil áhersla verið lögð
á greiningu upplýsinga og stjórnun lögreglunnar á grunni
þeirra upplýsinga. Þetta á við á öllum sviðum, hvort heldur
sem horft er til innbrota eða umferðarslysa. Á grunni þessara
upplýsinga hefur með markvissum hætti verið tekist á við
hvert svið og eftir atvikum svæði fyrir sig, einmitt með það
að markmiði að fækka brotum og auka þar með öryggi.
Skipulagi var breytt til þess að undirstrika enn frekar
áherslu á grenndarlöggæslu og forvarnastarf og til þess að
auka jafnframt yfirsýn og ábyrgð stjórnenda á hverju svæði
fyrir sig, bæði faglega og fjárhagslega. Þessar breytingar
voru tilnefndar til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri
árið 2011, en þá var árangurinn af þessu starfi þegar farinn
að koma í ljós.
Annað verkefni sem tilnefnt var til nýsköpunarverðlauna
sama ár miðaði að því að efla og auka eftirlit og eftirfylgni
með virkum brotamönnum. Um var að ræða þverfaglega
samvinnu sérfræðinga lögreglu, lögfræðinga, lögreglu-
manna og félagsfræðinga, sem fólst í greiningu á virkum
brotamönnum og þeim úrræðum sem tiltæk voru fyrir hvern
og einn þeirra. Markmiðið með þessu verkefni var að fækka
afbrotum og beita fyrr og með virkari hætti þeim lagalegu
úrræðum sem til staðar voru til að stöðva eins fljótt og
kostur væri þá afbrotamenn sem virkastir væru á hverjum
tíma. Árangur af þessari framkvæmd, sem verið hefur staðið
yfir síðastliðin fjögur ár, hefur verið mikill eins og sjá má í
nánari umfjöllun um verkefnið sem aðgengileg er á tengli
hér til hliðar. Hugmyndafræði heitu reitanna á hér einmitt
við, þó svo að sjónarhornið hér sé brotamennirnir sjálfir.
Ýmis önnur atriði skipta miklu máli þegar horft er til
þátta sem skýrt geta fækkun afbrota hér á landi. Aukin
samvinna lögreglu og lykilaðila í hverju hverfi og sveitar-
félagi fyrir sig skiptir miklu máli, en slík samvinna er virk á
mörgum sviðum. Hún hefur m.a. ýtt undir nágrannavörslu,
sem víða er orðin öflug. Áhersla á einstaklingsbundnar
forvarnir í náinni samvinnu við skóla, félagsmálayfirvöld
og barnavernd hefur einnig skilað miklu, ekki síst þegar til
lengri tíma er litið. Góður árangur í forvarnastarfi í grunn-
skólum hefur skilað sér í því að sífellt færri ungmenni neyta
áfengis, tóbaks eða annarra vímuefna eins og nýlegar rann-
sóknir sýna og forvarnastarf í framhaldsskólum er sífellt að
eflast.
Þyngri refsingar ekki áhrifavaldur
Lykillinn að þessum árangri hér á landi er í grundvallar-
atriðum sá sami og annars staðar. Þar skiptir mestu máli
betri og skipulagðari löggæsla sem stýrt er á grunni upplýs-
inga, aukin menntun lögreglumanna, þekking og ný tækni,
öflugt forvarnastarf og ýmsar félagslegar úrbætur í víðum
skilningi þess orðs. Samvinna lykilaðila á þessu sviði skiptir
í þessu sambandi miklu og undirstrikar til dæmis mikilvægi
reglubundinna funda þeirra og lögreglu sem minnst var á
hér í upphafi. Það er athyglisvert að lesa það í umfjöllun The
Economist að þyngri refsingar hafi ekki áhrif í þessu sam-
hengi og séu fremur til óþurftar heldur en hitt.
Ljóst er engu að síður að enn má gera betur á sviði
löggæslu og brotamenn eru duglegir við að finna sér nýjan
vettvang þegar þrengir að þeim á einum stað. Þannig hafa
brot af ýmsu tagi á netinu aukist, margvíslegar tilraunir eru
gerðar á þeim vettvangi til að hafa fé af fólki og fleiri dæmi
mætti nefna. Þessi brot eru í dag án efa vanmetin ef einungis
er horft til tölfræðigagna lögreglu. Aukin aðkoma sjálfboða-
liða að ýmiss konar eftirliti og starfi á vegum lögreglu hefur
víða gefið góða raun, til dæmis í Bretlandi og Hollandi. Slíkt
hefur gefið lögreglumönnum meiri tíma til að sinna því verk-
efni að upplýsa og fyrirbyggja glæpi. Á slíkt sjálfboðaliða-
starf hefur lítið sem ekkert reynt hér á landi.
Lögreglan hefur að mínu mati átt stóran þátt í því að
fækka afbrotum umtalsvert á liðnum árum og hætta er á
því að sá mikli niðurskurður sem hún hefur staðið frammi
fyrir undanfarin ár muni hafa áhrif á þennan árangur ef
ekki verður brugðist við. Dregið hefur úr frumkvæðisvinnu
á mörgum sviðum, sem hefur einmitt skipt miklu í þessari
góðu þróun sem nú blasir við. Stöðvun frekari niður skurðar
og aukin framlög til löggæslu sem boðuð eru á nýju ári eru
því mikið fagnaðarefni og gefa okkur tækifæri til að viðhalda
þessum góða árangri og gera enn betur.
dularfulla
glæpahvarfið
piStill
Stefán Eiríksson
Lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu
Deildu með
umheiminum
03/03
ÍtArEfni
The Curious Case of the
Fall in Crime
Leiðari The Economist
20. júlí 2013
Hvert hafa allir
bófarnir farið?
Grein í The Economist
Breytingar á skipulagi
löggæslu
Verkefni lögreglu sem tilnefnt var
til nýsköpunarverðlauna 2011
$²JHU²LUJHJQYLUNXP
brotamönnum
Verkefni lögreglu sem tilnefnt var
til nýsköpunarverðlauna 2011
Smelltu á fyrirsagnirnar
til að lesa ítarefnið
55 iNNbRot lægstA
tAlA Í eiNuM MÁNuði
Hér má sjá frétt um afbrota-
tölfræði – þar er m.a. upplýst
að innbrot á höfuðborgar-
svæðinu sem tilkynnt voru til
lögreglu voru 55 í september,
sem er lægsta tala í einum
mánuði sem mælst hefur í
málaskrá lögreglu frá upp-
hafi talninga á brotum.
Smelltu til að
sjá fréttina
Smelltu til að
sjá upptökur af
hverfafundum
lögreglunnar
Smelltu til að lesa skýrslu
um afbrotatölfræði LRH fyrir
september síðastliðinn