Kjarninn - 14.11.2013, Page 90
09/11 kjarninn STJÓRNMÁL
Reykjavík, Vörður, hélt fund með frambjóðendum í 1. sæti
síðastliðinn mánudag þar sem þeir gerðu grein fyrir stefnu-
málum sínum í ræðum.
Prófkjörsbaráttan hefur einkennst af „baráttu milli hins
nýja og gamla í Reykjavík“ eins og einn flokksbundinn sjálf-
stæðismaður komst að orði. Þorbjörg Helga og Hildur eru
frekar settar í hóp þeirra sem vilja nýjar áherslur á meðan
Júlíus Vífill og Halldór eru sagðir ná betur til þeirra sem
teljast vera eldri sjálfstæðismenn, að því er heimildarmenn
Kjarnans segja. Nokkuð skörp skil virðast vera á milli þess
fólks sem telst til baklands frambjóðendanna út frá þessum
áherslum.
Þorbjörg Helga sagði til að mynda í ræðu sinni að í síð-
ustu kosningum hefði fylgi Sjálfstæðisflokksins verið mun
minna hjá ungu fólki en því eldra. Þessu þyrfti að breyta
ef árangur ætti að nást í kosningunum. „Margir yngstu
kjósend anna eru ekki einu sinni tilbúnir að ræða við okkur.
Tölurnar tala sínu máli. Við áttum verulega undir högg að
sækja meðal yngri kjósenda í síðustu kosningum. Flokkurinn
okkar virðist auk þess eiga erfitt með að ná til kvenna. Í ný-
legri könnun voru tölurnar svona: Kjósendur undir þrítugu:
19% fylgi. Kjósendur 65 ára og eldri: yfir 40% fylgi,“ sagði
Þorbjörg Helga í ræðu sinni og bætti við: „Ég hef áhyggjur af
þessu. Það eru stórir, og mikilvægir, hópar borgarbúa sem
telja sig ekki eiga samleið með okkur lengur.“
flugvöllurinn ekki stóra málið
Viðbúið var að harkalega yrði deilt um flugvöllinn í Vatns mýri
í aðdraganda prófkjörsins, allt þar til nýtt samkomulag um
flugvöllinn var undirritað. Fyrrverandi oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra,
var í forsvari þegar samkomulagið var kynnt hinn 25. október
síðastliðinn. Jón Gnarr borgarstjóri skrifaði einnig undir
það fyrir hönd Reykjavíkurborgar eins og Dagur B. Eggerts-
son, formaður borgarráðs, Hanna Birna og Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fyrir hönd ríkisins
og Björgólfur Jóhannsson fyrir hönd Icelandair Group. Í
Smelltu til að kynna
þér hverjir hafa
atkvæðisrétt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins