Kjarninn - 13.02.2014, Page 71
02/05 kVikmyndir
Íslendingar kepptu um drekann
Hátíðin hefur ávallt lagt áherslu á kvikmyndaframleiðslu
Norðurlandanna og keppa norrænar kvikmyndir um aðal-
verðlaun hátíðarinnar: Drekann. Í ár var sviðsljósinu beint
sérstaklega að Íslandi. Bæði Hross í oss eftir
Benedikt Erlingsson og Málmhaus eftir Ragnar
Bragason kepptu um Drekann, en auk þess
var boðið upp á sýningar á eldri íslenskum
kvikmyndum, tónleika með Hjaltalín, um-
ræður um kvikmyndagerð landsins og sérstakt
„Íslandspartí“. Einnig var í fyrsta skipti veittur
sér stakur norrænn heiðursdreki, úthlutað til
norræns kvikmyndaleikstjóra sem þykir skara
fram úr á sínu sviði. Fyrstur til þess að hljóta
þessi verðlaun var enginn annar en Baltasar
Kormákur. Meira að segja var Ari Eldjárn
fenginn til þess að skemmta við verðlauna-
afhendingu hátíðarinnar. Það var því svolítíð eins og Ísland
hefði tekið yfir gervalla hátíðina, rétt eins og hátíðin tekur
yfir gervalla borgina.
Það er því bersýnilegt að íslensk kvikmyndagerð er í
mikilli útrás erlendis. Hross í oss kom til Gautaborgar eftir
að hafa verið sýnd á fjórtán ólíkum kvikmyndahátíðum – og
eftir að hafa meðal annars hlotið verðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í San Sebastian og í Tókýó. Málmhaus Ragnars
Bragasonar hlaut mikla athygli þegar hún var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto og
frá Gautaborg tóku við sýningar á kvikmynda-
hátíðunum í Rotterdam og Santa Barbara. Miðað
við hversu góðar þessar myndir eru og hversu eftir-
sóttar þær eru á alþjóðlegum kvikmynda hátíðum
um heim allan er frekar leiðinlegt að ekki er hægt að ræða
kvikmyndir og kvikmyndagerð á Íslandi á annan hátt en í
tengslum við niðurskurð og áhrif hans á iðnaðinn. En það
er kannski ekki skrítið að það verði aðalumræðuefnið þegar
Kvikmyndasjóður var nýlega skorinn niður um fjörutíu pró-
sent – í annað skipti á fjórum árum.
„Það að gera mynd fyrir
320.000 manna þjóð [er]
svolítið eins og að sýna
bíómynd í jólaboði.“
Málmhaus
Kvikmynd Ragnars Braga-
sonar, með Þorbjörgu Helgu
Þorgils dóttur, hefur hlotið
mikla athygli á kvikmynda-
hátíðinni í Toronto.