Framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga 1973-1978 - 01.10.1982, Blaðsíða 39
37
vinnuaflsfreka eða fjármagnsfreka grein. Að öðru jöfnu er
þess að vænta að verðmætasköpinin á vinnandi mann sé hærri í
fjármagnsfrekum greinum, eins og fiskveiðar eru dæmi um, en
í öðrum greinum. í töflu 27 um þjóðarauðinn er að finna
vissar vísbendingar um skiptingu framleiðslufjármunanna
eftir atvinnugreinum. Þess skal og getið að auk fram-
leiðslufjármuna og vinnuafls eiga náttúruauðlindir, svo sem
fiskimið, fallvötn og jarðhiti sinn þátt í myndun
þáttateknanna.
5.2 Skiptinq vergra þáttatekna milli vinnuafls og fjármagns
í beinu framhaldi af skiptingu vergra þáttatekna eftir
atvinnugreinum er næst að líta á skiptingu þáttateknanna
milli framleiðsluþáttanna þ.e. vinnuafls og fjármagns.
Fyrir allar atvinnugreinar í heild lítur skiptingin þannig
út í hlutfal1stölum:
1973 1974 1975 1976 1977 1978
1. Laun og tengd gjöld 62,2 64,8 62,3 61 ,5 63,4 64,4
2. Verg hlutdeild fjármagns 37,8 35,2 37,7 38,5 36,6 35,6
2.1 Afskriftir 13,4 14,0 15,6 14,3 13,4 12,0
2.2 Rekstrarafgangur 24,4 21,2 22,1 24,2 23,2 23,6
3. Vergar þáttatekjur ails
(3. = 1 .+2. ) 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Af þessu má draga þá ályktun, að á sex ára tímabilinu,
1973-1978, hafi skipting þáttateknanna innbyrðis milli
vinnuafls og fjármagns verið tiltölulega stöðug. Hæst varð
hlutdeild launanna árið 1974 eða tæp 65% af vergum
þáttatekjum en lægst 1976 eða 61,5%. í þessu sambandi er þó
rétt að hafa í huga að með launum er hér aðeins átt við
greiðslur til launþega sbr. skilgreiningu þessa hugtaks í
kafla 2, en ekki eigendalaun í einstak1ingsfyrirtækjum. Sem
dæmi má nefna að tekjur bænda af eigin búrekstri teljast til
rekstrarafgangs en ekki til launa.
5.3 Verq landsframleiðsla, samanburður á uppgjörsaðferðum
Þær tölur um verga landsframleiðslu, sem birtast í
þessari skýrslu samkvæmt framleiðsluuppgjörinu má bera saman
við niðurstöður ráðstöfunaruppgjörsins, sem verið hefur eina
uppgjörsaðferðin hérlendis, eins og áður er lýst. Áður en
slíkur samanburður er gerður, er nauðsynlegt að leiðrétta
eða samræma nokkur atriði. Hér verður þó einungis nefndur
munurinn á landsframleiðslu og þjóðarframleiðslu. í
skýrslum Þjóðhagsstofnunar hefur jafnan verið miðað við
verga þjóðarframleiðslu en niðurstöður framleiðsluuppgjörs
sýna verga landsframleiðslu. Munurinn á þessum tveimur