Framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga 1973-1978 - 01.10.1982, Blaðsíða 32
30
4.2.11 Fasteiqnarekstur oq þ.jónusta við atvinnurekstur
(atv.gr. 83)
Til þessarar greinar telst fasteignarekstur og ýmis
þjónusta við atvinnurekstur svo sem bókhalds- og
lögfræðiþjónusta, fjölritun o.fl. Heimildir um aðrar
greinar en fasteignarekstur er að finna í atvinnuvega-
skýrslum Þjóðhagsstofnunar. Hvað fasteignarekstur varðar þá
nær hann til rekstrar íbúðarhúsnæðis, hvort sem húsnæðið er
leigt út eða eigandi notar það sjálfur, svo og til útleigu
atvinnuhúsnæðis og véla.
Framleiðsluvirði útleigðs atvinnuhúsnæðis og véla er
áætlað sem summa gjaldfærðrar leigu hjá öðrum atvinnu-
greinum. Aðföng og vinnsluvirði eru áætluð á grundvelli
ýmissa heimilda meðal annars vísitölu húsnæðiskostnaðar, sem
Hagstofan reiknar út.
Framleiðsluvirði íbúðarhúsnæðis er leiguígildi alls
íbúðarhúsnæðis í landinu, hvort sem eigandi notar það
sjálfur eða leigir það út. Leiguígildið má í aðalatriðum
áætla eftir tveimur aðferðum. Önnur aðferðin gerir ráð
fyrir því, að leiguígildi alls húsnæðis sé áætlað eftir
markaðsleigu þess hluta aðferðin byggir á áætlunum um
tilkostnað við rekstur íbúðarhúsnæðisins svo sem um viðhald,
tryggingar, fasteignagjöld o.fl. Þessi tilkostnaður að
viðbættri eðlilegri ávöxtun þess fjármagns, sem bundið er í
húsnæðinu, er þá jafn framleiðsluvirðinu. Hér hefur fyrri
aðferðinni verið fylgt fyrir árin 1973-1976 eftir að sérstök
athugun leiddi í ljós að niðurstöður seinni aðferðarinnar
gáfu mjög áþekka niðurstöðu með einni undantekningu þó.
Síðustu tvö árin 1977-1978 hefur síðari aðferðin hins vegar
verið notuð, enda liggur ekki fyrir sérstök áætlun um
markaðsleiguna þau ár. Ástæða er því til þess að ætla, að
þessar breyttu aðferðir valdi ekki teljandi skekkju í mati á
leiguígildinu.
Aðfanga- og vinnsluvirðisþættir vegna íbúðarhúsnæðis
eru áætlaðir á grundvelli ýmissa heimilda. Meðal annars er
byggt á upplýsingum frá tryggingafélögunum um skyldu-
tryggingar og frjálsar tryggingar fasteigna. Ur sveitar-
sjóðareikningum Hagstofunnar og reikningum Gjaldheimtunnar
fengust upplýsingar um fasteignagjöld o.fl.
4.2.12 Heilbrigðisþjónusta á vegum einkaaðila (hluti af
atv.gr■ 93)
Hér er aðeins talin með í atvinnugrein 93 sú starfsemi
sem talin er til starfemi fyrirtækja, en þar er einkum átt
við sjálfstætt starfandi lækna, tannlækna, dýralækna og ýmsa
hei1brigðisþjónustu sem rekin er sem fyrirtæki. Heimildir
við gerð framleiðslureikninga fyrir þessar greinar eru
atvinnuvegaskýrslur Þjóðhagsstofnunar.
Til þessa atvinnugreinanúmers (93) telst raunar einnig
ýmis önnur starfsemi sem talin er til geirans "starfsemi
hins opinbera" svo og geirans "önnur starfsemi" og verður
fjallað um þá starfsemi þar.