Framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga 1973-1978 - 01.10.1982, Blaðsíða 26
24
f töflu 24 er að finna framleiðslureikninga fyrir
einstakar atvinnugreinar eftir að tekið hefur verið tillit
til framangreindra breytinga. Þess er því ekki að vænta, að
fullt samræmi sé milli þeirrar töflu og hliðstæðra talna í
áður birtum atvinnuvegaskýrslum stofnunarinnar.
4.2 Aðrar heimildir og áætlunaraðferðir
Hér á eftir verður stuttlega lýst áætlunarraðferðum við
gerð framleiðslureikninga fyrir þær atvinnugreinar, sem
atvinnuvegaskýrslur Þjóðhagsstofnunar ná ekki til.
Oafnframt verður getið helstu heimilda í hverju tilviki.
Tilvitnanir í atvinnugreinanúmer eiga við tveggja stafa
ISIC-flokkunina, nema annað sé tekið fram. Tölulegar
niðurstöður samkvæmt þeirri flokkun eru birtar í töflu 24.
í töflu 23 er hins vegar birt frekari sundurliðun vergra
þáttatekna í hverjum tveggja stafa ISIC-flokki og miðast sú
sundurliðun í flestum tilvikum við þriggja stafa
atvinnugreinaflokkun Hagstofunnar.
4.2.1 Landbúnaður (atv.gr. 11)
Á vegum Þjóðhagsstofnunar hafa ekki enn sem komið er
birst atvinnuvegaskýrslur um landbúnað. Engu að síður hafa
verið unnin innan stofnunarinnar rekstraryfir1it, er sýna
hei1darstærðir um tekjur og gjöld landbúnaðarins . Yfirlit
þessi eru með svipuðu sniðu og þau rekstraryfirlit, sem birt
hafa verið fyrir aðrar atvinnugreinar. Þó er aðgreiningin
milli búgreina, þ.e. milli almenns búrekstrar, alifuglabúa,
svínabúa, o.fl. ekki talin það traust enn sem komið er, að
fært sé að birta hana sérstaklega. Rekstraryfir1it þessi
eru til frá og með árinu 1973. Framleiðslureikningarnir í
þessari skýrslu eru síðan gerðir á grundvelli þessara
rekstraryfirlita með hliðstæðum hætti og lýst hefur verið
hér að framan um mismun á framleiðslu- og rekstrar-
reikningum.
Heimildirnar við gerð rekstraryfir1itanna í landbúnaði
eru margvíslegar, en ein meginheimildin er ársskýrsla
Búreikningastofu landbúnaðarins. Sú skýrsla sýnir m.a.
sundur1iðaðar framleiðslutekjur og rekstarkostnað meðalbús.
Meðalbúið er síðan fært upp í heildarstærð á grundvelli
skýrslna frá Framleiðsluráði landbúnaðarins og fleiri aðilum
um hei1darframleiðs1u búvöru á öllu landinu. Skýrsla
Búreikningastofunnnar nær þó aðeins til almenns búrekstrar,
þ.e. kúabúa og sauðfjárbúa, svo og þeirra búgreina, sem
teljast aukabúgreinar á þessum búum svo sem garðyrkja,
kartöflurækt, o.fl. Inn í þessa mynd vantar hins vegar
alifuglabú, svínabú, loðdýrabú, garðyrkju- og gróðurhúsabú
og fóðurframleiðslubú. Ur því er bætt með því að taka úrtök
úr skattframtölum þessara búa og færa þau úrtök síðan upp í
hei1darstærðir á grundvelli áætlana Þjóðhagsstofnunar um
heildarframleiðslu og tekjur í þessum greinum.